Utanríkisráðherra segir að íhuga verði alvarlega aðild að ESB 20. apríl 2008 18:31
Utanríkisráðherra segir að þingmenn verði að íhuga alvarlega aðild að Evrópusambandinu ætli þeir sér ekki að vera úr takti við almenning. Ný skoðanakönnun sýnir að tæplega sjötíu prósent þjóðarinnar vill hefja undirbúning að umsókn í ESB. Spurt var í skoðanakönnuninni sem Fréttablaðið gerði hvort ríkisstjórnin eigi að hefja undirbúnig að aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Meirihlutastuðningur er við málið meðal kjósenda allra flokka nema Frjálslyndra. Mestur stuðningur við undirbúning umsóknar er meðal kjósenda Samfylkingar eða rúmlega 87 prósent. Utanríkisráðherra segir niðurstöður könnunarinnar sýna að breið samstaða sé um það meðal almennings að hefja undirbúning að aðildarviðræðum. Hún segir verst að ekki sé meirihluti fyrir því á Alþingi að hefja slíkar viðræður en að alþingismenn verði að íhuga aðild alvarlega ætli þeir ekki að vera úr takti við almenning. Ingibjörg segir miklar áhyggjur vera hjá mörgum í atvinnulífinu af stöðu mála og því þurfi að marka framtíðarsýn þar sem krónar sé örmynt sem erfitt sé að eiga við. Ingibjörg segir menn hljóti að vera með hagsmunamat að leiðarljósi þegar Evrópusambandsaðild er skoðuð og geti ekki verið með hælana fasta í grasinu. Sextíu prósent framsóknarmanna styðja undirbúning aðildarviðræðna. Það kom Valgerði Sverrisdóttur, varaformanni flokksins á óvart en hún vill hefja undirbúning að viðræðum sem fyrst. Tæp 57 prósent sjálfstæðismanna eru hlynntir undirbúningi að aðild að Evrópusambandinu. Guðfinna Bjarnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir það sýna skoðun að sækja eigi um aðild en því miður þá ráði hún engu þar um. Hún telur þó að skoðanakönnunin endurspegli ástandið í efnahagsmálum landsins.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira