Gagn og ógagn „alarmisma“

Fréttablaðið Fastir pennar 08. apríl 2008 04:00
Gagn og ógagn „alarmisma“
Auðunn Arnórsson skrifar:

Verið hrædd! Heimurinn er að bráðna! Hundruð milljóna manna munu lenda á vergangi vegna loftslagsbreytinga!

Það er út á svona upphrópanir sem Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur skapað sér nýjan grundvöll heimsfrægðar. Þær hafa meira að segja fært honum friðarverðlaun Nóbels. Sú ákvörðun norsku Nóbels-nefndarinnar var einmitt rökstudd þannig að með því að vekja ráðamenn heimsbyggðarinnar í nútímanum til vitundar um loftslagsbreytingarnar væri skapaður þrýstingur á þá að gera það sem í þeirra valdi stæði til að fyrirbyggja það að til þess komi að hundruð milljóna manna lendi á vergangi í framtíðinni, því slík þróun myndi augljóslega leiða til ófriðar og hörmunga.

Frá því Gore gerði víðfræga kvikmynd sína „Óþægilegur sannleikur" fyrir tveimur árum hefur hann ferðast um heimsbyggðina og flutt fólki boðskap sinn í máli og myndum. Í gær flutti hann Færeyingum pistilinn. Og í dag er röðin komin að Íslendingum.

Meðverðlaunahafar Gores, þær þúsundir vísindamanna frá öllum heimshornum sem tekið hafa þátt í starfi Vísindaráðgjafarnefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, IPCC, nálgast þetta viðfangsefni með ólíkum hætti en hann. Þeir vilja ekki fullyrða meira en staðreyndir gefa tilefni til, og hvað telst vera staðreynd koma þeir sér fyrst saman um. Þeir ástunda ekki upphrópanir um að við mannkyninu blasi ógn og skelfing vegna eigin óhófsneyzlu á gæðum jarðar. Með öðrum orðum ástunda þeir ekki „alarmisma". Enda eru nógu margir aðrir til að taka það hlutverk að sér. Og það er reyndar gott að einhver geri það, því það er fyrst með „alarmisma" sem athygli fjöldans næst. Varlega orðaðar málamiðlunarformúleringar vísindamannanna eru miklu síður til þess fallnar.

Boðskapur Als Gore er ótvíræður alarmismi. Sem dæmi má nefna að í „Óþægilegum sannleika" fullyrðir Gore að hlýnun loftslags sé svo hröð að Grænlands- og heimskautaísinn sé óðum að bráðna og það geti á þessari öld leitt til allt að sex metra (20 feta) hækkun sjávarmáls. Það muni sökkva heilu milljónaborgunum í öllum heimsálfum. Í skýrslu IPCC er hins vegar ekki neinar þær upplýsingar að finna sem réttlæta slíka heimsendaspá. Þar segir öllu heldur, að sjávarmál kunni að hækka á þessari öld um 18-59 sentímetra. Gore gerir líka mikið úr þeim möguleika að Golfstraumurinn stöðvist þótt fræðimenn telji það afskaplega ósennilegt.

Alarmismi grundvallaður á ýkjum og oftúlkunum er gagnrýniverður. Hann kann jafnvel að hafa þveröfug áhrif. En að sama skapi er varhugavert að gera lítið úr loftslagsvandanum, eins og ýmsir af hörðustu gagnrýnendum Gores hafa tilhneigingu til að gera. Það er hollt að hugsandi fólk um allan heim rökræði fordómalaust um þetta viðfangsefni. Að gera það að trúaratriði pólitískrar rétthugsunar gagnast hins vegar engum.
Það er fyrst með alarmisma sem athygli fjöldans næst.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og að stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Gagn og ógagn „alarmisma“