Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski

Fréttablaðið Innlent 24. júní 2009 06:00
Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski

Alcoa Fjarðaál og Alcan á Íslandi hafa stundað viðskipti með krónur erlendis. Viðskiptin gætu skilað fyrir­tækjunum 1,65 milljörðum króna í hagnað á ársgrundvelli. Viðskiptin geta seinkað styrkingu krónunnar. Um lögleg viðskipti er að ræða en Seðlabankastjóri segir hins vegar að undanþágur séu ekki ætlaðar til að fyrirtæki hagnist á þeim.

Tvö af þremur álfyrirtækjum hérlendis greindu frá því í viðtali við Fréttablaðið í gær að þau hefðu stundað viðskipti með krónur á erlendum markaði. Slík viðskipti geta haldið aftur af styrkingu krónunnar en eru ábatasöm fyrir þau fyrirtæki sem eiga hlut að máli.

Auðvelt er að setja upp dæmi sem skýrir vel ágóðann af þessum viðskiptum. Meðalgengi íslensku krónunnar samkvæmt meðalgengi Seðlabanka Íslands hefur verið um 165 krónur fyrir hverja evru. Gengi íslensku krónunnar hefur í miðlunarkerfi Reuters hins vegar verið um 230 krónur að meðaltali frá því að bankahrunið skall á í október. Gengi krónunnar á þeim markaði gefur vísbendingu um það gengi sem fyrirtæki geta átt viðskipti á með krónur erlendis.



Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski
Tveir aðskildir markaðir

Ef fyrirtæki ákveður að selja eina evru á erlendum markaði hefur það fengið um 230 krónur að meðaltali í vetur. Hins vegar ef viðkomandi hefði selt eina evru hérlendis þá hefur það fengið um 165 krónur að meðaltali frá því að bankahrunið átti sér stað. Viðkomandi hafa því verið að fá um 65 fleiri krónur fyrir hverja evru heldur en ef viðskiptin hefðu átt sér stað hérlendis.

Því er augljóst að það er ágóði af því fyrir íslensk fyrirtæki að kaupa krónur á erlendum markaði fyrir þann erlenda gjaldeyri sem fyrirtækin fá af sínum útflutningi. Þau fá því fleiri krónur fyrir sama magn af erlendum gjaldeyri. Með þessum hætti geta fyrirtækin flutt inn krónur sem þau kaupa á hagstæðara gengi til að greiða innlendan kostnað, svo sem laun og annan tilfallandi kostnað.

Þar sem viðskiptin fara fram erlendis hafa þau ekki áhrif á opinbert gengi krónunnar hjá Seðlabanka Íslands. Ef viðskiptin færu hins vegar fram hérlendis, en ekki á erlendum markaði, myndi það hafa áhrif til styrkingar á opinberu gengi krónunnar.



Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski
Álfyrirtækin stunda viðskipti með krónur erlendis

Í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær kom fram að bæði Alcan á Íslandi og Alcoa Fjarðaál hafa stundað viðskipti með krónur á erlendum mörkuðum. Erna Indriðadóttir framkvæmdastjóri hjá Alcoa Fjarðaáli greindi frá því að fyrir­tækið hefði varið lágu hlutfalli tekna sinna til kaupa á íslenskum krónum erlendis. Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi, sagði jafnframt frá því að félagið hefði stundað viðskipti með krónur erlendis og notað þær krónur sem keyptar hefðu verið erlendis til að greiða minnihlutann af innlendum kostnaði félagsins.

Í því samhengi er athyglisvert að skoða hve hár innlendur kostnaður þessara félaga var á síðasta ári. Ólafur Teitur greindi frá því í vetur að Alcan hefði árið 2008 greitt um 6,8 milljarða króna í innlendan kostnað og tekjuskatt, fyrir utan orkukaup. Ekki hafa fengist upplýsingar um launakostnað Alcan á Íslandi. Sambærileg tala fyrir Alcoa Fjarðaál er 9,5 milljarðar króna en auk þess greiddi fyrirtækið 4,4 milljarða í launakostnað á síðasta ári. Því er ljóst að samanlagður innlendur kostnaður þessara tveggja ál­fyrirtækja var að minnsta kosti tuttugu milljarðar króna árið 2008.

Athuga ber að orkukostnaður er ekki innifalinn í þessari tölu þar sem samningar fyrirtækjanna eru gjarnan í erlendum gjaldmiðli og því munu fyrirtækin ekki skipta gjaldeyri til að greiða þann kostnað.



