Viðskipti erlent

Vírusárásir á bloggsíður

Valur Hrafn Einarsson skrifar
Hlekkur á sýkta skrá hefur fundist á mrgum bloggíðum Blogger.com
Hlekkur á sýkta skrá hefur fundist á mrgum bloggíðum Blogger.com

Óprúttnir tölvurefir eru að nota bloggsíðu Google, Blogger.com, til þess að skrifa falskar bloggfærslur á síður notenda. Fölsku færslurnar innihalda hlekki sem leiða fólk til þess að niðurhala skrá sem svo getur sýkt tölvu þeirra. Tölvurefirnir geta þá tekið yfir stjórn á sýktu tölvunum, leitað þar að viðkvæmum upplýsingum eða notað þær til frekari árása.

Árásin á Blogger síðuna er sú síðasta í röð árása af hópi tölvurefa sem náð hafa stjórn á fleiri þúsund tölvum.

Sýktu hlekkirnir voru uppgötvaðir 27. ágúst af Alex Eckelberry starfsmanni í öryggismálum hjá Sunbelt Software. Mörg hundruð bloggsíður hafa nú verið uppfærðar með stuttri færslu sem inniheldur sýkta hlekkinn. Eckelberry sagði ekki ljóst hvernig hlekknum væri komið fyrir á síðunum. Hann sagði möguleika á að tölvurefirnir séu að notfæra sér þann möguleika Blogger að senda færslur með tölvupósti. Einnig gæti verið að allar sýktu síðurnar séu falskar og eingöngu settar upp í þessum eina tilgangi.

Samkvæmt fréttavef BBC hefur Google enn ekki gefið yfirlýsingu um árásirnar eða hvernig þeim var háttað. Hópurinn sem að talinn er standa á bakvið þetta hefur staðið fyrir gríðarlegu magni árása frá því í janúar.

Bradley Anstis starfsmaður hjá öryggisfyrirtækinu Marshal sagði að magnið af ruslpósti frá hópnum væri yfirþyrmandi. Suma daga væri 4-6% af öllum ruslpósti sem hann rækist á frá þessum hóp.

Sérfræðingar í öryggismálum áætla að hópurinn geti sent svona mikið magn af ruslpósti vegna þess að þeir hafi náð stjórn á svo mörgum tölvum með þessum vírusherferðum sínum. Talið er mögulegt að þeir hafi sýkt yfir milljón tölvur á síðustu átta mánuðum.

Fréttavefur BBC greindi frá þessu.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×