Ísbjörninn sem gekk á land fyrir norðan í síðustu viku er að öllum líkindum eldri en menn höfðu áður talið. Gróðurleifar fundust í maga hans við krufningu en hvorki kjöt né fiskur. Forstöðumaður Náttúrufræðistofu á Norð-vesturlandi segir að rétt hafi verið að aflífa dýrið.
Ísbjörninn var krufinn í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki í gær. Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu á Norðvesturlandi, segir að líklegast sé að dýrið hafi gengið á land á utanverðum Skaga, en þá var rekísspöngin um 40 - 60 sjómílur frá landi. Þegar björninn var vigtaður í gær reyndist hann vera 216 kíló sem undir venjulegum kringumstæðum benti til að dýrið væri ungt.
Hins vegar voru tennur þannig slitnar að líkur eru á að um fullorðið karldýr sé að ræða en þau geta náð allt að sex til sjö hundruð kílóa þyngd, en það er þó misjafnt eftir stofnum. Þorsteinn segir að öllum sýnatökum hafi lokið í gær en það taki nokkurn tíma að rannsaka þau. Hann segist skilja að mörgum gremjist að dýrið hafi verið fellt en það sé ekki einfalt mál að deyfa ísbjörn og halda honum deyfðum.
Líkur eru á að ísbjörninn hafi verið búinn að vera á landi í að minnsta kosti sólarhring því eins og fréttablaðið Feykir greinir frá í dag sá níu ára stúlka björninn daginn áður en hann var felldur.
Samningar eru í burðarliðnum um risastóra kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Fjárfestingin næm...
Átján ára piltur hefur játað að hafa framið rán í matvöruverslun í Hlíðunum um kvöldmatarl...
Héraðsdómur dæmdi í dag karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell auk fj...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda nokkurra hluta sem sýnt þykir að séu stol...
Actavis hefur ákveðið að styrkja hjálparstarfið í kjölfar jarðskjálftans í Haítí um meira ...
Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. febrúar að kröfu lögreglun...
Í fyrramálið, miðvikudaginn 10. febrúar, verður stýribúnaður umferðarljósa á gatnamótum Nj...
Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í fo...
Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára óskilorðisbundið fangelsi fyrir að leggja eld að ...
Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, ...
Árni Páll Árnason gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í ...
Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áður Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glæpasa...
Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar furðar sig á að meirihlutinn hyggi...
Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sent út andmælabréf til þeirra einstaklinga í stjórnkerfinu...
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Svandís Svavarsdó...
Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameist...
Hversu ánægð(ur) ertu með óflokksbundnu ráðherrana í ríkisstjórninni, Rögnu og Gylfa?