Lögleg viðskipti

Ljóst er að álfyrirtækin eru dæmi um fyrirtæki sem hafa notið góðs af ósamræmi í gengisskráningu íslensku krónunnar hérlendis og á erlendum mörkuðum. Eftir umfjöllun Fréttablaðsins að undan­förnu brást Alcan á Íslandi við og hafði samband við Seðlabanka Íslands, sem leiddi til þess að bankinn óskaði eftir því að öll þeirra gjaldeyrisviðskipti færu fram hérlendis. Alcan á Íslandi hyggst verða við þeirri ósk.

Mikilvægt er að taka fram að ekki er um lögbrot að ræða hjá álfyrirtækjunum þar sem þau hafa undanþágu frá gjaldeyrishöftunum sem sett voru á fyrr í vetur. Svein Harald Öygard Seðlabankastjóri sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að mörg fyrirtæki hefðu undanþágur frá gjaldeyrishöftunum, „hins vegar eru undanþágur ekki ætlaðar til að fyrirtækin hagnist vegna reglnanna."


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 04. feb. 2012 11:46

Tveir sjúklingar fluttir með sjúkraflugi

Flogið var sjúkraflug til Grænlands á fimmtudaginn. Sérútbúin flugvél Mýflugs flaug þá til...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 10:42

Stóra systir merkir Goldfinger með Gillz-límmiðum

Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir hengdi í dag límmiða á dyr skemmtistaðarins Goldfinger ...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 11:18

Erilsöm nótt í höfuðborginni

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðbæ ...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 10:10

Pústrar og ölvunarakstur í nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að skemmtistaðnum Spot í Kópavogi vegna slags...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 10:02

Skíðasvæði opin um allt land - nema í Bláfjöllum

Opið verður á skíðasvæði Siglufjarðar í dag frá 10 - 16 en mikil brettasýning fer þar fram...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 11:00

Margt aflaga hjá lífeyrissjóðunum

Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við fjárfestingar lífeyrissjóðanna, eftirlit með þeim o...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 11:00

Hlutabréf: Sex kostuðu 200 milljarða

Lífeyrissjóðirnir töpuðu samtals 198.764 milljónum króna á hlutabréfum við bankahrunið sam...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 11:00

Töpuðu tæpum 500 milljörðum á hruninu

Íslensku lífeyrissjóðirnir töpuðu meiri fjármunum á bankahruninu en það kostaði að reka ís...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 11:00

Afleiður: Tapið gæti orðið mun meira

Úttektarnefndin áætlar tap lífeyrissjóðanna vegna gjaldmiðlavarnasamninga um 36,4 milljarð...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 09:00

Starfi ekki einir í félagsmiðstöð

Starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar Eldingar í Garði vilja ekki vera einir á vakt á opnunartí...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 08:00

Uglur hópast saman í Laugardal

Uglur hafa hópast saman og haldið til í Laugardalnum í Reykjavík frá því um miðjan janúar....  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 07:00

Ráðherra prófar nýja bifreið

Meðal þeirra sem fá að reynsluaka metanbíl frá Metanorku er Svandís Svavarsdóttir, umhverf...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 06:00

Sjá engin rök fyrir sameiningu

Foreldrar barna í Hamraskóla í Grafarvogi eru ósáttir við flutning unglingadeildar skólans...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 06:00

Ráðherra kallar til samráðs um safnið

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kallaði eftir því á Alþingi í gær a...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 05:00

Gæti skilað inn 12,5 milljónum á ári

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra leggur til að fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli borgi u...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 04:00

Skipt um fulltrúa í bankaráði

Ingibjörg Ingvadóttir, lektor við lagadeild Háskólans á Bifröst, hefur verið kjörin í bank...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 04:00

Fleira skýrir minni akstur en vond færð

Vegagerðin hefur kallað eftir veðurupplýsingum allt frá árinu 1995 til að reyna að finna f...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 03:30

Hefur stýrt umferðarljósunum í yfir 40 ár

„Umferðarmenningin hefur breyst mjög mikið, og til hins betra,“ segir Dagbjart...  

