Kæra 28 nafnlausa notendur spjallborðs

Vísir Erlent 16. júní 2007 13:21
Ósvífnir einstaklingar nota Netið til að koma höggi á fólk.
Ósvífnir einstaklingar nota Netið til að koma höggi á fólk. MYND/Getty Images

Tvær bandarískar konur hafa höfðað mál á hendur 28 notendum spjallborðs vegna ærumeiðinga og hótana um líkamsmeiðingar. Á spjallborðinu koma einstaklingar fram undir dulnefni og hafa konurnar krafist þess að fá allar þær upplýsingar frá umsjónarmönnum borðsins og netþjónustuaðilum sem gætu afhjúpað hina nafnlausu einstaklinga. Sérfræðingar telja fordæmisgildi málsins mikið og það muni hafa mikil áhrif á framtíð nafnlausra spjallborða á Netinu.

Um er ræða spjallborð sem er aðallega notað af lögfræðinemum í Bandaríkjunum. Konurnar tvær telja sig hafa orðið af atvinnutækifærum vegna hótana og ófrægingarherferðar 28 notenda spjallborðsins.

Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2005 en þá hóf notandi sem kallar sig StanFORDtroll spjallþráð þar sem konurnar voru kallaðar öllum illum nöfnum og þær sagðar vera lélegir námsmenn. Þá var þeim hótað líkamsmeiðingum og nauðgunum. Alls stóðu hótanirnar í tvö ár áður en konurnar ákváðu að kæra.

Lögfróðir menn í Bandaríkjunum telja málið geti haft mikið fordæmisgildi og mögulega haft áhrif á framtíð nafnlausra spjallborða á Netinu. Að þeirra mati gengur það ekki að ósvífið fólk í skjóli nafnleyndar noti Netið til að skaða einstaklinga með rógburði og hótunum.

Ljóst er að ekki verður auðvelt að afhjúpa hina nafnlausu notendur. Lögmenn kvennanna tveggja hafa nú þegar stefnt netþjónustufyrirtækinu og umsjónarmönnum spjallborðsins og krafist þess að fá allar þær upplýsingar sem gætu leitt í ljós nöfn þeirra sem standa á bak við hótanirnar.


Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 10. feb. 2012 23:45

Áhrifamenn 20. aldar endurskapaðir sem hundar

Ljósmyndabókin "Canine Chronicles“ er hugmyndarík endursögn á nokkrum af helstu atvi...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 23:00

Nýtt tónlistarmyndband Ok Go vekur athygli

Nýtt tónlistarmynd hljómsveitarinnar Ok Go var opinberað á Super Bowl um síðustu helgi. Tó...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 22:30

"Ég er háð því að borða plast"

Átján ára stúlka í Bandaríkjunum heldur því fram að hún sé háð því að borða plast. Hún seg...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 23:30

Skammarlegar sögur notaðar til að kynnast starfsfélögum

Á meðan flestir segja brandara til að brjóta ísinn á nýjum vinnustað hafa Japanir þróað af...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 22:15

Faðir skýtur fartölvu dóttur sinnar eftir Facebook skilaboð

Fimmtán ára stúlka í Bandaríkjunum fékk opinbera áminningu frá föður sínum um hversu mikil...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 22:00

Hundur beit þáttastjórnanda í beinni útsendingu

Þáttastjórnandi í Bandaríkjunum var fluttur á sjúkrahús eftir að 40 kílóa hundur beit hana...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 21:30

Tólf ára piltur bjargaði heimili ömmu sinnar

Með því að biðla til ókunnugra um að gefa pening tókst 12 ára gömlum pilti að koma í veg f...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 21:00

Schwarzenegger og Stallone fóru saman í skurðaðgerð

Það er greinilega ekki nóg fyrir að harðhausana að leika í kvikmyndum saman - þeir gangast...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 20:30

Paul McCartney fær stjörnu í Hollywood

Bítillinn Paul McCartney hefur loks fengið stjörnu með nafni sínu á gangstéttina í Hollywo...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 10:15

Stjórnvöld í Aserbaídsjan gagnrýnd fyrir einræði

Mannréttindasamtökin Amnesty International segja andrúmsloft ótta og sjálfsritskoðunar rík...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 09:12

Öflugar sprengingar í næststærstu borg Sýrlands

Öflugar sprengingar skóku borgina Aleppo í Sýrlandi í morgun. Ríkissjónvarpið segir að um ...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:30

Skortur á sólarljósi eykur hættuna á heilablóðfalli

Ný bandarísk rannsókn sýnir að samband er á milli skorts á sólarljósi og hættunnar á því a...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:26

Fundu hugsanlega elsta listaverk heimsins

Hellateikning sem hugsanlega er elsta listaverk heimsins fannst nýlega í þekktum dropastei...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:22

Lögðu hald á 15 tonn af amfetamíni

Herinn í Mexíkó hefur lagt hald á 15 tonn af svokölluðu metamfetamíni en fíkniefnið fannst...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:06

Fjármálaráðherrar höfnuðu áætlun Grikkja

Fjármálaráðherrar evrusvæðisins höfnuðu sparnaðar- og niðurskurðaráætlun grískra stjórnval...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 06:51

Fæðingartíðni í Danmörku sú lægsta í aldarfjórðung

Fæðingartíðnin í Danmörku þessa dagana er sú lægsta undanfarin aldarfjórðung. Á móti hefur...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 04:00

Sekur um að misnota vald

Spænski rannsóknardómarinn Baltasar Garzon hefur verið dæmdur fyrir að misnota völd sín....  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 03:13

Umsátur kostar hundruð lífið

Sýrlenskir hermenn skutu sprengjum á borgina Homs í gær, sjötta daginn í röð. Sprengjuárás...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 03:13

Samkomulag á síðustu stundu

Leiðtogar grísku stjórnarflokkanna náðu í gær samkomulagi um sparnaðaraðgerðir eftir að er...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Kæra 28 nafnlausa notendur spjallborðs