Mamma vill að Kalli Bjarni afpláni á Kvíabryggju

Vísir Innlent 16. desember 2007 11:00
Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, gleðst yfir því að sonur hennar fékk ekki lengri dóm en raun ber vitni.
Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, gleðst yfir því að sonur hennar fékk ekki lengri dóm en raun ber vitni. MYND/ANTON BRINK

Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi í gær fyrir að reyna að smygla tveimur kílóum af kókaíni til landsins í sumar, segist vera afar sátt við dóminn enda óttaðist hún að hann yrði jafnvel mun lengri.

"Ég er afar sæl með dóminn og lít svo á að hann Kalli Bjarni minn sé að fá annað tækifæri. Ég óttaðist að dómurinn yrði mun lengri en sem betur fer þá var hann aðeins tvö ár," segir Sveinbjörg í samtali við Vísi.

Hún segir að Kalli Bjarni hafi staðið sig eins og hetja frá því að hann "hljóp á vegginn" eins og hún orðar það. "Hann hefur ekki snert fíkniefni síðan hann var tekinn. Hann vinnur eins og skepna bæði dag og nótt til að borga upp skuldir sem hann hefur safnað og þótt hann nái því kannski aldrei að verða skuldlaus þá verður að taka viljann fyrir verkið," segir Sveinbjörg.

Tíminn frá því að Kalli Bjarni var tekinn með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð hefur verið afskaplega erfiður fyrir alla fjölskylduna en Sveinbjörg segir það gleðilegt að nú sjái fyrir endann á þessu. "Hann þarf að borga skuld sína við samfélagið og síðan getur hann haldið áfram," segir Sveinbjörg.

Hún vonast til að sonur sinn fái að afplána dóminn á Kvíabryggju enda sé þar langt um betra andrúmsloft heldur en á Litla-Hrauni. Ekki er þó enn ljóst hvar Kalli Bjarni mun verða staðsettur í betrunarvistinni.

Sveinbjörg hefur staðið eins og klettur við hlið sonar síns í erfiðleikum hans. Hún þekkir líka ekki annað því dóttir hennar hefur einnig átt við fíkniefnavanda að etja. "Þau eru bæði hrein núna og ég get ekki verið annað en sátt. Þetta verða fyrstu jólin í ansi mörg ár þar sem bæði börnin eru edrú og það er yndislegt."


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 13. feb. 2012 03:13

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær....  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / / Mamma vill að Kalli Bjarni afpláni á Kvíabryggju