Maðurinn á bakvið dómarann

Vísir Innlent 14. janúar 2008 23:44
Maðurinn á bakvið dómarann
Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar:
Þorstein Davíðsson kannast líklega flestir við eftir umræðu síðustu vikna um skipan hans í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands. Persónuna á bakvið umræðuna þekkja líklega mun færri, því Þorsteinn er ekki einn þeirra sem tranar sér fram eða hefur áhuga á að láta bera á sér. Hann er fluggáfaður og þykir með skemmtilegri mönnum, hefur dálæti á breskum húmor og elskar ermahnappa.

Þorsteinn er 36 ára gamall, fæddur 12. nóvember 1971. Hann er sonur Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og Ástríðar Thorarensen hjúkrunarfræðings.

Hann gekk í Hagaskóla og síðar Menntaskólann í Reykjavík. Þorsteinn var liðtækur ræðumaður og var í sigurliði MR í spurningakeppni menntaskólanna Gettu betur árið 1988. Eftir útskrift úr lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1999 hóf hann störf sem aðstoðarmaður héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sumarið 2003 tók hann síðan við starfi aðstoðarmanns Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og gengdi því til síðasta hausts. Þá tók hann við stöðu aðstoðarsaksóknara og deildarstjóra lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Síðustu áramót var Þorsteinn svo skipaður í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands eins og frægt er orðið. Það var Árni Mathiesen settur dómsmmálaráðherra sem skipaði Þorstein í stöðuna, en ákvörðun hans gekk þvert á niðurstöðu matsnefndar og hefur verið afar umdeild.

Mörgum finnst hins vegar ómaklega vegið að Þorsteini og hann líði fyrir að vera sonur föður síns.

Fluggreindur vinur og sveitarómantíkus

Vinir Þorsteins eru sammála um að hann sé bæði sérlega greindur og afar traustur vinur. Þeir lýsa honum sem ljúfum, kátum og líttillátum húmorista sem sé mikill grúskari og stemningsmaður auk þess að vera sveitarómantíkus inn við beinið.

Haraldur Johannessen ritstjóri og vinur Þorsteins til tuttugu ára segir að hann sé afar fljótur að hugsa og vel treystandi til að leysa úr flóknum lögfræðilegum álitsefnum. „Ég þekki engan sem á betra með að greina aðalatriði frá aukaatriðum, þannig hefur Þorsteinn yfirburði yfir aðra," segir Haraldur. Hann telur jafnframt að ekki gæti valist betri aðili í embætti dómara en Þorsteinn, en auk þess sé hann nánast eins og alfræðiorðabók, svo vel sé hann að sér um marga hluti.

Áhugamál Þorsteins eru flest tengd bókmenntum og íslenskum ljóðum. Eftirlætisskáld hans eru sem dæmi Hallgrímur Pétursson, Tómas Guðmundsson og Davíð Stefánsson. Hann hefur einnig mjög gaman af skák, var virkur í taflfélagi um árabil og teflir enn reglulega.

Það sem kom Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra mest á óvart þegar Þorsteinn kom til starfa fyrir hann var þekking hans á lögfræði. Þannig gat hann bent á ýmis ígrunduð lagaákvæði eða fordæmi við úrlausn einstakra mála. „Þorsteinn er þar fyrir utan margfróður um menn og málefni," segir Björn og bætir við að honum sé einkar lagið að setja skoðanir fram í rituðu máli; „enda hefur hann gott vald á íslenskri tungu og kann þar að auki orðrétta kafla úr bókmenntum, svo ekki sé minnst á kveðskapinn og vísurnar."



Dýravinur sem keyrir of hægt
Fyrir nokkrum árum komst vinasamband Þorsteins og Ragnheiðar Clausen fyrrverandi þulu á Ríkisútvarpinu í hámæli. Hún segir hann þann mesta öðling sem hún hafi kynnst og einstaklega traustan vin. „Hann er líka skemmtilegasti maður sem ég þekki, þótt hann flíki því ekki við hvern sem er," segir hún. Hann halllmæli ekki fólki þótt hann hafi vissulega skoðanir á mönnum og málefnum. Ef honum mislíki svari hann með vel ígrunduðum útúrsnúningi, en æsi sig ekki. Þá kemur það henni stundum á óvart hversu vel hann sé að sér um léttari málefni, hann viti sem dæmi ýmislegt um fólk í afþreyingarbransanum sem hún hafi lesið um í tímaritum á borð við Hello. „Hann veit allt og fylgist með öllu."