Meira
Innlent 04. feb. 2012 03:15

Fá ekki fólk til að bera út bréf

„Ef bréfberar fást ekki til starfa er það vísbending um að launakjör séu ekki viðuna...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 22:23

Má búast við miklum vindhviðum

Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli í kvöld og fram á ...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 20:07

Vilja skattaívilnanir fyrir þá sem spara fyrir íbúðarkaupum

Níu þingmenn á Alþingi lögðu fram frumvarp í dag þar sem gert er ráð fyrir sérstökum skatt...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 19:46

VIll að PIP fyllingarnar verði fjarlægðar úr öllum konum

Geir Gunnlaugsson landlæknir telur ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öll...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 19:00

Orkusalan vefur ársins á SVEF-verðlaununum

Orkusalan.is var rétt í þessu valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum. Jón...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 17:29

Fundu á annað hundrað grömm af kannabisefnum í Herjólfi

Lögreglumenn fundu um 150 - 200 grömm af maríhúana í farangursgeymslu bíls í Herjólfi þega...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 16:40

Hnífamaður í gæsluvarðhald

Héraðsdómur Reykjaness féllst á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni um tvítugt sem er gru...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 14:57

Eldfjall með flestar tilnefningar til Eddunnar

Eldfjall hlaut flestar tilnefningar til Eddunnar í ár eða fjórtán alls. Þá hlaut Á annan v...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 16:37

Jafn margir á nagladekkjum og í fyrra

Hlutfall nagladekkja undir bifreiðum er svipað í janúar 2012 og það var á sama tíma í fyrr...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 15:55

Einn ölvaður og tveir dópaðir undir stýri

Tæplega 70 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í umferðareftirliti lög...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 14:46

Tæplega 800 hvítir Kangoo í umferð

Alls eru 759 hvítir Renault Kangoo bílar skráðir hjá Umferðarstofu en lögreglan á höfuðbor...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 13:11

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Sævari Sverrissyni, karlmanni á sext...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 13:10

Kærleikar í miðborginni á morgun

Það er langur laugardagur í miðbæ Reykjavíkur á morgun eins og alla fyrstu laugardaga hver...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 13:04

Einu matvöruversluninni í Vogum lokað

Einu matvöruversluninni í Vogum á Vatnsleysisströnd hefur verið lokað samkvæmt bæjarblaðin...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 12:42

Stjórnvöld fara yfir skýrslu um PIP brjóstafyllingar

Íslensk heilbrigðisyfirvöld fjalla nú um niðurstöður sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyll...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 12:10

Skutu þrjá mótmælendur til bana í Egyptalandi

Egypska lögreglan skaut þrjá til bana í mótmælum sem haldin voru víðsvegar um Egyptaland í...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 12:01

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

Lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri, fundu 34 kannabisplöntur á eyðibýli á...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 12:01

Sautján daga baráttu um myndun nýs meirihluta gæti lokið um helgina

Sautján daga baráttu við að koma saman nýjum meirihluta í Kópavogi gæti lokið um helgina. ...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 11:42

Of monsters and men með nýtt myndband

Nýtt tónlistarmyndband með hljómsveitinni Of Monsters and Men kom út í gær. Myndbandið er ...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 11:27

Dýrara fyrir eldri borgara að fá akstur - Úr 350 krónum í 1000 krónur

"Við erum auðvitað ekki ánægð með þetta," segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félag...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 10:55

Maðurinn úr lífshættu

Karlmaður um fertugt, sem stunginn var nokkrum djúpum stungum í kvið og síðu í nótt er úr ...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 09:46

Bruggari handtekinn á Vestfjörðum - ætlaði að selja norðanmegin

Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit hjá bruggara á miðvikudaginn síðasta. Við húsle...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 09:38

Vilja lækka vaskinn á barnaföt

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram á þingi frumvarp til laga sem myndi lækka vir...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 09:14

Fundu 400 e-töflur í húsleit á Akureyri

Í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leitin...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 07:27

Harður árekstur á Breiðholtsbraut

Ökumaður smábíls slapp lítið meiddur eftir að hafa lent í hörðum árekstir við jeppa á gatn...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 07:09

Leiguþyrla gæslunnar til landsins í dag

Þyrlan, sem Landhelgisgæslan hefur tekið á leigu á meðan TF LÍF er í stórri skoðun ytra, e...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 07:00

Vill auka öryggi í smábátum

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvetur Ögmund Jónasson innanríkisráðher...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 06:59

Karlmaður illa haldinn eftir hnífsstungu í nótt

Karlmaður á fertugsaldri gengst nú undir aðgerð á Landsspítalanum eftir hnífstungu, sem ho...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 05:00

Fært á hjólastól yfir Markarfljót

Áhugahópurinn Vinir Þórsmerkur hefur fengið heimild í skipulagsnefnd Rangárþings til að vi...  

Meira
Innlent 03. feb. 2012 03:15

Eðlilegt að hlera við rannsókn á hruninu

Ríkir almannahagsmunir eru fyrir því að upplýsa brot í aðdraganda bankahrunsins og beita t...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Fréttir / Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski