Jón Sigurðsson hættur - Guðni nýr formaður Framsóknarflokksins

Vísir Innlent 23. maí 2007 09:02
„Ég náði ekki kjöri í Alþingiskosningunum 12. maí sl. og hef tekið þá ákvörðun að segja af mér formennsku í Framsóknarflokknum. “
„Ég náði ekki kjöri í Alþingiskosningunum 12. maí sl. og hef tekið þá ákvörðun að segja af mér formennsku í Framsóknarflokknum. “ MYND/Stöð 2
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í morgun að hann myndi segja af sér sem formaður flokksins. Við formennnskunni tekur Guðni Ágústsson, varaformaður flokksins.

Jón segist hafa tekið ákvörðunina í gær eftir atburði síðustu daga. Sagði hann Guðna Ágústsson nú taka við og árnaði hann honum heilla í formannsstarfinu.

Jón sagði að kosningaúrslitin hefðu verið ákveðið áfall en að flokkurinn myndi ná vopnum. Þakkaði hann fyrir það tæpa ár sem hann hefði verið í embætti.

Bæði Guðni Ágútsson og Sæunn Stefánsdóttir, ritari flokksins, þökkuðu Jóni samstarfið og sögðu að flokkurinn myndi veita harða stjórnarandstöðu á þingi á næstu árum.

Boðað verður til miðstjórnarfundar hjá flokknum fljótlega þar sem farið verður yfir málið og kosinn nýr varaformaður. Guðni sagði aðspurður að góð samstaða væri um það innan flokksins að hafa hann sem formann en það væri miðstjórnarfundar að ákveða hvort boðað yrði til flokksþings fyrr en áætlað væri en næsta flokksþing væri áætlað á vormánuðum 2009.

Guðni sagði aðspurður um stefnubreytingar með nýjum formanni að stefnumál hans væru þekkt og að siglt yrði með þann gunnfána inn í stjórnarandstöðu.

Jón Sigurðsson tók við af Halldóri Ásgrímssyni sem formaður Framsóknarflokksins í ágúst í fyrra eftir að hafa sigrað Siv Friðleifsdóttur í formannskosningum. Tók Jón fram að hann og Siv hefðu alla tíð verið góðir vinir og aðspurður vildi hann ekki viðurkenna að hann hefði tekið við slæmu búi frá Halldóri Ásgrímssyni en Halldór sagði af sér eftir slakt gengi flokksins í sveitarstjórnarkosningum.

Jón lýsti nýrri ríkisstjórn sem hægrisinnaðri nýfrjálshyggjuríkisstjórn og tók Guðni Ágústsson að hluta undir það. Þeir vildu þó ekki tjá sig frekar um stjórnina fyrr en greint hefði verið frá stjórnarsáttmála hennar í dag.

Jón ávarpar framsóknarmenn á heimasíðu flokksins þar sem hann segir helstu ástæðuna fyrir brott hvarfi sínu þá að formaður flokksins verði að hafa aðgang að ræðustól Alþingis. Ávarpið er svo:

„Ágætu Framsóknarmenn um land allt - kæru samherjar.

Við núverandi aðstæður er algerlega nauðsynlegt að formaður Framsóknarflokksins hafi aðgang að ræðustól Alþingis í stjórnmálabaráttunni sem aðaltalsmaður og leiðtogi flokksins. Þetta er skilyrði fyrir markvissu og kröftugu stjórnmálastarfi og fyrir einingu í flokknum

Ég náði ekki kjöri í Alþingiskosningunum 12. maí sl. og hef tekið þá ákvörðun að segja af mér formennsku í Framsóknarflokknum. Ég hef undanfarna daga kynnt þessa ákvörðun öðrum forystumönnum flokksins og trúnaðarmönnum í kjördæmi mínu. Beint liggur fyrir samkvæmt lögum Framsóknarflokksins að varaformaður taki við stöðu formanns við aðstæður sem þessar.

Ég flyt ykkur öllum þakkir fyrir traust, stuðning og vináttu. Ég mun leggja mig fram um að aðstoða við uppbyggingu og eflingu Framsóknarflokksins. Ég er sannfærður um að erindi Framsóknarmanna við íslensku þjóðina er brýnna en nokkru sinni fyrr.

Með flokkskveðju og þökk,
Jón Sigurðsson"


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 10. feb. 2012 22:51

Hestarnir ómeiddir

Ökumaður jeppa, sem var með hestakerru í eftirdragi, missti stjórn á bíl sínum klukkan rúm...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 20:24

Von um úrræði

Fjöldi heimila með lánsveð hjá ættingjum og vinum, sem hefur fallið á milli skips og brygg...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 19:19

Stjórnmálafræðingur: Fylgi Lilju ekki fast í hendi

Stjórnmálafræðingur segir fylgi við flokk Lilju Mósesdóttur í nýrri könnun ekki vera fast ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 18:42

Meira en helmingur þjóðarinnar vill kosningar í vor

Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað til alþingiskosninga í vor. Þe...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 17:53

Myndbandið er ekki gabb - hellti upp á kaffi og tók svo upp

"Þetta er alls ekki sviðsett af mér, það er alveg fráleitt. Þetta er ekkert gabb,“ s...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 18:20

Karl á áttræðisaldri í haldi vegna sprengjumálsins

Karlmaður á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 17:17

Á skilorð fyrir kynmök við barn

Karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tvisvar h...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 17:15

Einstök ákvæði stjórnarskrár borin undir þjóðaratkvæði

Stjórnarliðar vilja að þjóðin verði spurð álits á einstökum álitaefnum um stjórnarskrá í s...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 16:59

Nýr flokkur aldrei fengið meira en 10%

"Þetta er vísbending um mikla óánægju með fjórflokkana,“ segir Ólafur Þ. Harðarson p...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 16:55

