Skagamenn fengu skell á laugardagmorgun þegar Íslandsmeistarar FH komu í heimsókn í Akraneshöllina. FH-ingar sigruðu 7:2, en meistararnir komust í 0:3 fljótlega í leiknum og staðan í hálfleik var 1:5. Mörk Skagamanna skoruðu Jón Vilhelm Ákason og Guðjón Heiðar Sveinsson. Hjá FH-ingum skoruðu þeir sitthvora þrennuna Matthías Vilhjálmsson og nýliðinn Brynjar Benediktsson og Tryggvi Guðmundsson gerði eitt mark.
„Þetta var veruleg áminning fyrir okkur. Við vorum auðvitað að leika gegn sterkasta liðinu á Íslandi og þótt skellurinn hafi verið stór, er margt sem strákarnir geta lært af þessum leik. Það var slæmt að horfa upp á að flest mörkin sem FH skoraði komu eftir að við misstum frá okkur boltann á miðjunni og þeir brunuðu fram og skoruðu," sagði Bjarki Gunnlaugsson annar þjálfara Skagamanna eftir leikinn.
Bjarki sagði ÍA-liðið stefna að því að standa sig mun betur á móti FH-ingum þegar liðin mætast að nýju í Deildarbikarkeppni KSÍ 20. febrúar n.k.
Gunnar Sigurðsson, Dýrfinna og Þorgeir Jósefsson....
Ungt starfsfólk fyrirtækis á höfuðborgarsvæðinu sem fór í óvissuferð upp í Borgarfjörð á d...
Á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akranesi sem fram fór fyrir stuttu var samþykkt tillaga ...
Þjóðlagasveitin á Akranesi stendur fyrir tónleikum í sal FÍH við Rauðagerði í Reykjavík næ...
Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur land undir fót í vikunni og heldur í fundaferð um all...
Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, ...
Yfir 100 hundaeigendur á Akranesi komu saman til fundar í gærkvöldi í þeim tilgangi að end...
Meginþorri sóknarbarna í Stafholtsprestakalli hefur skrifað undir bænarskjal til biskups þ...
Fjórði þjóðfundurinn af átta, sem haldnir eru í landshlutunum, verður haldinn í Menntaskól...
Akurnesingar halda áfram sigurgöngu sinni í æfingaleikjum á undirbúningstímabilinu í fótbo...
Vilhjálmur Birgisson sá ástæðu til að tilkynna á heimasíðu VLFA að hann væri ekki að fara ...
Stjórnir Landssambands útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasambandsins, Sjómannasambandsin...
Breiðafjarðarfléttan, eða "Fléttan," er samstarfsverkefni ferðaþjónustuaðila á Snæfellsnes...
Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umferðareftirliti lögreglunnar á Akranesi...
Fyrir skömmu festi Umhverfisstofnun kaup á nýjum bíl til notkunar í Þjóðgarðinum Snæfellsj...
Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameist...
Hversu ánægð(ur) ertu með óflokksbundnu ráðherrana í ríkisstjórninni, Rögnu og Gylfa?