Að varðveita og miðla menningu

Fréttablaðið Aðsendar greinar 24. júlí 2008 03:13
Bjarki Sveinbjörnsson
Bjarki Sveinbjörnsson
Tilefni þessara skrifa er grein Páls Baldvins Baldvinssonar í Fréttablaðinu 18. júlí undir heitinu Nýjar ríkisstofnanir boðaðar. Þar sem undirritaður er í hópi þeim sem vann að undirbúningi þessa máls, fyrst í samstarfi við Einar Odd Kristjánsson, og eftir lát hans, í anda þeirra hugmynda sem þar urðu til, vil ég skýra nokkur „ætluð" atriði sem þar koma fram.

1. Páll vitnar í samantekt Önnu Jensdóttur sem kynnt var á „þingi norrænna háskólatónlistarsafna í sumar". Viðburðurinn var raunar þing norrænna háskólatónlistarbókasafna – ekki tónlistarsafna. Bókasafn sem slíkt gæti orðið deild í tónlistarsafni.
2. Sú „ætlun" að byggja eigi sérstakt stórhýsi undir þessi bóka- og hljóðsöfn hefur aldrei verið rædd. Unnið er út frá hugmyndum um samstarf við nefnd söfn – veita þeim þjónustu.
3. Allir eru sammála um að brýnt sé að yfirfæra segulbanda- og lakkplötusafn Ríkisútvarpsins yfir á stafrænt form. Í nokkur ár hefur einn tæknimaður í hálfu starfi unnið við að yfirfæra brot af lakkplötunum. Hér þarf að gera heljarátak. Hvergi hefur komið fram að Ríkisútvarpið telji sér fært að gera slíkt átak.
4. Aldrei hefur verið nefnt að „taka" eigi efnið úr varðveislu RÚV, né að rýra hlutverk stofnunarinnar á þeim vettvangi – þvert á móti – varðveita á efnið á gagnadiskum RÚV – aðeins er talað um að umrædd stofnun í Kópavogi taki að sér verkefnið, sem og önnur verkefni af sama toga fyrir önnur söfn í landinu. Eru söfn í landinu í dag að afrita „rotnandi" segulbandsspólur – jafnvel vaxhólka eða stálþráð – yfir í stafrænt form?
5. Segja má, að langt yfir 90% af tónlistarupptökum á vegum RÚV fari fram innan 6 kílómetra radíusar frá Efstaleitinu. Hægt er að búa til langan lista yfir þær hátíðir og viðburði sem fram fara á landinu öllu, sem aldrei koma fram í fjölmiðlum öðru vísi en sem fréttatilkynning.
6. Víst er það, að til er sendakerfi í opinberri og einkaeigu. Til hvers nota menn það? – Sjá menn fyrir sér að Bylgjan fari að senda út tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, sjá menn fyrir sér að Rás 2 sendi út upptökur frá Kóramótinu í Mývatnssveit, sjá menn fyrir sér að FM957 sendi út upptökur áhugaleikhúsa á landsbyggðinni. Sjá menn fyrir sér að dagskrá Rásar 1 rými slíkar upptökur; hvað þá geti sent út efni úr segulbandasafninu nema spólu og spólu? Til hvers að færa segulbandasafn ríkisútvarpsins yfir í stafrænt form ef ekki á að nota það? Hefðu menn ekki gaman af að heyra úrval af tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gegnum söguna? Sjá menn það fyrir sér á útvarpi Sögu? Eru þessar hugmyndir ógn, eða eins og Páll Baldvin orðar það: hörð samkeppni við sjálfsprottna starfsemi?
7. Ríkisútvarpið á upptökubíla – annan svo gamlan að hann ætti heima á fornbílasafni. Er honum ekki ætlað á aðra staði en þá þar sem hægt er að láta „renna í gang". Sjá menn fyrir sér að senda slíkan upptökubíl á landsbyggðina? Eftir því sem ég best veit, hefur „alvöru" upptökubíll aldrei verið staðsettur á landsbyggðinni. Er honum ætlað hlutverk í öll stærri verkefni. Þá hefur verið nefnt, að víða um land hafa sprottið upp lítil stúdíó, sem geta margt. Má vel hugsa sér samstarf við slíka aðila um upptökur á „minni" atburðum – í rauninni full ástæða til.
8. Róndórásin var fyrir nokkrum árum búin til á einu skrifborði, af einum starfsmanni RÚV (með tæknihjálp) og keyrð þaðan þannig í nokkur ár. Kostnaðurinn lá í tölvubúnaði. Var hún hugsuð sem liður í þróunarvinnu, tilraunir með DAB (Digital Audio Broadcasting) útsendingar, sem samtímis er send út á FM (sem fólk heyrir) til samanburðar. Ég þekki engan sem á DAB tæki – í rauninni var ekkert unnið frekar með þessa tilraun, en full ástæða er til þess, þar sem þessi tækni hefur verið þróuð og kallast nú DAB+. Væri hægt að sjá nánast öllum útvarpsrásum landsmanna fyrir slíkum sendum. (sjá: worlddab.org) Hugmyndir byggja á því að styrkja Rondórásina í samvinnu við RÚV til að gegna því menningarhlutverki sem að framan er nefnt. Hefur þessi hugmynd verið kynnt öllum helstu lykilstarfsmönnum RÚV, og í rauninni unnin í samvinnu og með aðstoð nokkurra þeirra, einkum á tæknisviðinu.

Mönnum á fyrir löngu að vera hætt að bregða, þó ráðamenn Kópavogsbæjar taki frumkvæði í því að vinna að varðveislu og miðlun menningar – stofnanir bæjarins tala þar sínu máli. Næsti stóráfangi á því sviði er varðveisla og miðlun tónmenningar í landinu – OG – takið eftir – í samvinnu við þær opinberu stofnanir sem gegna varðveisluskyldu á því sviði. Hafa fundir þegar verið haldnir um slíka samvinnu milli forstöðumanna eða fulltrúa safnanna. Hér á ekki að troða neinum um tær, heldur styrkja þann þátt sem svo vanræktur hefur verið – sögu forsöngvarans til hljómsveitarstjórans.

Höfundur er tónlistarfræðingur.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Nýtt er orðið til

Í hinni helgu bók, Biblíunni, segir á einum stað: „…hið liðna varð að engu, ný...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Til Landspítalamanna

Félagar mínir á Landspítalanum, Jóhannes Gunnarsson og Björn Zoëga, svöruðu nýlega grein u...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Að fórna góðum árangri

Starfsemi sérdeildar fyrir einhverfa í Hamraskóla hefur byggst upp frá árinu 1996 og átti ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Ætlar þú að þrýsta á hnappinn?

Fyrir Alþingi liggur rammaáætlun um nýtingu vatnsafls til raforkuframleiðslu í landinu. Ma...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 11:28

Að viðurkenna vandann

Ég hef áður lýst því hvernig 5 afborganir af litlu láni sem ég var að semja um við Arionba...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / / Að varðveita og miðla menningu