Ögmundur vill sjá hvað hangir á spýtunni í Nubo málinu

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki hafa fylgst með þeim samningaviðræðum sem...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 15:59

Tæplega 70% með leka púða

Búið er að ómskoða 105 þeirra kvenna sem fengið hafa PIP-brjóstapúða í gegnum árin. Landlæ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 14:56

Ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um helgina

Vetrarhátíð í Reykjavík er gengin í garð og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tekur þátt um ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 13:36

Ástæða til að stöðva útflutning á munum

Ástæða þykir til að stöðva útflutning á nokkrum munum sem P&H Jewellers hafði keypt af Ísl...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 13:30

Fréttaskýring: Ármann valdamestur sjálfstæðismanna

Á þriðjudaginn 14. febrúar mun Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, v...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 13:20

Átta mánaða fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu

Tuttugu og sex ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að ráð...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 12:42

Milljónir hafa séð Lagarfljótsorminn á YouTube

Tvær og hálf milljón notenda YouTube hefur nú séð myndbandið sem Hjörtur Kjerúlf tók við L...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 12:16

Segir aðra kosti hafa verið í stöðunni

Fullyrðingar Rannveigar Ásgeirsdóttur, oddvita Lista Kópavogsbúa, um að engin kostur annar...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 11:50

Ólafur Ragnar með opið hús

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ætlar að bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 11:33

Tjónum á lögreglubílum hefur fækkað umtalsvert

Lögreglubílar á Íslandi lentu 80 sinnum í tjóni á síðasta ári. Kostnaður vegna þessa nam 7...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 11:00

Hjallastefna til Vestmannaeyja

Hjallastefnan er á leið til Vestmannaeyja. Bætist þá ellefti skólinn við þá tíu leikskóla ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 10:29

Lilja hrærð yfir viðbrögðunum

Lilja Mósesdóttir, formaður Samstöðu, nýs stjórnmálaafls sem hyggst bjóða fram í þingkosni...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 10:07

Barnaheill fá styrk til uppbyggingarstarfs í Norður-Úganda

Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa fengið 3,3 milljóna króna styrk frá utanríki...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:59

Trésmiður fær ekki bætur eftir vinnuslys

Pólskur trésmiður sem krafðist tæplega 35 milljóna króna bóta frá Sjóvá - Almennum eftir v...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:30

Skatturinn skoðar fjármál Jens

Einn lýtalæknir er nú formlega til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Samkvæmt...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:30

Tónlistarsmekkur ráði ekki úrvalinu í ÁTVR

Formaður efnahags- og skattanefndar segir ÁTVR seilast langt eftir rökum fyrir því að bann...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 09:00

Bíða vitna að utan í máli Egils

Lögregla stefnir að því að ljúka í næstu viku rannsókn tveggja nauðgunarmála gegn skemmtik...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 08:30

Fangelsisstjóri kærir stuld á lyftingatólum

Geirmundur Vilhjálmsson, sem vikið var úr starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju og ákærður ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:45

Norðlendingar álasa Jóhönnu

"Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráð...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:30

Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi

Kjósendur virðast bíða eftir nýjum framboðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttabla...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:27

Kveikt í póstkössum í Kópavogi

Kveikt var í póstkössum í anddyri fjölbýlishúss við Vallakór í Kópavogi í gærkvöldi....  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:24

Bíll gjöreyðilagðist í eldi

Fólksbíll gjöreyðilagðist í eldi í Hafnarfirði í nótt og nálægur bíll skemmdist talsvert, ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:18

Sjúkraflutningamenn tóku á móti barni

Litlum snáða lá svo á að komast í heiminn á heimili sínu við Laugateig í Reykjavík í gærkv...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:15

Ummæli Snorra í Betel til skoðunar

Akureyrarbær hefur nú ummæli Snorra Óskarssonar, sem oft er kenndur við trúarsöfnuðinn Bet...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 07:00

Sorp flokkað á herbergjum

Grand Hótel Reykjavík hyggst fyrst hótela í borginni taka upp þriggja þátta sorpflokkunark...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:47

Tveir laumufarþegar gripnir í Sundahöfn

Tveir erlendir hælisleitendur voru gripnir, þegar þeir voru að reyna að laumast um borð í ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:45

Helmingur fer ekki í strætó

Ríflega helmingur íbúa höfuðborgarsvæðisins segist aldrei ferðast með strætisvagni. Þetta ...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:15

Fer fyrir borgarráð í næstu viku

Borgarráði verður í næstu viku kynntur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem borginni er ge...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 06:00

Klapparstígur tekinn í gegn

Klapparstígur verður endurnýjaður frá grunni ofan Laugavegar að Skólavörðustíg í sumar. Út...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 05:30

Tæki til hljóðritunar of dýr

Ofurtollar á tæki sem ætluð eru til hljóðritunar mismuna blindum sem hafa ekki efni á tækj...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 05:00

Stórt skref í átt að fullnaðarsigri

Alistair Grétarsson hefur undanfarin ár starfað fyrir UNICEF á Indlandi þar sem lyft hefur...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 05:00

Fundar með Huang Nubo í Kína

Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, er í Beijing í Kína. Þar mun hann funda m...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 03:13

Nú þarf að bíða eftir hlákunni

Mokað hefur verið burt snjóhraukum sem talið var að hætta stafaði af í Reykjavík. Hraukarn...  

Meira
Innlent 10. feb. 2012 03:13

Hafði aldrei tekið bílpróf

Ökumaður á sextugsaldri var stöðvaður í reglubundnu eftirliti lögreglunnar á Hvolsvelli um...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Jón Sigurðsson hættur - Guðni nýr formaður Framsóknarflokksins