Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar:
„Ertu ekki að grínast í mér?," sagði Lára Ólafsdóttir, sjáandi, þegar blaðamaður sagði henni frá jarðskjálftanum sem varð í gærkvöldi klukkan 23:46 á Krýsuvíkursvæðinu, 3,1 á Richter.
Lára spáði skjálfta síðastliðinn mánudag klukkan 23:15, en honum virðist hafa seinkað um nokkra daga.
„Það hlaut að vera. Sá hlær best sem síðast hlær," segir Lára og hlær glöð í bragði.
„Þessvegna svaf ég svona vel í nótt, ég hef ekki sofið svona vel í marga mánuði."
Lára segist hafa orðið fyrir miklu áreiti síðan hún spáði skjálftanum og ekkert gerðist. Nú hafi hann hinsvegar riðið yfir.
„Ég sagði þetta!" segir Lára
Hún segir gærkvöldið bara byrjunina, og næst komi eldgos.
Hún segir jarðhræringarnar þó ekki það versta sem sé í vændum, heldur sjái hún annan og miklu verri atburð framundan. Honum vill hún ekki segja fréttastofu frá eftir viðbrögð fólks síðast, en segist hins vegar ætla að vara yfirvöld við strax eftir helgi.
„Ég fór í kirkju fyrir nokkrum dögum og bað fyrir allri þjóðinni. Þetta geri ég því mér er ekki sama."
„Ég get sagt þér eitt elskan mín, og hlustaðu nú vel. Ég vil ekkert fá þetta orð á mig, að vera spámiðill eða sjáandi. Ég er bara Lára Ólafsdóttir, með næmni sem ég deili með þjóðinni þar sem mér er ekki sama," segir Lára og biður fólk einfaldlega um að hlusta og vera tilbúið.