Skoðun

Neitaði að ferma stúlku úr Fríkirkjunni

Unglingsstúlku var í haust meinað að fermast í Digranessókn vegna þess að móðir hennar er í Fríkirkjunni. Móður stúlkunnar var tilkynnt að ef hún gengi úr Fríkirkjunni fengið barnið að fermast, annars ekki. Presturinn, séra Magnús Björnsson, býður Fríkirkjuprestinum, Hirti Magna Jóhannssyni, í kaffi til að semja um þessi mál.

Fréttastofa hefur í dag rætt við nokkra einstaklinga sem segja sínar farir ekki sléttar af samskiptum við presta í Kópavogi vegna tengsla viðkomandi við Fríkirkjuna. Þeirra á meðal er fjögurra barna móðir, Sigríður Sigmarsdóttir, sem hringdi í haust í séra Magnús Björnsson í Digraneskirkju til að skrá dóttur sína í fermingarfræðsluna. Hún kveðst hafa gloprað því út úr sér í samtalinu að hún væri í Fríkirkjunni. "Hann sagði að hann gæti ekki fermt hana nema ég gengi úr Fríkirkjunni þá væri það ekkert mál."

Til þess kom þó ekki því dóttir hennar ákvað að fermast heldur í Fríkirkjunni. En Sigríður er ekki sátt. "Þetta er ekki rétt, engan veginn. Kirkjan á að taka á móti öllum sem til hennar leita."

Sigríður fæddist inn í Fríkirkjuna en segist vandræðalaust hafa notið þjónustu Þjóðkirkjunnar hingað til, fermst, gifst og skírt þar öll sín börn enda faðir þeirra í Þjóðkirkjunni.

Þess má geta að í siðareglum presta stendur orðrétt:

Prestur fer ekki í manngreinarálit og veitir fólki sálgæslu og aðra kirkjulega þjónustu án tillits til kynferðis, stöðu, skoðana, trúar, þjóðernis, kynþáttar eða vegna annarrar sérstöðu.

Fréttastofan hefur undir höndum tölvupóstsamskipti konu sem sendi fyrirspurn til prests í Þjóðkirkjunni þar sem hún spyr hvort börn í Fríkirkjunni geti fermst í Þjóðkirkjunni. Presturinn svarar vafningalaust:

"Við höfum ekki tekið að okkur uppfræðslu fyrir önnur trúfélög, þó kristin séu. Hér verða menn að velja hvar þeir standa."

Í næsta bréfi frá prestinum stendur:

"Fullyrðing þín um að þú getir notað alla þjónustu þjóðkirkjunnar þegar þú gengur úr söfnuðinum er einfaldlega rökleysa. Með úrsögn úr þjóðkirkjunni ert þú að afsala þér þjónustu hennar..."

Hjá Biskupsstofu fengust þær upplýsingar í dag að skyldur presta í verkefnum eins og fermingum sé fyrst og fremst við sín sóknarbörn. Engum presti sé skylt að ferma börn utan síns safnaðar, þó að slíkt gerist að sjálfsögðu mjög oft, enda sé almenna reglan sú að prestar þjóðkirkjunnar þjóni fólki án tillits til trúfélagsaðildar.

Séra Magnús Björnsson segir Digraneskirkju taka á móti öllum börnum í fermingarfræðslu - þ.e.a.s. öllum sem eru skráð í Þjóðkirkjuna. Hann segist hafa bent Sigríði á að leita til sóknarprestsins í vesturbæ Kópavogs, þar sem fjölskyldan býr, en dóttirin vildi fermast með skólasystkinum sínum í Digraneskirkju. "Ef Fríkirkjufólk er óánægt með þá afgreiðslu sem við höfum er eðlilegt að séra Hjörtur Magni komi og ræði við okkur um uppfræðslu sinna safnaðarbarna. Og hann er velkominn hingað í kaffi til okkar hvenær sem er."

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×