Innlent

Gætu lifað lengi í sjálfheldu

Björgunarsveitir við leit á Svínafellsjökli í dag.
Björgunarsveitir við leit á Svínafellsjökli í dag. MYND/VILHELM
Leit hefur verið hætt í dag að Þjóðverjunum tveimur sem saknað hefur verið frá því 17 ágúst.

Fyrr í dag fannst slóð sem talin var talin vera eftir mennina. Slóðin lá, í svipaðri hæð og tjöld mannanna, yfir Svínafellsjökul og í átt að Hrútsfellstindum.

Á morgun er ráðgert að fínkemba svæðið í nágrenni við tjöld mannanna. Þá verða þær vísbendingar sem fengust með sporunum skoðaðar betur. Leitarhópur fer svo svokallaða Sandfellsheiðarleið upp á Hvannadalshnjúk og standa vonir til að hægt verði að koma fólki með þyrlu upp á Hrútfellstinda, en það er háð veðri.

Víðir Reynisson lögreglufulltrúi Ríkislögreglustjóra á svæðinu segir að erfitt sé að átta sig á hvað komið hafi fyrir mennina. Ennþá sé leitað að lifandi fólki, enda geti menn lent í sjálfheldu og lifað þar í langan tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×