Ölfusingar bitrir vegna Bitru Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. maí 2008 14:18 Ólafur Áki Ragnarsson.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Ölfusi, segist vera mjög hugsi yfir því hvernig mál jarðgufuvirkjana séu að þróast eftir að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í morgun einróma að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar. Ólafur segir það umhugsunarefni hvernig Íslendingar hafi hugsað sér að verða sér úti um orku í framtíðinni, hita upp heimilin og skapa sér atvinnu. „Okkur fjölgar hratt og við þurfum einhvern veginn að sjá okkur farborða í framtíðinni og öll þurfum við rafmagn og hita," sagði Ólafur í samtali við Vísi. Hann sagði ákvörðun Orkuveitunnar ef til vill ekki hafa svo mikil áhrif á sveitarfélagið sjálft heldur á landið í heild sinni. Þá sagðist Ólafur hafa átt von á því að málum lyktaði öðruvísi: „Ég átti von á því já. Ég taldi að vinna okkar og Orkuveitunnar hefði verið það faglega unnin og allrar ýtrustu nærgætni við náttúruna gætt að ég taldi það." Um rök Skipulagsstofnunar, sem meðal annars tefldi fram sjónarmiðum um veruleg neikvæð og óafturkræf áhrif Bitruvirkjunar á landslag, útivist og ferðaþjónustu, segist Ólafur hissa á að þau snúist svo mjög um áhrif á ferðamennsku: „Það koma upp undir 400 manns í nýju Hellisheiðarvirkjun á dag. Ég er mikill útivistarmaður og fer mikið um þetta svæði. Ég sé ekki fólk í stórum hópum á þessu svæði." Að lokum furðar Ólafur sig á framgöngu bæjarstjórnar Hveragerðis í málinu sem hafi náð að mynda ákveðna stemmningu sem erfitt sé að skilja „hér í Ölfusinu alla vega. Bitruvirkjun er um sex kílómetra frá miðbæ Hveragerðis og hefur lítil sem engin áhrif á byggðina þar nema kannski að hún hefði aukið atvinnu á svæðinu."
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira