Blekkingar Andra Snæs

Fréttablaðið Aðsendar greinar 07. nóvember 2008 03:13
Tómas Már Sigurðsson
Tómas Már Sigurðsson
Tómas Már Sigurðsson skrifar:

Andri Snær Magnason birti grein í Fréttablaðinu laugardaginn 18. október, þar sem hann ræðir um útflutningstekjur af áli, einkum frá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Þar ræðir hann meðal annars um það sem hann kallar „alvarlegar blekkingar" sem beitt sé, þegar sagt er að útflutningstekjur fyrir ál sem flutt er út frá Fjarðaáli séu 70 milljarðar íslenskra króna. Sjálfur gerir Andri Snær sig sekan um stórfelldar blekkingar í greininni og ekki stendur steinn yfir steini í röksemdafærslu hans.

Markaðsátak Andra Snæs vegna væntanlegrar kvikmyndar hans um Draumalandið er greinilega hafið. Ekki er annað hægt en að óska skáldinu til hamingju með að hafa tekist að nýta hugmynd sína til hins ýtrasta um að beita aðferðum áróðurstækni til að ráðast gegn einni mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar. Spunaverkefnið hófst með útkomu bókarinnar Draumalandsins, í kjölfar hennar var farið í fyrirlestraherferð, stofnaður stjórnmálaflokkur, gefið út borðspil, samið leikrit, bókin gefin út erlendis og nú er kvikmynd væntanleg.

Því miður hafa íslensk orkufyrirtæki, álfyrirtæki, verkfræðistofur og sá mikli fjöldi annarra íslenskra fyrirtækja sem hafa tekjur sínar af því að þjónusta þennan geira, til þessa ekki andæft málflutningi Andra Snæs af nægjanlegum krafti. Þörf er á auknu upplýsingaflæði frá þessum aðilum í framtíðinni.





Útflutningstekjur eru einfalt hugtak
En aftur að grein Andra Snæs í Fréttablaðinu. Hann vill ekki tala um útflutningstekjur því þær gefi ranga mynd af þeim tekjum sem eftir verða í landinu af útflutningi áls. Hugtakið útflutningstekjur var ekki fundið upp á skrifstofum Alcoa eða af fjölmiðlum. Útflutningstekjur eru hugtak sem notað er í allri umræðu um efnahagsmál um allan heim. Hagstofan safnar saman og greinir upplýsingar um útflutningstekjur. Orðið er mjög lýsandi því útflutningstekjur eru einfaldlega þær tekjur sem fyrirtæki sem starfrækt eru í landinu hafa af því að selja vörur sínar og þjónustu til erlendra aðila. Það er ekki flóknara en svo. Það er hins vegar ekki einfalt mál að reikna út hvaða áhrif útflutningur einstakra fyrirtækja hefur á þjóðarbúskapinn. Andri Snær lætur það ekki aftra sér og segir að einföld þekking á heimilisbókhaldi nægi.



9,5 milljarðar í innlend aðföng
Andri Snær gefur sér að 400 verkamenn starfi hjá Alcoa Fjarðaáli og meðallaun þeirra séu um fimm milljónir á ári. Fjöldinn er ekki fjarri lagi þó að rétt sé að um 450 manns með fjölbreytta menntun og reynslu starfi hjá fyrirtækinu og meðallaun þeirra séu nokkuð yfir þeirri upphæð sem hann gefur sér. Alvarlegra er að hann gerir ekki ráð fyrir að nokkur launatengd gjöld séu greidd af laununum. Miðað við forsendur Andra Snæs er þessi tala því rúmlega þrír milljarðar króna, en ekki um tveir milljarðar eins og hann heldur fram.
Hann telur heldur ekki með störf hjá verktökum og öðrum aðilum sem þjónusta Alcoa Fjarðaál, en við rekstur fyrirtækisins er lögð áhersla á að útvista ýmsa stoðþjónustu. Yfir 300 verktakar starfa fyrir Fjarðaál á álverslóðinni og mjög varlega áætlað má ætla að fyrirtækið hafi skapað um eitt þúsund störf á landinu. Hér má nefna störf hjá verkfræðistofum, skipafélögum, vélsmiðjum, hugbúnaðarfyrirtækjum, endurvinnslufyrirtækjum og svona mætti lengi telja.
Í greininni ályktar Andri Snær út í bláinn að kaup á innlendum aðföngum vegna starfsemi Alcoa Fjarðaáls, fyrir utan raforku, nemi um einum milljarði króna. Hið rétta er að þessi upphæð er um níu og hálfur milljarður króna. Þar skeikar átta og hálfum milljarði króna. Inni í þessari tölu eru greiðslur til fjölmargra verktaka fyrirtækisins.



