Tíu ţúsund manns flýja skógarelda á Grikklandi

Vísir Erlent 23. ágúst 2009 12:50
Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Guđjón Helgason skrifar:

Fjölmörg heimili norðaustan Aþenu, höfuðborgar Grikklands, urðu skógareldum að bráð í nótt og í morgun. Illa gengur að ná tökum á eldunum. Grískt yfirvöld fyrirskipuðu í morgun að tíu þúsund manns skyldi flytja á brott frá heimilum sínum.

Skógareldarnir kviknuðu í fyrrakvöld í þorpi um fjörutíu kílómetrum norðaustur af grísku höfuðborginni. Vindasamt var á svæðinu og varð það til að eldarnir breittust hratt út og til nærliggjandi þorpa rétt fyrir utan Aþenu og einni til úthverfa í norðaustur hluta borgarinnar.

Sökum þess hve hvass hefur verið hefur slökkviliðsmönnum gengið illa að ná tökum á eldunum. Í nótt brunnu fjölmörg heimili nærri borginni og stór ræktarlönd urðu eldnunum að bráð. Mörg hundruð íbúar á svæðinu flúðu heimili sín í nótt. Þykkur reykjarmökkur liggur nú yfir hluta grísku höfuðborgarinnar.

Grísk yfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í Austur-Attiku sem hluti Aþenu tilheyrir. Þar hafa rétt ríflega hundrað og tuttugu ferkílómetrar af skóglendi og ólífuræktarlandi brunnið. Grikkir hafa beðið bandamenn um aðstoð í baráttunni við eldana og er í dag búist við fimm flugvélum frá Frakklandi, Ítalíu og Kýpur sem nota á ásamt grískum flugvélum og þyrlum til að kasta vatni á logana.

Skógareldar eru tíðir í Grikklandi á sumrin þegar hitnar í veðri og þurrt er. Eldarnir nú vekja sárar minningar frá því fyrir tveimur árum þegar sextíu og fimm manns fórust í mannskæðustu skógareldum í landinu í manna minnum.





Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Talskona hennar stađfestir ţetta í sa...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 23:30

Býđur ástföngnum pörum ađ skođa skolphreinsistöđ

Viltu gera eitthvađ nýtt á Valentínusardeginum? Hvađ međ ađ bjóđa makanum í skolphreinsist...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 22:00

Norđur-kóreskir harmonikkuspilarar fara sigurför um heiminn

Norski tónlistarmađurinn Morten Traavik gerđi skemmtilega menningarlega uppgötvun ţegar ha...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 16:47

Fagna byltingarafmćli međ ţví ađ bođa til mótmćla

Ár er liđiđ frá ţví Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hrökklađist frá völdum eftir mótmć...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:08

Blađamenn breska blađsins The Sun handteknir

Breska götublađiđ The Sun er í uppnámi eftir ađ lögreglan í Lundúnum handtók fimm blađamen...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:04

Hershöfđingi myrtur í Sýrlandi

Byssumenn skutu og myrtu sýrlenskan hershöfđingja fyrir utan heimili sitt í Damascus, höfu...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 13:36

Játar ađ hafa rćnt barni fyrir 23 árum og aliđ upp sem sitt eigiđ

Ann Pettway hefur játađ ađ hafa rćnt nítján daga gömlu stúlkubarni af spítala í Harlem ári...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:04

Ćtlađi ađ drepa Obama

Tuttugu og tveggja ára mađur frá Úsbekistan hefur játađ ađ hafa skipulagt ađ drepa Barack ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:02

Saudí-Arabar vilja ađ ályktun gegn Sýrlandi verđi samţykkt

Saudí-Arabar reyna nú ađ fá Allsherjarţing Sameinuđu ţjóđanna til ađ samţykkja ályktun ţar...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 06:00

Stanslausar árásir í heila viku

Tvćr sprengjur sprungu viđ herstöđ í borginni Aleppo og ollu miklu tjóni. Ţar í borg hefur...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 05:00

Lögregla í átökum viđ mótmćlendur

Ţótt ţjóđstjórnin í Grikklandi hafi samţykkt ný niđurskurđaráform er enn eftir ađ tryggja ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 04:00

Lokađur heimur opnast

Rússneskum vísindamönnum hefur tekist ađ bora leiđ niđur í stórt stöđuvatn sem hefur veriđ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / Tíu ţúsund manns flýja skógarelda á Grikklandi