Jónasi svarað

Fréttablaðið Fastir pennar 23. september 2008 07:00
Jónasi svarað
Þorsteinn Pálsson skrifar:

Fyrstu viðbrögðin við yfirmannaskiptum á fréttastofum ljósvakamiðlanna í síðustu viku voru þau að bankastjórn Seðlabankans fól formanni sínum að koma fram á Stöð 2 en ekki í sjónvarpi ríkisins til að hafa uppi andsvör við framlagi Jónasar Haralz og fjölda annarra sérfræðinga og forystumanna í stjórnmálum og atvinnulífi til umræðunnar um peningamálastefnuna.

Að lögum ber bankastjórn þriggja embættismanna sameiginlega ábyrgð á öllum ákvörðunum og yfirlýsingum Seðlabankans en formaðurinn er talsmaður þeirra.

Embættisferill Jónasar Haralz er alkunnur. Minna hefur verið fjallað um að hann var um tíma formaður efnahagsnefndar Sjálfstæðisflokksins. Í því hlutverki smíðaði hann að beiðni Geirs Hallgrímssonar einhverja mikilvægustu tímamótayfirlýsingu flokksins um endurreisn í anda frjálshyggju. Sú yfirlýsing var helsti hugmyndafræðilegi grundvöllur þeirra umbreytinga á efnahagsstjórn sem smám saman urðu að veruleika á níunda og tíunda áratugnum í fjórum mismunandi samsettum ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins. Ósmá áhrif.

Það mat sem fram kom nýlega í greinum Jónasar Haralz og Einars Benediktssonar að hagsmunum Íslands yrði betur borgið með því að taka upp evru en að viðhalda óbreyttri stefnu í peningamálum hefur vissulega sett strik í umræðuna. Í greinum þeirra kom ennfremur fram ósk um að Seðlabankinn gerði ítarlega grein fyrir árangri peningamálastefnunnar sem fylgt hefur verið frá aldamótum. Fallast verður á að slíkur málefnalegur rökstuðningur af hálfu Seðlabankans væri gagnlegur fyrir áframhald umræðunnar.

Svar bankastjórnarinnar sem nú liggur fyrir í nefndu sjónvarpsviðtali var einkar skýrt og afdráttarlaust. Bankastjórarnir, einn fyrir alla og allir fyrir einn, líta einfaldlega svo á að slíkur málflutningur sé „lýðskrum" og á honum hafi menn á þeim bæ bæði „skömm" og „fyrirlitningu". Sannarlega er ekki unnt að kvarta yfir því að svör hafi ekki fengist við hógværri beiðni.

Þegar þetta svar liggur fyrir af hálfu bankastjórnarinnar vaknar hins vegar upp sú spurning hvort það byggi á mati hagsviðs bankans. Svo þarf ekki að vera þótt eðlilegt sé að ganga út frá því sem sjálfsögðum hlut í svo veigamiklu máli. Vel má vera að hagsviðið hafi verið of svifaseint að bregðast við en bankastjórnin hafi ekki viljað draga þjóðina á svari. Það er skiljanlegt eins og staða umræðunnar er en vekur þó upp álitamál.
Rétt er að minna á að aðalhagfræðingur Seðlabankans hefur í blöðum heima og erlendis í rúm tvö ár lýst þeirri skoðun að ávinningur þess að halda uppi sjálfstæðum gjaldmiðli sé minni en enginn og auki fremur á sveiflur í þjóðarbúskapnum en að draga úr þeim. Hvernig sem undirbúningi að svari bankastjórnarinnar var háttað bendir efni þess ótvírætt til að bankinn þurfi að taka á innri málum. Það er spurning um traust og trúverðugleika í bráð og lengd.

Bankastjórn Seðlabankans er eftir lögum sjálfstæð og óháð ríkisstjórn. Lögin mæla þó fyrir um að bankastjórnin skuli ekki sinna öðrum viðfangsefnum en þeim sem samræmast hlutverki seðlabanka. Spurt hefur verið hvort bankastjórnin hafi farið út fyrir verksvið sitt í þessu svari og inn á pólitískan vettvang. Að lögum ber ríkisstjórnin ábyrgð á að slíkt gerist ekki.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / / Jónasi svarað