Kreppan fer illa með geðheilsu Íslendinga Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. ágúst 2009 10:59 Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er kreppan farin að segja til sín í geðheilsu Íslendinga.
Íslendingar eru áberandi svartsýnni en aðrar þjóðir á efnahagsástandið á næstu mánuðum. Í júní síðastliðnum töldu 71% Íslendinga að efnahagsástandið myndi enn versna á næstu 3 mánuðum. Næst á eftir Íslendingum í svartsýni komu Þjóðverjar, en 46% þeirra töldu að efnahagsástandið færi versnandi. Þetta sýna niðurstöður stærstu alþjóðlegu könnunar um áhrif fjármálakreppunar á almenning sem WIN (alþjóðleg samtök óháðra markaðsrannsóknarfyrirtækja) stendur fyrir og gerir nú í þriðja sinn í 22 löndum. Dregur úr svartsýni alls staðar nema á Íslandi og í Brasilíu „Af könnuninni í heild sinni sést að í 20 löndum af 22 hefur dregið úr svartsýni þar sem töluvert færri nú töldu að efnahagsástandið myndi versna en fyrir 3 mánuðum. Flestir áttu von á því að efnahagsástandið myndi standa í stað. Ísland og Brasilía voru einu þátttökuþjóðirnar þar sem ekki fækkaði í hópi þeirra sem töldu að ástandið myndi versna," segir í tilkynningu frá Capacent Gallup vegna málsins. Þá telja Íslendingar frekar en aðrar þjóðir að fjölskyldutekjur þeirra muni lækka á næstu mánuðum, en 59% töldu að þær myndu fara lækkandi og er það aukning frá 55% í síðustu könnun sem gerð var í mars síðastliðnum. Næstir koma Japanir, en um 49% þeirra telja að fjölskyldutekjur þeirra muni lækka. Hlutfall japanskra þáttakenda sem það telja hefur ekki hækkað, ólíkt því sem sést hér á landi. Íslendingar upplifa streitu, kvíða og þunglyndi vegna kreppunnar Jafnframt voru könnuð sálfræðileg áhrif kreppunnar og spurt um svefn, streitu, kvíða og depurð sem afleiðingu efnahagsástandins. Um 40% allra þátttakenda í löndunum 22 töldu sig hafa upplifað streitu eða kvíða vegna efnahagsástandsins og 18% að þeir hefðu fundið fyrir depurð. Um 67% Íslendinga höfðu upplifað að minnsta kosti eitt ofangreindra atriða, en á heildina litið höfðu 54% allra þátttakenda upplifað að minnsta kosti eitt atriði. Niðurstöðurnar sem um er að ræða voru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 17 - 25. júní 2009. Í úrtakinu voru 1277 manns á öllu landinu, 16 ára og eldri og var svarhlutfall 60,6%
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira