Kćra rektor og háskólaráđ

Vísir Innlent 11. mars 2008 16:00
Ágúst Einarsson, rektor Bifrastar.
Ágúst Einarsson, rektor Bifrastar.
Andri Ólafsson skrifar:

Tveir af þremur nemendum sem vikið var úr Háskólanum á Bifröst um mánaðarmótin eftir að vopnaðir lögreglumenn gerðu húsleit í íbúðum þeirra ætla að kæra Ágúst Einarsson rektor til siðanefndar háskólans. Þá ætla þeir líka að kæra staðfestingu háskólaráðs á brottvísun þeirra úr skólanum.

Nemendurnir eru afar ósáttir við vinnubrögð rektors í málinu og segjast ekki hafa hlotið sanngjarna málsferð.

Málið hófst með einni umfangsmestu lögregluaðgerð sem gerð hefur verið lengi á Vesturlandi en hún skilaði allt í allt um hálfu grammi af eiturlyfjum. Þrátt fyrir að lögregluaðgerðin á Bifröst hafi ekki skilað miklu, miðað við umfang, hafði hún samt afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá þrjá nemendur sem hún beindist að. Þeim var öllum vikið fyrirvaralaust úr skólanum og gert að yfirgefa háskólasvæðið.

Aðeins einn af þeim þremur sem lögregluaðgerðirnar beindust að hefur viðurkennt að hafa átt eitthvað af þeim fíkniefnum sem fundust. Hann hefur viðurkennt að vera eigandi að um 0,3 grömmum af kókaíni sem fundust í tveimur íbúðum. Öðrum nemanda úr einni af þeim íbúðum sem efnin fundust í var engu að síður vikið úr skóla. Þrátt fyrir neitun hans á því að efnin væru hans og játningu annars á að efnin væru sín.

Þá var þriðji nemandinn, kona á þrítugsaldri, gerð brottræk vegna 0,2 gramma af kannabisefnum sem fundust í kassa inn í geymslu hennar. Konan neitar því staðfastlega að eiga efnin.

Í greinargerð sem lögmaður vann fyrir konuna vegna málsins kemur auk þess fram að viðurlögin við því að vera með þetta magn í sínum fórum er 28 þúsund króna sekt. Minna en sekt sem menn fá fyrir að keyra bifreið án ökuréttinda.

Rektor tók neitun þessara tveggja nemanda ekki til greina. Nemendurnir segja Vísi að þau hafi ekki fengið tækifæri til þess að útskýra sitt mál fyrir honum áður en hann tók þá ákvörðun um að reka þau úr skólanum. Þeim var í staðinn sagt að þeim gæfist kostur á að skýra sitt mál á fundi háskólaráðs.

Það gerðu tveir nemendanna. Annar baðst vægðar og sagðist vera búinn að panta pláss í meðferð. Hinn neitaði að eiga efnin sem fundust í íbúð hans enda annar nemandi búinn að segjast eiga þau. Þriðji nemandinn, konan með kannabisið í pappakassanum, mætti ekki fyrir háskólaráð en lagði þess í stað fyrir ráðið greinargerð lögmanns sem krafðist þess að háskólaráð endurskoðaði ákvörðun rektors á þeim forsendum að meðalhófs hefði ekki verið gætt. Lögmaðurinn benti á að réttara væri að áminna nemandann.

Háskólaráð neitaði hins vegar að taka afstöðu til sektar hvers nemenda fyrir sig. Þess í stað var einfaldlega greitt atkvæði um hvort staðfesta ætti ákvörðun rektors um að reka alla þrjá nemendurna úr skólanum eða ekki.

Það var úr að rektor fékk sína ákvörðun staðfesta. Heimildir Vísis herma að einhverjir hafi greitt atkvæði á móti og er það í fyrsta skipti í áraraðir sem háskólaráð tekur slíka ákvörðun án fullrar samstöðu.

Ákvörðun háskólaráðs er hægt að vísa til menntamálaráðuneytisins og það ætla hinir brottreknu nemendur að gera.

Þeir ætla einnig að kæra Ágúst Einarsson til siðanefndar fyrir tölvupóst sem hann sendi þeim en þau segja að í honum hafi Ágúst gerst brotlegur við siðareglur skólans.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigrađi í Evróvisjón

Ţađ var lagiđ Mundu eftir mér sem sigrađi í Evróvisjón í kvöld. Ţađ var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuđu hćttulegt rauđvín

Nokkrir ađdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmćltu ákvörđun vínbúđarinnar um ađ leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambiđ á Ţórshöfn međ mikla höfuđáverka

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á gjörgćsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvađa lög sprengjumađurinn braut

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist viđ hríđarveđri seint í kvöld

Ţađ hvessir af suđri seint í köld og hlýnar heldur. Á hćstu fjallvegum um landiđ vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánćgju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir ađ Rannveig Ásgeirsdóttir myndađi meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu fékk tilkynningu um ađ útigangsmenn hefđi veriđ ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ćtlađi ađ slökkva á brunabođanum en rćsti innbrotsbođann í stađinn

Hann var óheppinn iđnađarmađurinn sem var ađ störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmađur Íslands bjargađi dóttur sinni

Rauđi kross Íslands hefur valiđ Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráđi...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttrćđisaldri og misţyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin ţyngd sjúklinga hćkkar kostnađ vegna lyfja

Aukin ţyngd sjúklinga hefur hćkkađ kostnađ Landspítalans vegna lyfja síđustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmađur stunginn og svo fćrđur í fangageymslu

Karlmađur var stunginn í nótt í Hafnarfirđi og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörđun um gćsluvarđhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörđun um ţađ síđar í dag hvort ađ krafist verđi gćsluvarđahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verđur haldinn um allt land í dag. Markmiđ dagsins er ađ kynna neyđarnúmeriđ ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Fćrđ og ađstćđur: Hálka víđa á Suđurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiđi og Ţrengslum en snjóţekja á Lyngdalsheiđi, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillađir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafđi afskipti af fjórum unglingum viđ Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gćrk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíđa Alţingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmađur segir í minnisblađi til borgarráđs ađ borgin verđi ađ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast ađ verđmćtar minjar endi í brćđslu

Safnaráđ tók skeiđar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugđist fara međ góssiđ ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja ađ nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfrćđingur á sviđi fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viđtali viđ Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Kćra rektor og háskólaráđ