- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst segir það ekki hafa verið mistök að vísa nemendunum sem urðu uppvísir að fíkniefnamisferli frá skólanum, þrátt fyrir að komið hafi í ljós að einn þeirra væri ekki eigandi fíkniefnanna. Í síðustu viku felldi úrskurðarnefnd í kærumálum háskólanema ákvörðunina um brottrekstur eins þeirra úr gildi. Ágúst segir skólann vera að skoða það mál.
Í febrúar á þessu ári réðst lögreglan með hjálp sérsveitar ríkislögreglustjóra til atlögu í þremur íbúðum á Bifröst. Þrír nemendur voru handteknir grunaðir um að hafa fíkniefni undir höndum. Eftir mikla leit fundust 0,5 grömm af fíkniefnum. Daginn eftir voru nemendurnir, tveir piltar og ein stúlka, reknir úr skólanum.
Í íbúð annars piltanna fannst lítilræði af fíkniefnum sem hann kannaðist ekki við. Tæplega viku síðar kom samnemendi hans á lögreglustöðina í Borgarnesi, að eigin frumkvæði, og játaði að eiga fíkniefnin.
Þrátt fyrir þessar upplýsingar staðfesti háskólaráð ákvörðun rektors um að vísa piltinum frá skólanum. Í kjölfarið kærði hann úrskurðinn til úrskurðarnefndar kærumála háskólanema.
„Nei, nei, þessi ákvörðun var tekin með réttmætum hætti og ekkert athugavert við hana," segir Ágúst aðspurður um hvort það hafi verið mistök að reka piltinn úr skólanum.
Hann bendir á að tvö af þessum tilfellum hafi farið fyrir nefndina og í öðru þeirra hafi ákvörðun háskólaráðs verið staðfest.
„Í hinu tilfellinu var það ekki gert vegna formgalla við ákvörðun okkar. Við erum að skoða það mál," sagði Ágúst sem að öðru leyti vildi lítið tjá sig um málið.
Í grein sem Einar Hugi Bjarnason lögmaður piltsins skrifar í Fréttablaðið í dag fer hann yfir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar.
„Í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar er tekið fram að þegar ákvörðun háskólaráðs var tekin hafi rannsókn lögreglu vart verið hafin og ekki hafi verið tekin eiginleg lögregluskýrsla af kæranda. .........að mati nefndarinnar hefði þurft að rannsaka aðild kæranda að málinu betur áður en ákvörðun um brottvísun úr skóla var tekin og beita þá vægari úrræðum en því sem var mest íþyngjandi fyrir kæranda, hafi skólinn talið ástæðu til að grípa til viðurlaga gagnvart kæranda," skrifar Einar í greininni.
Einnig kemur fram í grein Einars að ákvörðunin sem nú hefur verið felld úr gildi hafi verið gríðarlega íþyngjandi fyrir piltinn og kippti fótunum undan ungum manni sem hafði miðað allar sínar framtíðaráætlanir við það að ljúka námi við Háskólann á Bifröst.
„Kærandi varð auk þess fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni vegna brottvísunarinnar svo ekki sé minnst á þá andlegu erfiðleika sem hann og fjölskyldu hans hafa þurft að glíma við í kjölfarið."
Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ Bankastrćt...
Hollendingar ćtla ekki ađ koma í veg fyrir ađ Íslendingar geti hafiđ ađildarviđrćđur viđ E...
Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna, sem unnin voru á fj...
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa veriđ bođađir til samningafundar viđ vinnuveitendur hjá rí...
Sjálfstćđisflokkurinn er á ný langstćrsti stjórnmálaflokkur landsins, samkvćmt niđurstöđum...
„Nćstu niđurskurđarskref, vegna ársins 2011, verđa miklum mun erfiđari en ţađ sem viđ höfu...
Sjálfstćđisflokkurinn bćtir viđ sig miklu fylgi á kostnađ stjórnarflokkanna samkvćmt niđur...
Alţjóđa dýraverndunarsjóđurinn (IFAW) hefur kćrt útflutning á hvalaafurđum frá Íslandi til...
Tveir menn sitja nú í gćsluvarđhaldi í tengslum viđ innflutning nćr eins lítra af fljótand...
Ríkissaksóknari hefur ákćrt fésbókarmanninn svokallađa fyrir ýmis brot, ţar á međal gróf k...
Ţórđur Már Jónsson, laganemi og varaţingmađur Samfylkingarinnar, fer fyrir nýstofnuđum sam...
„Ţetta er algjörlega forkastanlegt," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, ţingmađur Samfylk...
Landsţing Frjálslynda flokksins verđur sett á Hótel Cabin í Reykjavík síđdegis. Um hundrađ...
Sextugur karlmađur situr nú í gćsluvarđhaldi til 7. apríl eftir ađ hann var handtekinn viđ...
Bćjarráđ Hafnarfjarđar telur Alcan á Íslandi enn ekki hafa skýrt nćgilega vel vilja sinn ...
Fjarskipti viđ umheiminn hefđu getađ lamast ađ miklu leyti ef búnađur skemmdarva...
Ert ţú ánćgđ(ur) međ útspil ríkisstjórnarinnar til lausnar skuldavanda heimilanna?