Matur er mannsins megin Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. apríl 2008 15:27 Kjúklingurinn er mesta lostæti en getur kostað langa dvöl á salerninu sé eldun ábótavant.
Matarsjúkdómar og hættur tengdar þeim er einn þeirra málaflokka sem krufnir verða til mergjar á ráðstefnunni Matur, öryggi og heilsa sem Matís og Matvælastofnun standa sameiginlega að á Hótel Hilton Nordica á morgun. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verður Franklín Georgsson, sviðsstjóri matvælaöryggissviðs Matís, en hann fjallar um matarsjúkdóma á Íslandi, ýmsar hættur samfara þeim og ber stöðu mála hér saman við ástandið hjá öðrum þjóðum. „Ég mun ræða um helstu öryggishættur í matvælum, bæði í sambandi við örverur og aðskotaefni. Auk þess ætla ég að gefa tölfræðilegt yfirlit yfir matarsjúkdóma hér á landi og hvaða matvæli hafa helst verið tengd þessum matarsjúkdómum," sagði Franklín. Kamfýlóbakter áður til vandræða Hann sagði langmestan hluta þeirra sjúkdóma sem hann hygðist ræða í erindi sínu vera sjúkdóma af völdum ýmissa sýkla. „Þarna eru náttúrulega ofarlega á blaði bæði salmonella og kamfýlóbakter. Einnig er núna á síðari árum orðið meira um iðrasýkjandi veirur en langflestir þessara staðfestu matarsjúkdóma eru af völdum örvera. Við vorum í miklum vandræðum með kamfýlóbakter fyrir nokkrum árum. Þá fórum við í markvissar aðgerðir, bættum innra eftirlit, sérstaklega í kjúklingaeldi, auk þess sem við vorum með upplýsingaherferð fyrir neytendur varðandi meðhöndlun matvæla. Einnig var farið út í ákveðnar framleiðsluaðgerðir, t.d. gerð krafa um að sýkt matvara væri fryst þar sem kamfýlóbakterían er viðkvæm fyrir frystingu," sagði Franklín enn fremur. Nýjar hættur fylgja aukinni fjölbreytni Í erindi sínu kemur Franklín að auki inn á nýjar hættur sem komnar eru fram vegna aukinnar fjölbreytni í matargerð. Fólk hafi aðgang að mun meira hráefni, meiri verslun sé með viðkvæm matvæli milli landa auk þess sem fólk ferðist nú meira en áður. Hann segir Matís, og þær stofnanir sem urðu að Matís við sameiningu í ársbyrjun 2007, hafa náð mjög góðum árangri með aðgerðum sínum. Ekki hafi fundist salmonella í eldiskjúklingi hér sl. þrjú ár þrátt fyrir að allir eldisflokkar væru prófaðir. „Það hefur náðst að takmarka mjög mengun þeirra matvæla sem fara út á markaðinn. Þótt sýkt matvæli séu í litlu magni í eldhúsi einhvers staðar getur orðið krossmengun út í alls konar önnur matvæli, t.d. salat og fleira. Sem betur fer eru þessir sýklar viðkvæmir, fullnægjandi eldamennska drepur þá yfirleitt en hættan er á krossmengun yfir í önnur matvæli," sagði Franklín að lokum.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fleiri fréttir Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Sjá meira