Skattgreiðslur í samræmi við lög
Andri Snær segir að árið 2007 hafi íslenskur áliðnaður greitt 1,5 milljarð króna í skatt og að Alcoa greiði aðeins 5% skatt af arði. Í þessu sambandi er mikilvægt að benda á að ástæða þess að álfyrirtækin greiða ekki mikinn tekjuskatt er að þau hafa staðið í miklum fjárfestingum á Íslandi undanfarin ár. Fjárfesting Alcoa í álverinu í Reyðarfirði nemur á annað hundrað milljörðum króna síðustu fjögur árin. Þessi fjárfesting er afskrifuð á ákveðnum tíma og afskriftir eru taldar með kostnaði samkvæmt íslenskum skattalögum. Tekjuskatthlutfall Fjarðaáls er hins vegar 15% eins og annarra íslenskra fyrirtækja en Andra Snæ finnst engin ástæða til að taka það fram. Skattur af arði sem greiddur er til hluthafa er hins vegar 5%. Það hlutfall er í samræmi við það sem almennt tíðkast um arðgreiðslur til hluthafa í ríkjum sem Ísland hefur gert tvísköttunarsamninga við.



Heildarstuðningur 0,49% en ekki 3,0%
Fullyrðingin um að Alcoa hafi fengið milljarða króna styrk frá ríkinu er lífseig, en ríkið hefur aldrei veitt beinan styrk til álversins í Reyðarfirði eins og Andri Snær gefur í skyn. Líklega er Andri Snær að vísa til útreikninga Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem taldi að ákvæði í fjárfestingarsamningi um iðnaðarmálagjald, fasteignaskatt, eignaskatt og fleiri atriði jafngiltu heildarstuðningi við verkefnið upp á 34,3 milljónir Bandaríkjadala til fjörutíu ára, sem er um 3% af stofnkostnaði. ESA gerði ekki athugasemdir við þetta enda ljóst að mörg önnur lönd bjóða fyrirtækjum mun meiri ívilnanir en Ísland til að laða að sér stórar erlendar fjárfestingar.
Vert er að geta þess að frá og með árinu 2008 hefur sveitarfélagið Fjarðabyggð lækkað fasteignaskatt á öllum fyrirtækjum í sveitarfélaginu niður í 1% og eignaskattur hefur verið felldur niður á öllum atvinnurekstri á Íslandi. Eftir standa þá 5,6 milljónir Bandaríkjadala til fjörutíu ára, sem eru um 17 milljónir króna á ári, miðað við núverandi gengi, eða um 0,49% af áætluðum stofnkostnaði árið 2003. Samkvæmt byggðareglum ESA hefði slíkur stuðningur mátt nema allt að 17%.
Vegna viðskiptahagsmuna er orkuverðið sem samið var um á milli Landsvirkjunar og Fjarðaáls ekki gefið upp en eins og kemur fram í ágætri grein Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Landsvirkjunar, í Fréttablaðinu þriðjudaginn 21. október síðastliðinn eru þær upphæðir sem Andri heldur fram fjarri öllu lagi. Jafnvel við núverandi álverð, sem hefur lækkað um 35% frá því í sumar, má gera ráð fyrir að Landsvirkjun muni borga Kárahnjúkavirkjun niður hraðar en gert var ráð fyrir í upphafi. Í þessu samhengi er einnig rétt að benda á að jafnvel þó að hann hefði rétt fyrir sér í því að allar greiðslur til Landsvirkjunar rynnu beint úr landi, gleymir hann að taka fram að á móti kemur eignamyndun í virkjunum hér á landi. Það er þó fjarstæða að gera ráð fyrir því að allar tekjur Landsvirkjunar af orkusölu fari í að greiða erlendar skuldir og enn fjarstæðukenndara er að gera ráð fyrir að sjávarútvegur og ferðaþjónusta séu skuldlausar greinar við erlenda lánardrottna. Þessar greinar eru þó mjög mikilvægar íslensku atvinnulífi, ekki síður en áliðnaðurinn.



Yfir þriðjungur tekna eftir á Íslandi
Iðnaðarráðherra svaraði nýlega á Alþingi fyrirspurn um framlag áliðnaðarins til þjóðarbúsins. Í svari hans kom fram að áætla megi að um þriðjungur tekna álveranna á Íslandi verði eftir í landinu. Óhætt er að fullyrða að það sé mjög varlega áætlað. Þær tölur sem Andri Snær heldur fram eru hins vegar meira og minna rangar og hann leyfir sér að saka aðra um blekkingar.
Höfundur er forstjóri Alcoa á Íslandi.


Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Blekkingar Andra Snæs