Þorsteinn er mikill dýravinur og ólst upp á heimili þar sem bæði var hundur og köttur. Haraldur segir sem dæmi að hann sé sífellt að fóðra fugla, stundum þegar hann kaupi sér mat, kaupi hann aukaskammt fyrir fuglana, sérstaklega þegar tíðin er eins og hún er núna. Ragnheiður tekur undir það og segir dýr almennt laðast að Þorsteini.

„Hans helsti galli er að hann keyrir aðeins of hægt, fyrir minn smekk að minnsta kosti," segir hún aðspurð um ókosti Þorsteins. Hún hafi gefist upp á að sitja í bíl með honum á 35 km hraða þar sem 50 km hámarkshraði sé í gildi, nú keyri hún sjálf þegar þau fari í bíó eða út að borða.

Þorsteinn er mikill sælkeri og finnst bæði gott og gaman að borða góðan mat og fara út að borða, og það gera þau Ragnheiður gjarnan. Hún segir að ekki hafi þó mikið farið fyrir eldamennsku þegar hann bjó í foreldrahúsum, en þegar hann flutti í eigið húsnæði fyrir rúmu ári hafi komið henni á óvart hvað hann hafi staðið sig vel í eldhúsinu. Hins vegar njóti hann þess að fara út að borða og hafa gaman með vinum sínum; „Og á meðan hann er einhleypur, af hverju ætti hann ekki að gera það?" spyr hún.

Breskur húmor er í uppáhaldi hjá hinum nýskipaða dómara. Ragnheiður segir hann í raun hafa alla kosti bresks séntilmanns; „Hann elskar alla vega ermahnappa og er alltaf með slaufur."

Vinir Þorsteins voru í fyrstu varkárir í að tala um hann og augljóst að þeim finnst umræðan síðustu daga og vikur halla töluvert á hann. Ragnheiður telur hana komna út fyrir öll velsæmismörk og verið sé að láta pólitískan feril Davíðs bitna á syni hans. Hún segir vini Þorsteins líklega taka umræðuna nær sér en hann geri sjálfur; „Hann er bara það skynsamur að hann hefur sig yfir þetta."

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 22:51

Hestarnir ómeiddir

Ökumaður jeppa, sem var með hestakerru í eftirdragi, missti stjórn á bíl sínum klukkan rúm...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 20:24

Von um úrræði

Fjöldi heimila með lánsveð hjá ættingjum og vinum, sem hefur fallið á milli skips og brygg...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 19:19

Stjórnmálafræðingur: Fylgi Lilju ekki fast í hendi

Stjórnmálafræðingur segir fylgi við flokk Lilju Mósesdóttur í nýrri könnun ekki vera fast ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 18:42

Meira en helmingur þjóðarinnar vill kosningar í vor

Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað til alþingiskosninga í vor. Þe...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 17:53

Myndbandið er ekki gabb - hellti upp á kaffi og tók svo upp

"Þetta er alls ekki sviðsett af mér, það er alveg fráleitt. Þetta er ekkert gabb,“ s...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 18:20

Karl á áttræðisaldri í haldi vegna sprengjumálsins

Karlmaður á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 17:17

Á skilorð fyrir kynmök við barn

Karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tvisvar h...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 17:15

Einstök ákvæði stjórnarskrár borin undir þjóðaratkvæði

Stjórnarliðar vilja að þjóðin verði spurð álits á einstökum álitaefnum um stjórnarskrá í s...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 16:59

Nýr flokkur aldrei fengið meira en 10%

"Þetta er vísbending um mikla óánægju með fjórflokkana,“ segir Ólafur Þ. Harðarson p...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 16:55

Ögmundur vill sjá hvað hangir á spýtunni í Nubo málinu

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki hafa fylgst með þeim samningaviðræðum sem...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 15:59

Tæplega 70% með leka púða

Búið er að ómskoða 105 þeirra kvenna sem fengið hafa PIP-brjóstapúða í gegnum árin. Landlæ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 14:56

Ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um helgina

Vetrarhátíð í Reykjavík er gengin í garð og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tekur þátt um ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 13:36

