Rússneska keisarafjölskyldan öll fundin

Vísir Erlent 30. apríl 2008 17:09
Nikulás keisari og fjölskylda hans. Myrt af bolsévikkar.
Nikulás keisari og fjölskylda hans. Myrt af bolsévikkar.
Óli Tynes skrifar:

Rannsóknir vísindamanna hafa staðfest að líkamsleifar sem fundust í Rússlandi á síðasta ári voru af tveim börnum Nikulásar annars, síðasta keisara Rússlands.

Bolsévikkar myrtu keisarafjölskylduna í byltingunni árið 1918. Með þessu eru jarðneskar leifar allrar keisarafjölskyldunnar fundnar.

Byltingarmenn skutu fjölskylduna til bana í kjallaranum á húsi kaupmanns nokkurs í Yekaterinburg, sem er um 1450 kílómetra austan við Moskvu.

Reynt var að eyða líkunum og leifunum fleygt í skurð. Eftir fall Sovétríkjanna voru líkamsleifar keisarahjónanna og þriggja dætra þeirra grafnar upp.

Þau voru jarðsett á nýjan leik í keisaragrafhýsinu í kirkju Péturs og Páls postula í Sankti Pétursborg árið 1998.

Meðal viðstaddra var Boris Yeltsin, fyrrverandi forseti Rússlands, sem lengi hafði barist fyrir því að keisarahjónunum yrði sá sómi sýndur.

En við jarðsetninguna 1998 vantaði lík tveggja barnanna. Alexeis prins og Maríu hertogaynju. DNA rannsóknir í Bandaríkjunum hafa nú leitt í ljós að leifarnar sem fundust á síðasta ári voru af þeim.

Þau munu því áður en langt um líður loks verða sameinuð fjölskyldu sinni á nýjan leik.


Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 13. feb. 2012 03:13

Vega-flaug á loft í fyrsta sinn

Eldflaug af tegundinni Vega verđur skotiđ á loft í fyrsta sinn, rétt fyrir hádegi í dag. G...  

Meira
Erlent 13. feb. 2012 03:13

Litlar líkur á ósigri forsetans

Ekki er mikilla tíđinda ađ vćnta úr forsetakosningunum sem fóru fram í Túrkmenistan í gćr....  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 22:00

Trylltur mađur olli nćstum flugslysi

Brasilísk farţegaţota neyddist til ţess ađ lenda eftir ađ einn farţegi trylltist og réđist...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 23:29

Listamađurinn fékk sjö verđlaun

Franska myndin Listamađurinn fékk flest verđlaun á Bafta hátíđinni í kvöld, eđa sjö talsin...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 21:00

Grammy-verđlaunin haldin í skugga andláts Whitney Houston

Grammy verđaunahátíđin verđur haldin í kvöld í skugga sviplegs fráfalls söngdívunnar Whitn...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 17:51

Fimm ára stúlku bjargađ úr snjóflóđi - lá grafin í tíu klukkustundir

Fimm ára gamalli stúlku var bjargađ eftir ađ hún lenti í snjóflóđi ásamt fjölskyldu sinni ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:51

Átta handteknir fyrir ađ slátra villtum dýrum

Lögreglan í Bangkok í Tćlandi handtók átta manns fyrir ađ slátra villtum dýrum. Í raun var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:29

Ađstođarmađur forseta Kongó látinn - fjármálaráđherrann slasađur

Ađstođarmađur forseta Kongó, Augustin Katumba Mwanke, lést ţegar einkaflugvél sem hann var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 12:15

Kafteinn klúđur: Myndband sýnir ađgerđarleysi skipstjórans

Myndband sem sýnir viđbrögđ skipstjóra skemmtiferđaskipsins Costa Concordia, sem strandađi...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:15

Romney sigrađi í Maine fylki

Mitt Romney, sigrađi í forkosningu repúblikanaflokksins í Maine fylki í Bandaríkjunum í gć...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:03

Grunur leikur á ađ Whitney hafi drukknađ í bađkari

Grunur leikur á ađ söngdívan Whitney Houston hafi drukknađ í bađkari á hóteli sínu ţar sem...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 09:52

Fannst látin á hótelherbergi

Bandaríska söng- og leikkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Hún fannst látin ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Talskona hennar stađfestir ţetta í sa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / / Rússneska keisarafjölskyldan öll fundin