Hér segir frá vondu fólki

Fréttablaðið Aðsendar greinar 22. nóvember 2008 07:00
Sighvatur Björgvinsson
Sighvatur Björgvinsson
Sighvatur Björgvinsson skrifar:

Í hartnær fjóra áratugi hef ég fylgst náið með störfum Alþingis og umfjöllun um Alþingi og alþingismenn í fjölmiðlum og orðræðum þar um meðal fólks. Stundum sem áhorfandi. Oftar sem þátttakandi. Á þeim árum hef ég átt samskipti og samleið með fjöldanum öllum af konum og körlum, sem starfað hafa á Alþingi, komið þar og farið.

Ég man þó ekki eftir öðru en sú skoðun hafi ávallt verið mjög eindregin; jafnvel ríkjandi; að alltaf hafi á þessu tímabili valist til setu á þjóðþinginu vont fólk, vanhæft og spillt og á allt of háum launum. Þannig hefur a.m.k. umræðan verið Þó fólk af þessu tagi hafi jafnan horfið á braut í talsverðum hópum ekki síðar en á fjögurra ára fresti hefur aldrei neitt skárra fólk komið í staðinn. Í heil fjörutíu ár. Merkileg sú þjóð sem aldrei getur valið sér nema vont fólk til starfa á löggjafarsamkomu sinni. Eins og sagt er þó að mikið sé til af hæfu og góðu fólki sem sé miklu betur til starfans fallið en það fólk, sem þjóðin hefur valið. Meira að segja sá stóri hópur fjölmiðlafólks, sem setið hefur á Alþingi, hefur ekkert reynst vera skárra fólk en aðrir.

Slík er ógæfa þjóðarinnar að meira að segja úr hópi mestu gagnrýnendanna hefur aldrei tekist að velja nema versta fólkið. Meira en tímabært að spurt sé hvort ekki sé rétt að menn hætti að velja sér löggjafarsamkomu með þessum hætti. Hvort ekki muni gefa miklu betri raun að þjóðþingið sé einfaldlega skipað þeim, sem skipa sig bara sjálfir? Er ekki orðið fullreynt að brúka kosningar? Þær skila engu nema vondu fólki. Ólánssöm er sú þjóð sem sjálf getur aldrei valið sér nema vont fólk til forystu.





Bönnum rotnu og spilltu flokkana!

Þá er það flokkakerfið. Það hefur nú alltaf verið rotið og gegnumspillt. Þó hefur þjóðin alltaf af og til verið að reyna að stofna nýja flokka. Ég man í svipinn eftir Lýðræðisflokknum, Þjóðvarnarflokknum, Borgaraflokknum, Bandalagi jafnaðarmanna, 0-flokknum og Þjóðvaka; nýjum flokkum sem þjóðin hafnaði. Gömlu flokkunum langlífu; Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi; sem nú eru dauðir. Íslandshreyfingunni, sem engu náði fylgi.

Af fimm stjórnmálaflokkum, sem nú sitja á Alþingi, er einn á táningsaldri; Frjálslyndi flokkurinn; og tveir á barnsaldri; Samfylkingin og Vinstri grænir. Þrátt fyrir allar þessar tilraunir til þess að virkja félagafrelsið til þess að stofna nýja stjórnmálaflokka hafa þeir alltaf reynst vera rotnir og gegnumspilltir. Er ekki orðið fullreynt? Er ekki kominn tími til þess hreinlega að banna þessa flokkastarfsemi? Og þá að sjálfsögðu í nafni lýðræðisins.

Það hefur svo sem verið gert bæði fyrr og síðar í öðrum löndum. Að banna stjórnmálaflokka. Í nafni lýðræðisins.





Burtu með þingræðið!

Og ríkisstjórnin! Hafa ekki allar ríkisstjórnir í landinu brugðist? Ekki man ég betur en sú skoðun hafi verið mjög ofarlega; jafnvel efst á baugi og mjög almenn í þessi fjörutíu ár. Þessar ríkisstjórnir hafa verið sagðar selja sjálfstæði þjóðarinnar a.m.k. fjórum sinnum í mínu fjörutíu ára pólitíska minni og geri aðrar ríkisstjórnir betur!

Að minnsta kosti jafnoft hafa þær verið skipaðar einstaklingum, sem þjóðarsálin jafnvel sakaði um landráð og landsölu. Svo ekki sé talað um svikarana, lygarana og ómerkingana.

Er nú ekki nóg komið? Er nú ekki fullreynt? Skipum utanþingsstjórn! Hvað er nú það? Það er jú stjórn skipuð fólki sem þjóðin hefur ekki kjörið á þing! Sum sé góðu fólki. En sú stjórn getur ekkert gert ef hún nýtur ekki stuðnings þingsins. Það er sú skipan mála, sem við Íslendingar höfum og kallast þingræði! Virkilega?!? Þá afnemum við þetta þingræði. Förum barasta fylktu liði inn í Alþingishúsið og hendum þessu þingliði út á götu. Lýðræðið þarf á því að halda!

Þetta á sér líka fordæmi frá öðrum þjóðum. Þar var það líka gert í nafni lýðræðisins.





Heimskan gegn vanhæfni og spillingu!

Á leiðinni í vinnuna í morgun hlýddi ég á unga menn ræða saman í útsendingu einnar útvarpsstöðvarinnar. Þeir töluðu til skiptis um lýðræði og lýðveldi og virtust halda að þau orð þýddu slíkt hið sama og hvorugt hafði hjá þeim þá merkingu, sem mér var kennt af vondu fólki að þau þýddu hvort um sig.

Þessir ungu menn voru að gefa þjóðinni ráð í þrengingum hennar í krafti þekkingar sinnar. Þeir höfðu auðheyrilega ekki haft jafn náin kynni af því sem vont fólk aðhefst og vesalingurinn ég í mínu fjörutíu ára brambolti innan um slíkt fólk og þau heimskulegu viðhorf, sem þar eru höfð að leiðarljósi. Heimskan, sem minn gamli vinur og félagi Vilmundur Gylfason sagði að væri áttunda dauðasyndin.

Vonandi bætist nú sú höfuðsynd, heimskan, ekki ofan á spillingu og vanhæfni þess vonda fólks, sem þjóðin hefur valið úr hópi sínum til þess að leiðsegja sér það sem af er lýðveldistímanum. Fyrr má nú rota en dauðrota!

Höfundur er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður.




Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Hér segir frá vondu fólki