Ástæða til að stöðva útflutning á munum

Ástæða þykir til að stöðva útflutning á nokkrum munum sem P&H Jewellers hafði keypt af Ísl...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 13:30

Fréttaskýring: Ármann valdamestur sjálfstæðismanna

Á þriðjudaginn 14. febrúar mun Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, v...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 13:20

Átta mánaða fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu

Tuttugu og sex ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að ráð...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 12:42

Milljónir hafa séð Lagarfljótsorminn á YouTube

Tvær og hálf milljón notenda YouTube hefur nú séð myndbandið sem Hjörtur Kjerúlf tók við L...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 12:16

Segir aðra kosti hafa verið í stöðunni

Fullyrðingar Rannveigar Ásgeirsdóttur, oddvita Lista Kópavogsbúa, um að engin kostur annar...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 11:50

Ólafur Ragnar með opið hús

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ætlar að bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 11:33

Tjónum á lögreglubílum hefur fækkað umtalsvert

Lögreglubílar á Íslandi lentu 80 sinnum í tjóni á síðasta ári. Kostnaður vegna þessa nam 7...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 11:00

Hjallastefna til Vestmannaeyja

Hjallastefnan er á leið til Vestmannaeyja. Bætist þá ellefti skólinn við þá tíu leikskóla ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 10:29

Lilja hrærð yfir viðbrögðunum

Lilja Mósesdóttir, formaður Samstöðu, nýs stjórnmálaafls sem hyggst bjóða fram í þingkosni...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 10:07

Barnaheill fá styrk til uppbyggingarstarfs í Norður-Úganda

Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa fengið 3,3 milljóna króna styrk frá utanríki...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:59

Trésmiður fær ekki bætur eftir vinnuslys

Pólskur trésmiður sem krafðist tæplega 35 milljóna króna bóta frá Sjóvá - Almennum eftir v...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:30

Skatturinn skoðar fjármál Jens

Einn lýtalæknir er nú formlega til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Samkvæmt...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:30

Tónlistarsmekkur ráði ekki úrvalinu í ÁTVR

Formaður efnahags- og skattanefndar segir ÁTVR seilast langt eftir rökum fyrir því að bann...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:00

Bíða vitna að utan í máli Egils

Lögregla stefnir að því að ljúka í næstu viku rannsókn tveggja nauðgunarmála gegn skemmtik...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 08:30

Fangelsisstjóri kærir stuld á lyftingatólum

Geirmundur Vilhjálmsson, sem vikið var úr starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju og ákærður ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:45

Norðlendingar álasa Jóhönnu

"Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráð...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:30

Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi

Kjósendur virðast bíða eftir nýjum framboðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttabla...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:27

Kveikt í póstkössum í Kópavogi

Kveikt var í póstkössum í anddyri fjölbýlishúss við Vallakór í Kópavogi í gærkvöldi....  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:24

Bíll gjöreyðilagðist í eldi

Fólksbíll gjöreyðilagðist í eldi í Hafnarfirði í nótt og nálægur bíll skemmdist talsvert, ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:18

Sjúkraflutningamenn tóku á móti barni

Litlum snáða lá svo á að komast í heiminn á heimili sínu við Laugateig í Reykjavík í gærkv...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:15

Ummæli Snorra í Betel til skoðunar

Akureyrarbær hefur nú ummæli Snorra Óskarssonar, sem oft er kenndur við trúarsöfnuðinn Bet...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:00

Sorp flokkað á herbergjum

Grand Hótel Reykjavík hyggst fyrst hótela í borginni taka upp þriggja þátta sorpflokkunark...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:47

Tveir laumufarþegar gripnir í Sundahöfn

Tveir erlendir hælisleitendur voru gripnir, þegar þeir voru að reyna að laumast um borð í ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:45

Helmingur fer ekki í strætó

Ríflega helmingur íbúa höfuðborgarsvæðisins segist aldrei ferðast með strætisvagni. Þetta ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:15

Fer fyrir borgarráð í næstu viku

Borgarráði verður í næstu viku kynntur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem borginni er ge...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:00

Klapparstígur tekinn í gegn

Klapparstígur verður endurnýjaður frá grunni ofan Laugavegar að Skólavörðustíg í sumar. Út...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Maðurinn á bakvið dómarann