Björn Mikkaelsson: Neyddist til að svíkja fólkið

Vísir Innlent 19. júní 2009 12:27
Björn Mikkaelsson segir að sér líði hryllilega yfir örlögum fjölskyldunnar að Miðhúsum í Kollafirði.
Björn Mikkaelsson segir að sér líði hryllilega yfir örlögum fjölskyldunnar að Miðhúsum í Kollafirði. Mynd/ Arnþór Birkisson
Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar:
„Það er rétt hjá þeim," segir Björn Mikkaelsson um sögu hjónanna frá Miðhúsum í Kollafirði sem fjallað var um á Vísi fyrr í dag. Í samtali við fréttastofu sagði Viðar Guðmundsson frá því að hann og kona hans borguðu Birni tæpar tíu milljónir upp í Finnskt einingahús sem þau fengu aldrei. Annars vegar 2,7 milljónir í staðfestingargjald og síðar 7,2 milljónir.

Björn segir þau hjónin fara með rétt mál. Aðspurður um skýringu á þessu svaraði Björn: „Hún er sáraeinföld. Það var verið að vinna í þessu fyrir þau og það var bara ekkert komið lengra þegar ég fer sjálfur í þrot. Ég var svikinn um greiðslur og það vatt upp á sig og þar með fer ég að svíkja annað fólk," segir Björn.

Í samtali við fréttastofu sagði Viðar að hann hefði hringt utan í finnska fyrirtækið sem framleiðir húsin en fengið að heyra þar að ekki einu sinni öll fyrri greiðslan hefði borist fyrirtækinu. „Það er líka rétt hjá þeim," segir Björn. Hann segir að það hafi hreinlega ekki verið komið svo langt. „Í millitíðinni fór það í annað á reikninum hjá mér og svo bara sprakk allt," segir Björn. Aðspurður hvort ekki hefði verið eðlilegra að senda peningana frá Viðari og frú jafnóðum út til finnska fyrirtækisins sagði Björn: „Jú, jú. Það hefði verið það. Þetta er bara leiðindamál."

Aðspurður hvernig honum liði útaf þessu máli svaraði Björn: „Mér líður hryllilega yfir því. Ég er búinn að reyna allt sem í mínu valdi stendur til að leiðrétta það en ég hef ekki bolmagn í það." Hann viðurkennir að um eitt annað svipað tilfelli sé að ræða. „Já eitt annað tilfelli í Borgarfirði."

Viðar sagði einnig frá því að Björn hafi verið hættur að svara þeim hjónum í síma. „Það er kannski af því að ég er ekki með sama síma, hann var tekinn þegar fyrirtækið var tekið."

Björn segir að hann hafi ætlað að selja húsið sitt til þess að bæta hjónunum fyrir vestan upp tjónið. Eignarhlutur hans í húsinu hafi hinsvegar horfið þegar gengi krónunnar hrundi. Hann segist hafa átt rúmar 35 milljónir í húsinu áður en allt hrundi.

Spurður hvort hann teldi sig vera heiðarlegan í viðskiptum alla jafna sagði hann: „Ég tel mig ekki vera óheiðarlegan. Þetta er alveg skítamál en þetta eitthvað sem ég ræð ekki við."

Björn hefur sagt frá því hvernig þrír aðilar sviku hann og því hafi hann farið í þrot. Hann segir að sjálfur hafi hann tapað vel yfir tuttugu milljónum þessara þriggja kúnna. Hann segir þau Viðar og Barböru vera andstæður þeirra sem sviku hann. „Þetta er toppfólk. Þvílíkt fyrirmyndarfólk en ég veit ekki hvað ég get gert fyrir þau skilurðu? Ég er ekki búinn að hafa það gott yfir þessu góða fólki."






Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Björn Mikkaelsson: Neyddist til að svíkja fólkið