Óljóst hvort Borgarahreyfingin lifi út kjörtímabilið 13. september 2009 18:57
Þingmenn Borgarahreyfingarinnar íhuga enn hvort þeir hyggist starfa áfram fyrir hreyfinguna eftir miklar deilur um lög og framtíð hennar á landsfundi í gær. Stjórnmálafræðingur segir skipulags-og reynsluleysi einkenna flokkinn og ómögulegt sé að segja til um hvort hann lifi út kjörtímabilið. Mikið hefur gengið á í Borgarahreyfingunni að undanförnu, Þráinn Bertelsson einn fjögurra þingmanna hreyfingarinnar sagði sig úr þingflokknum vegna innbyrðis deilna. Þá lét framkvæmdastjóri þingflokksins af störfum og formaður stjórnar Borgarhreyfingarinnar sagði skilið við hann. Nú síðast í gær á fyrsta landsfundi Borgarahreyfingarinnar ruku þingmennirnir þrír Birgitta, Þór og Margrét á dyr í fússi því lög voru samþykkt með meirihluta atkvæða sem gengu þvert á vilja þeirra. Þau íhuga nú hvort þau muni halda áfram að starfa fyrir hreyfinguna. Raunar var andrúmsloftið svo rafmagnað á landsfundinum í gær og það mátti best sjá þegar stjórnarmaður hreyfingarinnar Guðmundur Andri Skúlason og þingkonan Birgitta Jónsdóttir fóru í hár saman fyrir framan myndavélina. En það má segja að fljótt skipist veður í lofti því það var aldeilis annað hljóð í þeim á kosningavöku Borgarahreyfingarinnar í apríl síðastliðnum. „Við erum algjörlega samstíga. við höfum leyst úr öllum okkar málum," sagði Þór Saari. „Ég held að þarna hafi komið saman fólk með með ólíkar skoðanir en svipaðir væntingar um breytingar," segir Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur, um vanda hreyfingarinnar. Einar segir erfitt að segja til um hvort að Borgarahreyfingin lifi af kjörtímabilið. Ljóst sé að þingmennirnir komi til með að sitja út kjörtímabilið. Ómögulegt sé að segja til um hvort að flokkurinn komi til með að lifa af næstu kosningar. Sagan sé ekki hagstæð nýjum flokkum eins og Borgarahreyfingunni.
Tengdar fréttir Fasískar tillögur samþykktar á landsfundi Borgarahreyfingarinnar Landsfundur Borgarahreyfingarinnar samþykkti fundi sínum í dag fasískar tillögur, að mati fráfarandi formanns flokksins. 12. september 2009 16:46 Formaður Borgarahreyfingarinnar: Við gerðum byrjendamistök Baldvin Jónsson, formaður Borgarahreyfingarinnar, telur flokkinn hafa gert byrjendamistök eftir að hafa náð frábærum árangri í kosningunum í vor. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar sem Baldvin flutti eftir að landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst í morgun. Hann sagði núveranandi ríkisstjórn í litlu sem engu hafa breytt út frá stefnu fyrri ríkisstjórnar. 12. september 2009 10:17 Ný stjórn Borgarahreyfingarinnar kjörin í dag Landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst klukkan níu í morgun en hann fer fram á Grand Hótel í Reykjavík. Á eftir verða skipulags- og lagabreytingar ræddar sem og skýrslur stjórnar og þingmanna. Stjórnarkjör fer fram klukkan fjögur í dag en tveir hópar hafa tilkynnt um framboð í stjórn flokksins. 12. september 2009 09:24 Vonar að þingmennirnir starfi áfram fyrir Borgarahreyfinguna Varaþingmaðurinn Valgeir Skagfjörð hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri Borgarahreyfingarinnar á fyrsta landsfundi hennar sem haldinn var í gær. Þrír þingmenn hreyfingarinnar gengu út af fundi eftir að lög voru sett var þvert á vilja þeirra. Valgeir segist vona að þingmennirnir þrír haldi áfram að starfa fyrir Borgarahreyfinguna. 13. september 2009 12:17 Kosið um framtíð Borgarahreyfingarinnar Kosið verður um það í dag hvort Borgarahreyfingin verði áframhaldandi hreyfing eða hefðbundinn stjórnmálaflokkur á fyrsta landsfundi hreyfingarinnar á Grand hóteli. Hundrað manns sitja nú fundinn og fer stjórnarkjör fram síðdegis. 12. september 2009 12:25 Þingmennirnir íhuga hvort þeir starfi áfram innan hreyfingarinnar Upplausn ríkir hjá Borgarahreyfingunni og geta þingmenn hennar fara nú yfir stöðuna og hvort þeir geti hugsað sér að vinna áfram fyrir hreyfinguna. Tillaga var kjörin á landsfundi hennar í dag sem er þvert á vilja þingmannanna. 12. september 2009 18:59 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira
Fasískar tillögur samþykktar á landsfundi Borgarahreyfingarinnar Landsfundur Borgarahreyfingarinnar samþykkti fundi sínum í dag fasískar tillögur, að mati fráfarandi formanns flokksins. 12. september 2009 16:46
Formaður Borgarahreyfingarinnar: Við gerðum byrjendamistök Baldvin Jónsson, formaður Borgarahreyfingarinnar, telur flokkinn hafa gert byrjendamistök eftir að hafa náð frábærum árangri í kosningunum í vor. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar sem Baldvin flutti eftir að landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst í morgun. Hann sagði núveranandi ríkisstjórn í litlu sem engu hafa breytt út frá stefnu fyrri ríkisstjórnar. 12. september 2009 10:17
Ný stjórn Borgarahreyfingarinnar kjörin í dag Landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst klukkan níu í morgun en hann fer fram á Grand Hótel í Reykjavík. Á eftir verða skipulags- og lagabreytingar ræddar sem og skýrslur stjórnar og þingmanna. Stjórnarkjör fer fram klukkan fjögur í dag en tveir hópar hafa tilkynnt um framboð í stjórn flokksins. 12. september 2009 09:24
Vonar að þingmennirnir starfi áfram fyrir Borgarahreyfinguna Varaþingmaðurinn Valgeir Skagfjörð hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri Borgarahreyfingarinnar á fyrsta landsfundi hennar sem haldinn var í gær. Þrír þingmenn hreyfingarinnar gengu út af fundi eftir að lög voru sett var þvert á vilja þeirra. Valgeir segist vona að þingmennirnir þrír haldi áfram að starfa fyrir Borgarahreyfinguna. 13. september 2009 12:17
Kosið um framtíð Borgarahreyfingarinnar Kosið verður um það í dag hvort Borgarahreyfingin verði áframhaldandi hreyfing eða hefðbundinn stjórnmálaflokkur á fyrsta landsfundi hreyfingarinnar á Grand hóteli. Hundrað manns sitja nú fundinn og fer stjórnarkjör fram síðdegis. 12. september 2009 12:25
Þingmennirnir íhuga hvort þeir starfi áfram innan hreyfingarinnar Upplausn ríkir hjá Borgarahreyfingunni og geta þingmenn hennar fara nú yfir stöðuna og hvort þeir geti hugsað sér að vinna áfram fyrir hreyfinguna. Tillaga var kjörin á landsfundi hennar í dag sem er þvert á vilja þingmannanna. 12. september 2009 18:59