Höfum við efni á að virkja ekki?

Fréttablaðið Fastir pennar 24. maí 2008 09:57
Höfum við efni á að virkja ekki?
MYND/Anton Brink
Björn Ingi Hrafnsson skrifar:

Nýlegt álit Skipulagsstofnunar um tvær fyrirhugaðar jarðvarmavirkjanir á vegum Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði hefur eðlilega vakið mikla athygli. Afleiðingar þess eru þegar orðnar sýnilegar með ákvörðun stjórnar Orkuveitunnar um að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar og slá á frest öllum frekari framkvæmdum á svæðinu.

Umhverfisverndarsinnar, hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á svæðinu og sveitarstjórnarmenn í Hveragerði fagna álitinu; sama gera ýmsir úr hópi kjörinna fulltrúa í stjórn OR og sjálfur umhverfisráðherrann. Undarlega lítið fer hins vegar fyrir öndverðum sjónarmiðum og því hljóta þær spurningar að vakna hvort orðið hafi mikilvæg stefnubreting í viðhorfum landsmanna til nýtingar auðlindanna.

Á tyllidögum er gjarnan vísað til afreka okkar Íslendinga í umhverfisvænni orkuframleiðslu. Forseti Íslands sagði í síðasta nýársávarpi sínu að almennt væri viðurkennt að Íslendingar hefðu náð heimsforystu um nýtingu jarðhitans og hann teldi brýnt að setja hér á laggirnar heimsmiðstöð alþjóðlegs samstarfs um þróun hreinnar orku. Auk hans hefur iðnaðarráðherra verið manna duglegastur að dásama jarðvarmavirkjanir og þingmenn jafnt sem sveitarstjórnarmenn hafa keppst við að lofa nýtingu jarðvarmans sem orkugjafa, ekki síst í stað „hefðbundinna" vatnsaflsvirkjana sem hafa orðið sífellt umdeildari vegna umhverfisáhrifa.

Þannig sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, fyrir þremur árum að eðlilegt væri að nýta virkjanasvæði sem búið væri að fara inn á og opna og átti þá við Hellisheiðarsvæðið og raunar Kröflusvæðið líka. Í sama streng hafa margir aðrir stjórnmálamenn tekið. Svo virðist hins vegar sem kaflaskil hafi orðið í þessum efnum með áliti Skipulagsstofnunar, þar sem lagst er gegn Bitruvirkjun vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. Forstjóri Orkuveitunnar hefur þannig sagt að í kjölfarið hljóti að þrengjast að byggingu jarðvarmavirkjana og starfsbróðir hans hjá Hitaveitu Suðurnesja hefur lýst undrun yfir álitinu, enda stefnir Hitaveitan að því að reisa umfangsmiklar virkjanir á háhitasvæðum á Reykjanesi, meðal annars í Krísuvík, þar sem búast má við að sjónarmið ferðamennsku og landslags geti einnig vegið þungt.

Undarlegt má telja að slík vatnaskil skuli ekki vekja meiri umræður og eftirtekt. Eru Íslendingar tilbúnir að setja til hliðar nýtingu orkulinda til orkuframleiðslu? Hefur farið fram rannsókn á þjóðhagslegum áhrifum slíkrar ákvörðunar á lífskjör okkar? Erum við reiðubúin, sérstaklega í því erfiða efnahagsumhverfi sem nú blasir við hér á landi, að takast á við þau neikvæðu áhrif á lífskjör og afkomu, sem fylgja því að afskrifa svo veigamikla þætti í auðlindanýtingu einnar þjóðar?

Fróðlegt væri að fá svör við einhverjum af þessum spurningum. Á meðan þau fást ekki og nýtt viðhorf Skipulagsstofnunar stendur, er staðan sú að aðrar þjóðar láta sig dreyma um umhverfisvæna virkjun jarðvarma til lengri framtíðar, meðan sú þjóð sem lengst hefur náð á þeirri braut hefur ákveðið með sjálfri sér að leggja frekari áform í þeim efnum til hliðar.


Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Höfum við efni á að virkja ekki?