Fréttablaðið, 15. mar. 2007 09:45

Daðar Íslands stofna hagsmunafélag

mynd
Daði Rúnar Pétursson og Daði Halldórsson bera hagsmuni nafna sinna fyrir brjósti. MYND/brink

Nýstofnað hagsmunafélag íslenskra Daða er ein nýjasta viðbótin í síbreytilega Myspace-flóruna. Á vinalista félagsins má nú þegar finna tæplega þrjátíu Daða, og frá því að síðan fór í loftið í síðustu viku hefur hún verið heimsótt yfir 3.000 sinnum, að sögn forsvarsmannsins Daða Rúnars Péturssonar. „Við samþykkjum bara Daða sem vini á síðunni, fyrir utan Arnþór Jón Þorvarðsson, sem er guðfaðir samtakanna," sagði Daði Rúnar.

Markmið félagsins eru misalvarleg, en á meðal þeirra er að stuðla að betri kjörum allra Daða. „Aðalbaráttumálið okkar er samt að við heitum ekki Davíð. Við höfum allir lent í þeim misskilningi, og ég persónulega bara síðast núna á sunnudaginn," sagði Daði Rúnar, sem segir Döðum finnast á sér brotið. „Það eru líka miklar umræður um þetta í gangi á síðunni núna," benti hann á.

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands, sem miðast við 31. desember 2004, bera 267 drengir á Íslandi nafnið Daði sem eiginnafn. Sé miðað við þær tölur hefur félagið á fyrstu starfsdögum sínum náð um 10% allra Daða á sitt band. Daði Rúnar var að vonum ánægður með árangurinn, en setur markið enn hærra. „Myspace er frekar þöngur hópur, svo við ætlum að stofna aðra heimasíðu. Þá ætlum við að hringja í alla Daða landsins og fá þá til að skrá sig," sagði hann.



Fleiri fréttir

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 16:30

Reese Witherspoone í hlutverk sveitakonu

Stórleikkonan Reese Witherspoon er orðuð við aðalhlutverkið í nýrri mynd, The Pioneer Woma...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 14:30

Páll Óskar og Hjaltalín slógu í gegn - myndir

Páll Óskar Hjálmtýsson og Hjaltalín stóðu fyrir mögnuðum tónleikum á Nasa í samstarfi við ...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 14:00

Píslaganga Michaels á Hvíta tjaldið

Verið er að vinna að nýrri mynd um síðustu daga af ævi poppgoðsins Michaels Jackson, segir...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 12:53

Humarsamloka á 600 vini á Facebook

Facebook samskiptasíðan sem hefur tröllriðið Íslensku netsamfélagi tekur á sig ýmsar myndi...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 12:00

Fyrrum ástmaður vill 3,8 milljarða frá Lady Gaga

Fyrrverandi ástmaður söngkonunnar Lady Gaga hefur stefnt henni og krefst 30 milljóna dolla...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 10:54

Peter lætur fjarlægja nafn sinnar fyrrverandi

Peter Andre, sem einusinni var þokkalega frægur söngvari en er nú þekktari sem fyrrverandi...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 10:00

Iceland fyrirsætan er ástfangin af einkaþjálfaranum

Fyrirsætan Kerry Katona er ástfangin af einkaþjálfaranum sínum, Kevin Green. Katona er bes...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 09:56

Jesse James biðst vægðar

Jesse James, hinn ótrúi eiginmaður Söndru Bullock hefur beðið fjölskyldu sína fyrigefninga...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 09:10

Polanski reynir að losna undan nauðgunardómi

Lögfræðingar leikstjórans Romans Polanski reyna enn að losa hann undan dómi sem hann fékk ...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 06:00

Mikil læti og gauragangur

Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarson...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 06:00

Spaugstofan er beittari

Nanna Guðmundsdóttir er að skrifa BA-ritgerð í þjóðfræði um Spaugstofuna og nálgun hennar ...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 06:00

Forsetafrúin krefst afsökunarbeiðni frá Telegraph

„Dorrit er mjög sár yfir þessum alranga fréttaflutningi sem birtist í þessu breska blaði o...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 05:45

Grímur Atlason flytur á mölina

„Mig langar bara að njóta lífsins með mínu fólki," segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í D...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 05:00

Tónleikar í minningu Rutar

Í dag kl. 17 munu Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðar...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 04:30

Fyrsta plata Ladda í 20 ár

Tónlistarferill Ladda hefur setið á hakanum lengi, en nú verður breyting þar á: Ný plata m...  

Meira

Leit á Vísi

Lífið


Nýtt á Vísi

Sirkus

Föstudagur

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni