Haltu kjafti og vertu ţćg

Fréttablađiđ Fastir pennar 28. desember 2008 18:21
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson skrifar:

Enn erum við í jólaboðinu og biskupinn og allt hans hyski hefur sagt við okkur látlaust í stillilega rómnum alla jólahelgina: Verum stillt, verum stillt, rétt eins og fastahópar í jólamætingu þjóðkirkjunnar séu venjubundnir óróaseggir á þeim árstíma. Við sem heima sitjum erum til alls vís.

Og á annan kölluðu æðstuprestar sjálfsdýrkunar með samviskubiti söfnuð sinn í líkamsræktarstöðvarnar þangað sem fólk sækir stritið, sem finnst ekki heima við, og félagsskapinn við ókunnuga, sem eru þægilegri samvistum en heimilisfólkið með sínar þarfir: Völd clash eða var það Vörld krass?

Næst er að bíða lágkúrunnar í áramótaræðum stjórnmálaforingjanna, eins og þeir eru kallaðir, sem svo toppast á nýársdaginn sjálfan í nýjasta ákalli forsetans eftir vindátt: hvert blæs?

Eitt er víst: stormurinn hefur ekki enn skekið svo valdastólana að neinn sé úr þeim fallinn. Ráðamenn ætla sér að þumbast við og láta sína menn sitja áfram: seðlabankastjórnina og stjórana; fjármálaeftirlitið, forstjóra og stjórn; ráðherrar fjármála og viðskipta skulu sitja áfram enda raunar ósanngjarnt að þeir sendlar víki: nær væri að henda forsætisráðherra og utanríkisráðherra sem bera á endanum ábyrgðina á frjálshyggjurústunum áður en skipt verður um settið í kosningum sem þau skötuhjú virðast staðráðin í að láta ekki henda þjóðina fyrr en í lengstu lög.

Og frúin er tekin að ávarpa sjálfstæðismenn með orðfáum hótunum. Reyndar er óljóst um hennar eigið bakland: hvað ætla Samfylkingarmenn upp til hópa að láta lengi berja sig áfram í þunglyndislegan göngutúr með ráðvilltum sjálfstæðismönnum? Var þetta upphaf hinnar miklu sóknar jafnaðarstefnunnar? Hefur flokkurinn einhverja stefnu í Evrópumálinu annað en gefnar forsendur og almennt orðaða vinnutilhögun? Hver eru efnisatriðin?

Og hvað ætlar íhaldið að gera nú: einhverjir kallar eru teknir að þvaðra um gömlu gildin og eiga þá við annað en forna hyglunar- og þöggunarflokkakerfið, heim heildsalanna og Moggans: það eru gildi eins og heiðarleiki í viðskiptum og ábyrgð. Sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir! Hó hó hó segir jólasveinninn. Komdu úr skápnum!

Ekki hefur áður í sögu landsins horfið jafn snögglega grunnstoð undan félagshreyfingu eins og þegar frjálshyggjan skrapp út í tómið úr veröldinni kringum Valhöll, ekki einu sinni þegar flokkurinn missti kommúnismann og Kanann með örfárra ára bili. Nú er hátíð hinna forneskjulega trúarbragða sem eiga sér dygga fylgjendur í stjórnmálaflokkum, þá sem trúa á jólasveininn og ljúga til um fæðingu frelsara í Betlehem. Þeir safnast saman í hópa sem ætla að leiða almenning áfram á vegferðinni, að þessu sinni upp úr díki skuldanna sem hrekklaus almenningur lét gabba og ljúga sig útí. Burt frá gjaldþrota hugsjónum, ónýtum fyrirheitum og fagurgala stjórnmálahreyfinganna - en hvert? Hvert er best að láta teyma sig? Hvert er rétt að stefna?



Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök ţarf ađ sanna

Paul Larsson, prófessor viđ Lögregluháskólann í Ósló, ráđlagđi Íslendingum í samtali viđ F...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / / Haltu kjafti og vertu ţćg