Hljómsveitin VAX sem hefur starfað frá árinu 1999 er með lag á safndisk sem kemur út í Bandaríkjunum þann 29. maí n.k. Platan sem heitir Riot On The Sunest: Vol. 3 er dreift á vesturströnd Bandaríkjanna og í netverslun Amazon.com. Diskurinn er gefin út af útgáfufyritækinu 272 Records en platan er sú þriðja í útgáfuröð þeirra á lítt þekktum hljómsveitum. Haft var samband við VAX í gegnum MySpace síðu hljómsveitarinnar og falast eftir lagi á diskinn og var "Like You" fyrir valinu sem kom út síðastliðið sumar á Íslandi. Auk almennrar dreifingu á disknum þá er útgáfan send á allar helstu háskólaútvarpsstöðvar í Kaliforníu þar sem 272 Records hafa aðsetur. Í öðrum fréttum af Vax er það að frétta að hljómsveitin vinnur hörðum höndum að sinni þriðju breiðskífu. Næstu tónleikar VAX verða á Vegareiðinni 2007 sem haldnir verða laugardaginn 2. júní n.k. í Selskógi við Egilsstaði. Hægt er að versla diskinn á þessari slóð Riot On The Sunset: Vol. 3 http://www.amazon.com/Riot-Sunset-Vol-272-Records/dp/B000Q66QVU