Fréttablaðið, 02. okt. 2009 04:30

Kvikmyndatónskáld safnar fyrir bágstadda Íslendinga

mynd
Er hálfgerður Þjóðernissinni. Veigar Margeirsson og eiginkona hans, Sigríður Ragna, hafa sett á fót söfnunarsíðu fyrir bágstadda Íslendinga. Hér eru þau með börnum sínum í Los Angeles.

„Íslendingar í útlöndum hafa miklar áhyggjur af ástandinu heima og við, sem búsett erum erlendis, fylgjumst mjög vel með því sem er að gerast," segir Veigar Margeirsson, kvikmyndatónskáld í Los Angeles. Hann hefur ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Rögnu Jónasdóttur, stofnað söfnunarsíðuna silverliningcharity.org þar sem fólki gefst kostur á að gefa peninga til styrktar bágstöddum Íslendingum. Áætlað er að 1. desember verði í fyrsta sinn gefnir peningar úr sjóðnum en Veigar segir þau hjónin vilja leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk til að halda gleðileg jól. „Við lesum auðvitað fréttir af Íslendingum og aukinni sókn eftir aðstoð ýmissa hjálparsamtaka. Það er skelfilegt að hugsa til þess að sumar íslenskar fjölskyldur eru nánast komnar undir fátæktarmörk."

Veigar hefur um árabil verið búsettur í Bandaríkjunum og samið tónlist við auglýsingar, stiklur og annað tengt afþreyingariðnaðinum. Hann samdi meðal annars tónlistina við íslensku spennumyndina Köld slóð þar sem Anita Briem fór með eitt aðalhlutverkanna. Hann hefur varið litlum tíma á Íslandi eftir að kreppan skall á. „Hér er auðvitað líka kreppa en fallið heima er svo hratt og gerist svo snöggt að þetta er varla sambærilegt," útskýrir Veigar og bætir því að margir Íslendingar sem búi í Bandaríkjunum hafi átt erfitt með að senda peninga heim. Heimasíðan geri því auðveldara um vik. „Fólk má ekki gleyma því að vegna stöðu krónunnar þá getur erlend mynt gert kraftaverk, það þarf ekki margar evrur eða dollara til að ná góðri upphæð," útskýrir Veigar.

Hann segir að Íslendingar megi aldrei halda að fólkið í útlöndum hafi gleymt þeim. Síður en svo. „Við höfum mjög sterkar taugar til Íslands og erum hálfgerðir þjóðernissinnar. Það hefur síður en svo minnkað eftir kreppuna," segir Veigar og tekur fram að auðvitað sé Íslendingum heima frjálst að gefa til söfnunarinnar. Eins og áður segir er heimasíða söfnunarinnar silverliningcharity.org og þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um málið. Íslenski reikningur söfnunarinnar er 0142-05-006966 og kennitalan er 060672-3509.freyrgigja@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 18:00

Það er rosalegt að sjá þig svona - myndir

Söngkonan Pink, 30 ára, eða Alecia Moore, valdi rauðvín í verslun í Kaliforníu í gærdag....  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 17:00

Þetta er misheppnað meik - myndir

Leikarinn Bradley Cooper, 35 ára, vakti athygli á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndar...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 16:00

Auðvitað brosir þú með rennislétt andlit - myndir

Leikkonan Sandra Bullock, 45 ára, var mynduð fyrir utan upptökuver spjallþáttarins Late Sh...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 15:00

Útblásnar varir stela senunni - myndir

Leikkonan Jessica Biel, 27 ára, stal senunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Valentine´s Day...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 14:00

Niðurlút Barrymore - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá leikkonuna Drew Barrymore, 35 ára, áberandi niðurlúta með sól...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 13:00

Hvað ertu að fela bak við handklæðið? - myndir

American Idol stjarnan Jordin Sparks, 21 árs, passaði sig á að vefja utan um sig handklæði...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 12:00

Er ofurkroppurinn urrandi? - myndir

Leikkonan Jennifer Aniston, 40 ára, er stödd í Cabo San Lucas í Mexíkó þar sem hún flatmag...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 11:00

Hvernig getur þú látið sjá þig í þessu? - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonurnar Jennifer Lopez, 40 ára, og Rihönnu, 21 árs, snæð...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 10:00

Eru allar stelpur í Versló fegurðardrottningar? - myndir

Ef meðfylgjandi myndir sem teknar voru baksviðs á frumsýningu THRILLER í Loftkastalanum er...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 08:45

Hvernig getur þú brosað eftir þessi vandræði? - myndband/myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Beyonce Knowles, 28 ára, missa jafnvægið í miðju s...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 06:45

Brjálað stuð baksviðs í Eurovision - myndband

Óhætt er að segja að gríðarleg stemmning hafi verið baksviðs í söngvakeppni Sjónvarpsins á...  

Meira Myndskeið

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 06:30

Kvíðir fyrir kynlífssenum

Robert Pattinson, aðalleikarinn í Twilight-myndunum, kvíðir fyrir því að leika í kynlífsse...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 06:30

Sló í gegn á grímuballi

„Ég bjóst ekki við að fá svona mikla athygli út á þetta,“ segir Ása Steinarsdóttir, sem va...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 06:00

Worthington í sakamálum

Leikarinn Sam Worthington hefur tekið að sér aðalhlutverkið í sakamálamyndinni Texas Killi...  

Meira

Fréttir af fólki 09. feb. 2010 06:00

Elíza + fjórir í kvöld

Elíza Newman – oftast kennd við Kolrössu krókríðandi, en í seinni tíð stundum við kvennakl...  

Meira

Leit á Vísi

Lífið

Vinsælast

Er mín að þykjast vera hamingjusöm? - myndir

Er mín að þykjast vera hamingjusöm? - myndir

Brad Pitt, 46 ára, og sonur hans, Maddox, 8 ára, voru myndaðir á LAX flugvelli í...


Nýtt á Vísi

Sirkus

Föstudagur

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni