Innlent

Sjúklingar vilja bjarga deildinni

 Iðjuþjálfunin er mikilvægur þáttur í endurhæfingu geðsjúkl-inga en iðjuþjálfunardeild Geðdeildar verður lokað 1. maí verði ekkert að gert. Jórunn Dögg Stefánsdóttir og Helena Kolbeinsdóttir mæta á morgnana í iðjuþjálfun á Geðdeild LSH.
Iðjuþjálfunin er mikilvægur þáttur í endurhæfingu geðsjúkl-inga en iðjuþjálfunardeild Geðdeildar verður lokað 1. maí verði ekkert að gert. Jórunn Dögg Stefánsdóttir og Helena Kolbeinsdóttir mæta á morgnana í iðjuþjálfun á Geðdeild LSH. MYND/Anton

Sjúklingar og starfsmenn iðjuþjálfunardeildar geðdeildar hafa tekið höndum saman í baráttunni fyrir því að bjarga starfsemi iðjuþjálfunardeildar á Geðdeild LSH en deildinni verður lokað vegna manneklu 1. maí verði ekkert gert. Fólk fæst ekki til starfa vegna lélegra launa á deildinni.

„Iðjuþjálfunin hjálpar mér að hafa rútínu á mínu lífi. Ef ég væri ekki í iðjuþjálfun væri ég sofandi inni í herbergi heima. Iðjuþjálfunin verður til þess að ég fer á fætur og út á meðal fólks en ég er mjög lokuð og á það til að einangra mig,“ segir Helena Kolbeinsdóttir, sem hefur sótt iðjuþjálfun á Geðdeild LSH í tvö ár.

Helena hefur verið að velta fyrir sér að fara út á vinnumarkaðinn en finnst hún ekki tilbúin til þess alveg strax. „Ef iðjuþjálfunin fellur niður þá veit ég ekki hvað ég geri. Maður fær aðhald í gegnum þessa deild, það er fylgst með og tekið meira tillit til veikindanna þegar maður er kominn út á vinnumarkaðinn,“ segir hún.

Jórunn Dögg Stefánsdóttir sækir líka iðjuþjálfunina. „Ég er með geðhvörf og lenti í alvarlegum veikindum 2005. Iðjuþjálfunin hefur hjálpað mér að ná mér upp og efla sjálfstraustið,“ segir Jórunn Dögg. „Hún er mikilvægur þáttur í endurhæfingunni, að hjálpa manni að takast á við lífið og komast aftur út á vinnumarkaðinn.“

Sjúklingar í iðjuþjálfun halda úti bloggsíðu og eru að safna undirskriftum til stuðnings starfsemi deildarinnar.

Sylviane Pétursson-Lecoultre, stjórnandi deildarinnar, hefur skrifað æðstu stjórnendum LSH bréf til að gera grein fyrir stöðunni og óska eftir svörum um þjónustuna við Hringbraut og hversu miklu máli það skipti LSH að hafa áfram iðjuþjálfun.

„Við höfum auðvitað áhyggjur af þessari stöðu,“ segir Magnús Pétursson, forstjóri LSH. „Þetta er deila um kjör og við fylgjum þeim samningum sem í gildi eru. Við munum auðvitað skoða hvað hægt er að gera en það eru ekki margir kostir í þessari stöðu. Ef fólk fæst ekki til starfa þá er erfitt um vik en auðvitað vonar maður að þetta leysist með einhverju lagi. En það er ekki hægt að brjóta kjarasamninga. Það liggur í augum uppi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×