Löglegt? Siđlegt?

Fréttablađiđ Fastir pennar 25. júní 2009 08:17
Löglegt? Siđlegt?
Ţorvaldur Gylfason skrifar:

Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður og Stefán Már Stefánsson prófessor hafa í nokkrum greinum í Morgunblaðinu fært rök að því, að Íslendingum beri ekki lagaskylda til að axla IceSave-ábyrgðirnar og að Alþingi eigi því að hafna samningi fjármálaráðherra við Breta og Hollendinga um greiðslur vegna ábyrgðanna. Þeir Lárus og Stefán Már hafa lýst eftir rökstuðningi fyrir því, að íslenzka ríkinu beri að lögum að efla Tryggingasjóð innlána umfram lögbundið lágmark og greiða ábyrgðirnar, en þau rök hafa ekki komið fram, segja þeir, hvorki innan þings né utan. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari og Sigurður Líndal prófessor hafa líkt og Lárus og Stefán Már lýst þeirri skoðun í fjölmiðlum, að rétt væri að vísa málinu til dómstóla.

Hvers vegna telja þjóðir Evrópu, að Íslendingum beri að greiða þessar ábyrgðir? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum utanríkisráðherra, hefur svarað spurningunni skýrt í DV: „...meginástæðan fyrir því að ekki var hægt að fara með málið fyrir dóm var sú að ekki mátti leika vafi á að innistæður væru tryggðar. Ef menn féllust á að fá úr því skorið fyrir dómi mundi skapast réttaróvissa um það hvort innistæðutryggingar væru í gildi. Þar með hefði innistæðueigandi á Spáni, í Frakklandi eða annars staðar fengið tilefni til að efast um tryggingarnar og tekið út sparifé sitt. Slík réttaróvissa er óhugsandi." Þetta sjónarmið er skiljanlegt af sjónarhóli Evrópuþjóðanna og verður ekki vefengt.

Orð skulu standa

Í skýrslu sinni handa utanríkisráðuneytinu bendir Jakob Möller hæstaréttarlögmaður einnig á, að ítrekaðar yfirlýsingar íslenzkra stjórnvalda um, að staðið yrði við skuldbindingar íslenzku bankanna samkvæmt tilskipunum Evrópusambandsins um tryggingasjóði, bindi hendur stjórnvalda og samningar séu því nauðsynlegir og dómstólaleiðin komi af þeim sökum ekki til álita. Þetta sjónarmið verður ekki heldur vefengt. Hver vill vitandi vits eiga viðskipti við mann, sem er þekktur að því að víkja sér undan að efna gefin loforð með þeim rökum, að honum beri ekki lagaskylda til þess?

Sjónarmið Breta

Hugsum okkur, að úr því fengist skorið fyrir rétti, að Íslendingum bæri ekki lagaskylda til að greiða IceSave-ábyrgðirnar. Myndu Bretar þá með fulltingi annarra Evrópuþjóða falla frá kröfum sínum á hendur Íslendingum? Svarið er nei, ekki endilega. Krafa Breta væri þá siðferðileg frekar en lagaleg.

Skoðum ábyrgð Íslendinga á málefnum Landsbankans af sjónarhóli Breta. Ríkisstjórn Íslands seldi fyrir fáeinum árum ráðandi hlut í Landsbankanum í hendur feðgum tveim við þriðja mann. Faðirinn, Björgólfur Guðmundsson, gerðist formaður bankastjórnarinnar og gerði framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins að varaformanni sínum. Björgólfur eldri hafði þá sérstöðu meðal hugsanlegra kaupenda Landsbankans, að hann hafði fengið skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir bókhaldsbrot. Virt erlend dagblöð, þar á meðal Financial Times og Guardian á Bretlandi og Welt am Sonntag í Þýzkalandi, hafa velt vöngum yfir umsvifum Björgólfs Thors Björgólfssonar í Búlgaríu og annars staðar og hugsanlegum tengslum hans og þá um leið Landsbankans við rússneska auðmenn. Þrálátur orðrómur um fjárböðun íslenzkra banka fyrir rússneska auðkýfinga horfir nú öðruvísi við en áður. Íslendingar og umheimurinn eiga heimtingu á að fá að vita, hvort orðrómurinn á við rök að styðjast. Aðrar þjóðir hljóta að þurfa að fá að læra af mistökum íslenzkra banka og stjórnvalda, enda hafa þær ákveðið að rétta Íslandi hjálparhönd í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Rannsóknarnefnd Alþingis og sérstakur saksóknari hljóta að taka þessa hlið málsins til vandlegrar skoðunar.

Í góðri trú

Bretar væru hirðulausir um eigin hag, ef þeir hefðu ekki kynnt sér sögu Landsbankans og feril eigenda hans. Leyniþjónusta Hennar hátignar fer létt með slíkt. Ríkisstjórn Íslands vandaði ekki vel til einkavæðingar Landsbankans. Gögn, sem forsætisráðuneytið hefur nú birt, taka af öll tvímæli um það. Íslenzkir ráðamenn voru sumir í vel þekktu vinfengi við Landsbankafeðgana. Forsætisráðherra sagðist reyna að hitta soninn í hvert sinn, sem hann kæmi til Íslands. Seta framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins við hlið Björgólfs eldra í bankaráðinu sendi sömu skilaboð. Bankastjórarnir sögðust hafa ríkisábyrgð. Stjórnvöld sögðust fram að hruni mundu styðja við bankana, ef á þyrfti að halda. Viðskiptavinir Landsbankans á Bretlandi voru því í góðri trú. Þess vegna kunna Bretar og aðrir að líta svo á, að Íslendingum beri siðferðileg skylda til að axla ábyrgð á Landsbankanum hvað sem lögunum líður.



Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getađ fariđ inn á vefsíđur Íbúđa...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / / Löglegt? Siđlegt?