Innlent

Leit frestað fram á morgun

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Svæðið þar sem tjöld mannanna fundust
Svæðið þar sem tjöld mannanna fundust MYND/Horn.is

Leit að þjóðverjunum tveimur sem saknað hefur verið frá 17. ágúst hefur verið frestað fram á morgun og eru leitarmenn komnir í hvíld.

Tjöld mannanna fundust rétt fyrir hádegi á Svínafellsjökli, og einskorðaðist leitin upp frá því við nágrenni hans. Með skoðun á tjöldunum var hægt að áætla að mennirnir hefðu líklega ekki dvalið í þeim frá því í byrjun ágúst. Þá vantaði bakpoka mannanna og klifurútbúnað, og virðast þeir hafa búið sig til dagsferðar.

Fundurinn er að sögn Víðis Reynissonar frá Ríkislögreglustjóra gríðarlega mikilvægur upp á skipulagningu framhalds leitarinnar.

Hópur björgunarmanna leggur um 2-3 leytið í nótt af stað frá tjöldum mannanna og upp á Hvannadalshnjúk, en talið er að mennirnir hafi mögulega ætlað þessa leið upp á hnjúkinn.

Víðir segir einungis mjög reynda fjallamenn í þeim hópi, en leiðin er stórhættuleg yfirferðar á þessum árstíma, ísinn ber og sprungur djúpar.

Ekki er vitað hvaða upplýsingar mennirnir höfðu um aðstæður hér, en reyndir fjallamenn sem Vísir ræddi við segja að á jöklum geti svæði sem hægt er að rölta yfir á snjó í maí, verið síðsumars orðin svo sprungin að íbúðablokk gæti hæglega týnst í sprungunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×