- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsti því yfir í morgun að hún ætlaði ekki að sækja um undanþágur frá Kyoto-bókuninni fyrir mengandi stóriðju. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að þar með hafi umhverfisráðherra afsalað sér fyrir hönd þjóðarinnar fimmtán milljarða króna verðmætum.
Svandís lýsti þessu yfir í setningarræðu á Umhverfisþingi á Hótel Nordica í Reykjavík í morgun þar sem hún ræddi um væntanlega loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Hún sagði það skipta máli að allir kæmi þar að borðinu með gagnlegt innlegg en ekki sérkröfur og undanþágubeiðnir. Þessvegna ætlaði hún ekki, fyrir Íslands hönd, að biðja um nýjar undanþágur fyrir stóriðju eða aðra starfsemi á Íslandi. Íslendingar ættu að vinna innan alþjóðlegs regluverks í loftslagsmálum en ekki að reyna að fá undanþágur til að vera einhverskonar aflandsparadís fyrir mengandi losun.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ræddi þetta mál í utandagskrárumræðu á Alþingi í fyrradag og sagði að þjóðin stæði þá frammi fyrir þeim vanda að tapa miklum verðmætum í loftslagssheimildum þar sem umhverfisráðherra afsalaði sér fyrir hönd þjóðarinnar einum 15 milljörðum króna á því tímabili sem Kyoto-bókunin næði yfir. Málið yrði í algjöru uppnámi.
Samtök hernaðarandstæðinga (SHA) telja að einkarekinn flugher hollenska fyrirtækisins E.C....
Ellefu viðskiptaáætlanir hafa verið valdar til að taka þátt í Gullegginu 2010, frumkvöðlak...
Framleiðsla og neysla á kjöti hefur þrefaldast á síðustu þremur áratugum og allt stefnir í...
efnahagsmál Bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna ákvað á þriðjudag að halda stýrivöxtum ób...
Eik Banki í Færeyjum hefur samið við dönsk stjórnvöld um aðgang að ríkistryggðum lánum upp...
Hvorki bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir né Jón Ásgeir Jóhannesson hafa áhuga á því a...
Utanríkisráðherra Litháens, Evaldas Ignatavičius, fundaði á dögunum með Elínu Flygeri...
Lögfræðingurinn Sigurður G. Guðjónsson, fékk greidda 200 þúsund króna kröfu í Fons fyrir n...
Talsmaður Samtaka lánþega segist harma auðsýnt máttleysi stjórnvalda við að taka á þeim br...
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra telur rök vera fyrir því að banna innflutning á vörum se...
Rebekka María Jóhannesdóttir, 23 ára gömul kona, sem missti móður sína síðastliðið haust o...
Íslendingur er 66 milljónum ríkari eftir að hann vann í Víkingalottóinu í kvöld en fyrsta ...
Háskóli Íslands er kominn á Skagaströnd og búinn að stofna þar rannsóknarsetur í sagnfræði...
Stofnfjáreigendur í Húnaþingi, sem bíða þess að gengið verði að eignum þeirra, leita svara...
Fimm menn eru í haldi lögreglunnar á Selfossi vegna innbrota í eina átta sumarbústaði í la...
Furðufiskur sem fannst spriklandi úti í móa við Stekkjarhvamm í Hafnarfirði er s...
Hyggur þú á ferðalög í sumar?