Innlent

Móðir drengsins í Færeyjum býst við dómi

Breki Logason skrifar
Írís Inga Svavarsdóttir móðir Birgis Páls Marteinssonar sem setið hefur í fangelsi í Færeyjum í tengslum við Pólstjörnumálið svokallaða var viðstödd réttarhöldin í dag. Hún segir það hafa verið erfitt að hlusta á son sinn yfirheyrðan í dag.

Birgir Páll hefur setið í einangrun í tæplega hálft ár vegna málsins en honum er gefið að sök að hafa tekið á móti og geymt fíkniefnin sem haldlögð voru á Fáskrúðsfirði í september í fyrra, 24 kíló af amfetamíni, 15 kíló af e-pilludufti og nærri 1800 e-töflur.

„Þetta var alveg rosalega erfitt og það er greinilegt að þessi saksóknari ætlar að koma honum í fangelsi, við verðum bara að bíða og sjá hvernig dómurinn tekur á þessu," segir Írís Inga en hún og móðir hennar eru staddar í Færeyjum til þess að fylgjast með málinu.

Hún segir réttarhöldin hafi staðið yfir frá hálf tíu í morgun til fimm í dag en þetta er í þriðja skiptið sem þær mæðgur fara út síðan hann var handtekinn vegna málsins.

Þó hann hafi setið í einangrun hafa mæðgurnar getað haft samband við hann í gegnum síma og eins hitt hann augliti til auglits.

„Lögreglan er tilbúin að gera eins mikið og hún getur fyrir okkur en þegar ég tala við hann í síma þarf það að vera á ensku því það er alltaf einhver sem hlustar. En þegar við höfum farið í heimsókn höfum við fengið íslenskan túlk með okkur," segir Íris.

Birgir Páll er æskuvinur Guðbjarna Traustasonar sem hlaut 7 ára fangelsisdóm fyrir að hafa siglt efnunum til landsins. Guðbjarni eða Baddi eins og hann er alltaf kallaður hefur haldið því fram að Birgir sé saklaus í málinu, hann hafi flækst í það vegna vinskapar við sig.

„Hann átti ekkert að blandast inn í þetta. Ég bað hann bara um að redda mér húsnæði í smá tíma. Þetta er strákur sem aldrei hefur verið í neinu rugli," sagði Guðbjarni í viðtali sem birtist á Vísi fyrir helgi. Hann er nú í Færeyjum og á að bera vitni í málinu á morgun.

Íris segist ekki bera neinn kala í garð Guðbjarna sem hún þekkir vel. „Nei alls ekki, Baddi er búinn að eiga erfitt mjög lengi og hefur staðið lengi í einhverju svona rugli. Ég hef stundum verið hrædd um drenginn minn þegar hann hefur verið nálægt honum en hann hefur aldrei viljað blanda Birgi í neitt svona. Birgir hefur oft reynt að fá hann til þess að hætta, sérstaklega þegar kærastan hans varð ólétt og svona," segir Íris.

Hún segir son sinn ótrúlega seigan og bera sig vel þrátt fyrir þennan langa tíma í einangrun. „Ég veit hinsvegar ekki hvað verður síðar meir þegar hann kemur út á meðal fólks og fær eitthvað frelsi. Ég geri ráð fyrir að hann fái einhvern dóm fyrir þetta en hann verður bara að standa sig og ljúka því."

Íris segir að vitnin komi fyrir dóm á morgun og síðan sérfræðingar á miðvikudaginn. „Á fimmtudaginn koma síðan lögmennirnir með lokaræður sínar og dómarinn flytur eitthvað á föstudaginn. Síðan fer kviðdómurinn afsíðis og kemur með niðurstöðu stuttu síðar."


Tengdar fréttir

Ákæruvaldið mun krefjast tíu ára fangelsis að lágmarki

Ákæruvaldið í Færeyjum mun krefjast tíu ára fangelsisvistar að lágmarki á hendur Íslendingi sem setið hefur þar í fangelsi og einangrun svo mánuðum skiptir vegna meintrar aðildar að Pólstjörnumálinu.

Smyglskútudrengir segja sögu sína

Fáir fíkniefnafundir lögreglu hafa vakið jafn mikla athygli hér á landi og Pólstjörnumálið. Karen D. Kjartansdóttir ræddi við mennina fjóra sem fengu þyngstu dómana og segjast þeir ekki svekkja sig á neinu. Þá taki þó sárt að hafa blandað saklausum manni í Færeyjum í málið. Sá hefur setið í eingangrun í 170 daga en engin hefur setið lengur í eingangrunarvist þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×