Óforsjálni og heimskreppa 15. október 2008 06:00 Allt ferli á sér upphaf og endalok. Þannig er mannsævin ferli sem byrjar í vöggu og endar í gröf. Svo fer oft um tiltektir manna, áform og athafnir að allt sýnist blómstra um hríð, en missir smám saman þróttinn og endar með því að detta út af rólega eða steypast fyrir björg með ósköpum. Sú margumtalaða „útrás" íslenskra fésýslumanna er ferli af þessu klassiska dæmi. Spurja má hvar vagga þessa tiltækis stóð, en endalokunum er auðvelt að finna stað. Að mörgu leyti finnst mér rétt að miða upphafið við málflutning samtaka iðnrekenda haustið 1987, þegar talsmenn þeirra gerðu kröfu til þess að Íslendingar sæktu um aðild að Evrópubandalaginu og opnuðu þeim aðgang til þess að flytja fé sitt út á evrópskan fjármálamarkað. En fé sínu höfðu iðnrekendur safnað upp á haftatímum og urðu margir vel fjáðir. Þessi krafa íslenskra auðmanna var uppfyllt með samningi um e.k. aukaaðild að Evrópusambandinu 1993 og kallað "Evrópska efnahagssvæðið", EES. Allt átti þetta að verða íslenskri þjóð til efnalegrar farsældar og frægðar í útlöndum, en hefur nú endað í gengisfalli, fjármálakreppu, bankahruni, ofurháum ríkisábyrgðum, sárum áhyggjum og kvíða fólks heima fyrir, en vantrausti og háði erlendis. En nú vendi ég kvæði mínu í kross. Þegar öllu er á botninn hvolft eru Íslendingar hvorki hlálegri né ærulausari en ýmsar aðrar þjóðir, sem hrjáðar eru af kreppu og bankahruni. Útrásar- og útþenslukapitalismi heimsbyggðarinnar, knúinn af girndum og fégræðgi, er vitaskuld fyrirmynd íslenskra hugmyndasmiða um nýtískulegt íslenskt hagkerfi. Íslenskir stjórnmálamenn, fésýslumenn og allt eins talsmenn launþegasamtaka eru hugfangnir af afrekum heimskapitalismans. Skýrast kemur þessi tröllatrú á auðvaldið fram í ákefð ýmissa stjórnmálamanna (úr öllum stjórnmálaflokkum að kalla) og forustumanna atvinnurekenda og launþega að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Aukaaðildin (EES) nægir þeim ekki. Þessir menn eru blindir á þá staðreynd að Evrópusambandið er bandaríkjasamsteypa og krefst fullveldisafsals aðildarríkjanna því nánari sem tengslin eru. En eftir hverju eru menn að sækjast? Kapitalismi Evrópusambandsins og Bandaríkja Norður-Ameríku rorrar á óstyrkum grunni. Þar hrynja gamlir og grónir bankar og virtar fjármálastofnanir. Kreppan breiðist út um allan heim. Enginn heimshluti er ósnortinn af kreppunni. Og færa má til sanns vegar að hrun íslensku bankanna er í fullu samræmi við heimskreppuna. Íslenska útrásin, sem ætlaði að efla sig og lifa um eilífð í faðmlögum við heimskapitalismann varð fyrir þeirri tragisku raun að falla fyrir skollanum Hubris, hrokanum í sínum eigin hug. Ég fæ að vísu ekki séð að byggingameisturum skýjaborganna verði refsað að hegningarlögum. En þeir mættu fá sinn dóm í lýðræðislegum kosningum, þar sem því verður við komið. Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson Skoðun Breiðholt brennur Eðvarð Hilmarsson Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson Skoðun Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Haraldur Ólafsson Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Uppskera að vori Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Er menning stórmál? Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir skrifar Skoðun Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Leikskólamál eru forgangsmál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hefur allt sem þarf Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju að gera rekstraráætlun? Karl Sólnes Jónsson skrifar Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Mannréttindi sama hvað Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson skrifar Skoðun Ótímabundin ráðgjöf til ríkisstjórnar Snæbjörn Brynjarsson skrifar Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar Skoðun „Vitum ekkert hvað við erum að gera“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Allt ferli á sér upphaf og endalok. Þannig er mannsævin ferli sem byrjar í vöggu og endar í gröf. Svo fer oft um tiltektir manna, áform og athafnir að allt sýnist blómstra um hríð, en missir smám saman þróttinn og endar með því að detta út af rólega eða steypast fyrir björg með ósköpum. Sú margumtalaða „útrás" íslenskra fésýslumanna er ferli af þessu klassiska dæmi. Spurja má hvar vagga þessa tiltækis stóð, en endalokunum er auðvelt að finna stað. Að mörgu leyti finnst mér rétt að miða upphafið við málflutning samtaka iðnrekenda haustið 1987, þegar talsmenn þeirra gerðu kröfu til þess að Íslendingar sæktu um aðild að Evrópubandalaginu og opnuðu þeim aðgang til þess að flytja fé sitt út á evrópskan fjármálamarkað. En fé sínu höfðu iðnrekendur safnað upp á haftatímum og urðu margir vel fjáðir. Þessi krafa íslenskra auðmanna var uppfyllt með samningi um e.k. aukaaðild að Evrópusambandinu 1993 og kallað "Evrópska efnahagssvæðið", EES. Allt átti þetta að verða íslenskri þjóð til efnalegrar farsældar og frægðar í útlöndum, en hefur nú endað í gengisfalli, fjármálakreppu, bankahruni, ofurháum ríkisábyrgðum, sárum áhyggjum og kvíða fólks heima fyrir, en vantrausti og háði erlendis. En nú vendi ég kvæði mínu í kross. Þegar öllu er á botninn hvolft eru Íslendingar hvorki hlálegri né ærulausari en ýmsar aðrar þjóðir, sem hrjáðar eru af kreppu og bankahruni. Útrásar- og útþenslukapitalismi heimsbyggðarinnar, knúinn af girndum og fégræðgi, er vitaskuld fyrirmynd íslenskra hugmyndasmiða um nýtískulegt íslenskt hagkerfi. Íslenskir stjórnmálamenn, fésýslumenn og allt eins talsmenn launþegasamtaka eru hugfangnir af afrekum heimskapitalismans. Skýrast kemur þessi tröllatrú á auðvaldið fram í ákefð ýmissa stjórnmálamanna (úr öllum stjórnmálaflokkum að kalla) og forustumanna atvinnurekenda og launþega að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Aukaaðildin (EES) nægir þeim ekki. Þessir menn eru blindir á þá staðreynd að Evrópusambandið er bandaríkjasamsteypa og krefst fullveldisafsals aðildarríkjanna því nánari sem tengslin eru. En eftir hverju eru menn að sækjast? Kapitalismi Evrópusambandsins og Bandaríkja Norður-Ameríku rorrar á óstyrkum grunni. Þar hrynja gamlir og grónir bankar og virtar fjármálastofnanir. Kreppan breiðist út um allan heim. Enginn heimshluti er ósnortinn af kreppunni. Og færa má til sanns vegar að hrun íslensku bankanna er í fullu samræmi við heimskreppuna. Íslenska útrásin, sem ætlaði að efla sig og lifa um eilífð í faðmlögum við heimskapitalismann varð fyrir þeirri tragisku raun að falla fyrir skollanum Hubris, hrokanum í sínum eigin hug. Ég fæ að vísu ekki séð að byggingameisturum skýjaborganna verði refsað að hegningarlögum. En þeir mættu fá sinn dóm í lýðræðislegum kosningum, þar sem því verður við komið. Höfundur er fyrrverandi ráðherra.
Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar
Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar
Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun