Vilja ekki afnema verðtrygginguna 29. mars 2009 12:14 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum formaður Samfylkingarinnar á landsfundi.
Samfylkingin greiðir nú atkvæði um stefnumál sín á lokadegi landsfundar í Smáranum. Endurreisnarnefnd landsfundar vill að dregið verði úr vægi verðtryggingar í lánaviðskiptum - en ekki að hún verði afnumin. Umhverfishópurinn leggur til að kvótar verði innkallaðir í Auðlindasjóð á næstu tuttugu árum. Ekki er búist við átökum við afgreiðslu mála á landsfundi Samfylkingarinnar. Fundurinn hófst klukkan tíu í morgun með kynningu á frambjóðendum til ritara, gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar, en Rannveig Guðmundsdóttir lætur af því starfi og eru þar tveir í framboði, Margrét Björnsdóttir og Ari Skúlason. Nú stendur yfir umræða og afgreiðsla tillagna málefnanefndanna. Málefnanefnd efnahagslegrar endurreisnar vill að dregið verði úr vægi verðtryggingar í lánaviðskiptum og að leitað verði leiða til að auka framboð óverðtryggðra íbúðarlána. Eins að aukin stöðugleiki samfara aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði nýttur til að innleysa verðtryggðar skuldbindingar fyrir óverðtryggð evrubréf. Skiptar skoðanir eru þó á landsfundinum um verðtrygginguna og óvíst hver niðurstaðan verður. Áætlað er að fundinum ljúki um fjögurleytið í dag með stefnuræðu nýs formanns flokksins - Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem fékk rússneska kosningu í embættið í gær.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira