Skoskur maður hefur verið kærður fyrir að þykjast hafa mök við reiðhjól.
Robert Stewart er gefið að sök að hafa verið nakinn fyrir neðan mitti á gistiheimilisherbergi þegar tvær hreingerningakonur komu inn. Þær sögðust hafa fengið áfall þegar maðurinn blasti við þeim í ósiðlegum stellingum með hjólhestinum. Hann lét sér hinsvegar hvergi bregða og hélt hjassinu áfram.
Hann hefur verið kærður fyrir ósæmilega hegðun.
Lögfræðingurinn hans, Gerry Tierney, sagði skjólstæðing sinn neita sök. Stewart segir málið vera misskilning, meðal annars til kominn vegna þess að hann hafi drukkið of aðeins of mikið.
Þegar hann var spurður út í hið meinta reiðhjólakynlíf segir Sunday mail blaðið að Stewart hafi sagt það algjöra þvælu, og spyrja þyrfti hreingerningarkonurnar um af hverju þær segðu slíkt.