FH er Íslandsmeistari í knattspyrnu karla eftir ævintýralega lokaumferð í Landsbankadeildinni í dag.
Keflavík var með bikarinn í sínum höndum lengst af í dag, sér í lagi eftir að Símun Samúelsen kom Keflvíkingum yfir gegn Fram. En í síðari hálfleik skoruðu Framarar tvívegis en þar voru Almarr Ormarsson og Hjálmar Þórarinsson að verki.
Á sama tíma unnu FH-ingar 2-0 sigur á Fylki í Árbænum en 1-0 sigur hefði dugað, þar sem Keflavík tapaði sínum leik. Hefði Keflavík gert jafntefli, hefðu FH þurft tveggja marka sigur.
Fram tryggði sér með sigrinum þriðja sæti deildarinnar, þó svo að KR hafi unnið Val, 1-0.
Vísir fylgdist náið með gangi mála hér að neðan og einnig á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Þar má lesa nánar um gang leikjanna.
Lýsing Vísis í dag:
16:00 Leikirnir hefjast
Nú eru leikirnir hafnir. Þangað til að eitthvað breytist eru Keflvíkingar að verða Íslandsmeistarar og Fram á leið í UEFA-bikarkeppnina með FH.
16:40 Valur - KR 0-1
Óskar Örn Hauksson er búinn að skora fyrir KR og er það fyrsta markið í þessum þremur mikilvægu leikjum. Það þýðir að KR er komið upp í þriðja sæti deildarinnar - Evrópusætið.
16:46 Hálfleikur
Kominn hálfleikur í þessa þrjá leiki. Það er greinilega mikil spenna í þessum þremur leikjum því aðeins hefur eitt mark verið skorað. Þetta verður greinilega mikil taugaspenna allt til loka.
17.08 Keflavík - Fram 1-0
Símun Samúelsen hefur komið Keflvíkingum yfir gegn Fram sem þýðir að Keflvíkingar eru komnir með níu fingur á titilinn. Þar að auki er staðan enn markalaus í Árbænum.
17.09 Fylkir - FH 0-1
Matthías Vilhjálmsson svarar marki Keflvíkinga með marki í Árbænum. FH komið í 1-0 en á meðan að Keflvíkingar vinna sinn leik breyta úrslit þessa leiks engu.
17.21 Keflavík - Fram 1-1
Ja hérna. Nú er komin spenna í þetta. Almarr Ormarrsson hefur jafnað metin með sinni fyrstu snertinu í Keflavík fyrir Fram. FH-ingar fögnuðu mikið á Fylkisvelli enda FH-ingar aftur í bullandi séns. En FH þarf að skora annað mark til viðbótar.
17.33 Keflavík - Fram 1-2
Þó svo að FH-ingar ná ekki að bæta við marki í Árbænum fagna FH-ingar marki Hjálmars Þórarinssonar í Keflavík. Þetta þýðir einfaldlega að FH er meistari miðað við núverandi stöðu. Þetta mark þýðir einnig að Fram er búið að endurheimta 3. sæti deildarinnar.
17.34 Fylkir - FH 0-2
Til að strá salti í sár Keflvíkinga var Guðmundur Sævarsson að koma FH í 2-0 í Árbænum. Þetta þýðir að Keflavík þarf að skora tvö á síðustu tíu mínútum leiksins.
17.47 Leik lokið í Keflavík
Leiknum er lokið í Keflavík. Það þýðir að FH-ingar mega fá á sig mark en samt verða þeir Íslandsmeistarar.
17.50 FH er Íslandsmeistari!
Leiknum er lokið í Árbænum. FH er Íslandsmeistari! Ótrúlegt.
Lokastaðan í deildinni:
1. FH 47 stig (+25 í markatölu)
2. Keflavík 46 (+23)
3. Fram 40 (+10)
4. KR 39 (+15)
5. Valur 35 (+6)