Innlent

Greiði skatta og skyldur af mínum hlunnindum

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson

„Ég greiði skatta og skyldur af mínum launum og hlunnindum og geri nákvæmlega það sem mér er sagt að gera frá mínum endurskoðanda," segir Björn Ingi Hrafnsson um þær ásakanir að hann hefði átt að greiða skatt af styrk sem hann fékk til fatakaupa fyrir kosningar árið 2006.

Í frétt á Vísi fyrr í dag var fjallað um styrk vegna fatakaupa Björns Inga og Óskars Bergssonar. Í fréttinni var talað við Bjarnfreð Ólafsson skattalögfræðing hjá lögmannsstofunni Logos sem sagði að styrki eins og þennan eigi að gefa upp til skatts sem hlunnindi eða gjafir. Bjarnfreður sagði jafnframt að í þessu tilfelli hefðu frambjóðendur sennilegast átt að standa skil á greiðslunum sjálfir.

„Ég bendi hinsvegar á að sá sérfræðingur sem Vísir talar við í þessari frétt var einn nánasti vinur Guðjóns Ólafs Jónssonar í lagadeild og rak með honum fyrirtæki um árabil. Í ljósi þeirra alvarlegu persónulega árása sem Guðjón hefur haft uppi gegn mér undanfarið hljóta þessi ummæli að skoðast í því sambandi."

Athugasemd frá ritstjóra:

„Vísir vísar á bug ásökunum Björns Inga um að vinskapur Bjarnfreðs Ólafssonar og ofannefnds Guðjóns hafi í nokkru haft áhrif á lögfræðilegt álit Bjarnfreðs varðandi fatakaup Björns Inga Hrafnssonar og Óskars Bergssonar á kostnað Framsóknarflokksins líkt og Björn Ingi ýjar að hér að ofan. Við val á viðmælanda var leitað eftir aðstoð frá góðum mönnum sem bentu á að þrír af bestu skattalögfræðingum landsins væru á Logos. Einn af þeim mönnum var Bjarnfreður Ólafsson yfirmaður skattasviðs stofunnar. Tilviljun ein réð því að Bjarnfreður varð fyrir valinu frekar en hinir tveir og hafði Vísir enga vitneskju á þeirri stundu um vinskap hans og Guðjóns Ólafs."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×