Velkomnir í hópinn

Fréttablaðið Fastir pennar 04. ágúst 2007 06:00
Jón Kaldal skrifar
Jón Kaldal skrifar

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar Alþingis, eru boðnir velkomnir í hóp þeirra sem setja spurningarmerki við stöðu Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði. Um leið er þeim þakkað fyrir að halda lifandi umræðunni um þá ójöfnu stöðu sem sannarlega ríkir í samkeppni Ríkisútvarpsins við einkarekna fjölmiðla.

Nú vill svo til að Björn og Sigurður Kári greiddu báðir atkvæði með umdeildu frumvarpi um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins á síðasta þingi. Frumvarpið var gagnrýnt úr ýmsum áttum, meðal annars á þeim nótum að breyting á rekstrarforminu væri tilgangslítil nema það væri hugsað sem undanfari sölu stofnunarinnar. Sá sem hér skrifar var ekki sammála þeirri gagnrýni, en var hins vegar eindreginn andstæðingur frumvarpsins á þeim forsendum að hvergi var þar tekið á því augljósa ranglæti að Ríkisútvarpið keppir við einkareknu miðlana á auglýsingamarkaði en þiggur jafnframt milljarða rekstrarfé úr ríkissjóði.

Birni og Sigurði Kára hefur verið núið því um nasir að sinnaskipti þeirra um málefni Ríkisútvarpsins séu ekki trúverðug í ljósi þess hversu skammt er liðið frá stuðningi þeirra við frumvarpið.

Þetta er ósanngjörn gagnrýni. Full ástæða er til að ætla að tvær grímur séu að renna á ýmsa stuðningsmenn Ríkisútvarpsins nú þegar gleggri mynd er að fást af stefnu nýs stjórnanda stofnunarinnar. „Hlutafélagavæðing RÚV var ekki til þess að kaupa starfsmenn annarra stöðva og veita þeim ríkisskjól," skrifar Björn á heimasíðu sína og er þar augljóslega að vísa í kaup Ríkisútvarpsins á Silfri Egils fyrr í sumar.

Á þessum stað í Fréttablaðinu hefur líka verið efast um kaup Ríkisútvarpsins á Silfrinu, sem átti að sýna í opinni dagskrá á Stöð 2. Og hér hefur líka verið velt vöngum yfir af hverju Ríkisútvarpið yfirbauð tvær einkastöðvar og keypti Evrópukeppnina í knattspyrnu fyrir um hundrað milljónir króna. Var þó vitað að einkastöðvarnar hugðust sýna meirihluta keppninnar í opinni dagskrá. Hvort tveggja finnst manni undarleg viðskipti og illa farið með fé stofnunarinnar. Til hvers er Ríkisútvarpið að eyða háum fjárhæðum af takmörkuðu ráðstöfunarfé í efni sem átti að sýna annars staðar í opinni dagskrá? Hefði ekki verið nær að verja fénu í framleiðslu á nýju innlendu efni? Útvarpsstjóri mun ef til vill svara því einhvern daginn.

Dómsmálaráðherra er greinilega misboðið því hann gengur svo langt í pistli sínum að stinga upp á sölu Ríkisútvarpsins, en halda eftir Rás eitt. Sigurður Kári hefur lýst stuðningi við þessa hugmynd.

Fyrirætlanir um sölu Ríkisútvarpsins hræða hins vegar okkur sem þykir vænt um stofnunina og kunnum að meta menningarhlutverk hennar. Þegar það sögulega hlutverk er hins vegar á hraðleið með að leysast upp í dagskrárstefnu sem er kirfilega mörkuð meginstraumnum, er kannski alveg eins gott að selja.

Hitt er svo annað mál að erfitt er að una lengur við að gengið sé á rétt þeirra sem keppa við ríkið með því að láta Ríkisútvarpið leika lausum hala á auglýsingamarkaði. Björn og Sigurður Kári mega gjarnan beita sér fyrir leiðréttingu í þeim efnum.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Velkomnir í hópinn