Tvö fyrirtćki slást um Star Trek

Fréttablađiđ Kvikmyndir 27. júní 2007 05:00
Snorri Ţórisson vildi ekki tjá sig um máliđ ţegar Fréttablađiđ náđi tali af honum.
Snorri Ţórisson vildi ekki tjá sig um máliđ ţegar Fréttablađiđ náđi tali af honum.

„Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál," segir Jón Bjarni Guðmundsson hjá Saga Film. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ríkir nú kapphlaup milli Saga Film og Pegasusar um tökur á nýjustu Star Trek-myndinni.


DV greindi frá því í gær að fulltrúar frá kvikmyndaverinu Paramount væru staddir hér á landi til að skoða tökustaði fyrir myndina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa bæði Saga Film og Pegasus sýnt þeim hentuga tökustaði. Hollywood-mennirnir eru hins vegar mjög varir um sig og hafa krafist algjörrar þagmælsku af hendi fulltrúa fyrirtækjanna og því eru ferðirnar algjört hernaðarleyndarmál. Snorri Þórisson, eigandi Pegasusar, vildi ekkert tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum, hann sagðist hvorki geta sagt af eða á.


Ef af verður er hins vegar ljóst að verkefnið verður ógnarstórt, jafnvel stærra en Flags of our Fathers sem skilaði ófáum milljónum í kassann hjá True North-framleiðslufyrirtækinu.


Fleiri fréttir - Kvikmyndir

Tarot
Hugsađu ţér, eđa skrifađu spurningu og dragđu ţér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Lífiđ - Yfir / Kvikmyndir / Tvö fyrirtćki slást um Star Trek