Grasrótarstarf í galleriBOXi

Fréttablaðið Menning 24. janúar 2007 06:30
Fara með lyklavöldin í boxinu. Karen Dúa, Gitte Nielsen, Hanna Hlíf og Tinna reka galleriBOX á Akureyri.
Fara með lyklavöldin í boxinu. Karen Dúa, Gitte Nielsen, Hanna Hlíf og Tinna reka galleriBOX á Akureyri. Mynd/heiða.is

GalleriBOX er gamall kontór í mjólkurvinnslu norður á Akureyri. Listalífið iðar í Gilinu en fjórar metnaðarfullar konur fara með lyklavöldin í Boxinu, sem hýsir fjölmargar sýningar á hverju ári.

Hanna Hlíf Bjarnadóttir, Karen Dúa Kristjánsdóttir, Tinna Ingvarsdóttir og Gitte Nielsen leigja vinnustofu fyrir listamenn og reka galleriBOX sem Menningarmiðstöðin í Listagili hefur umsjón með. GalleriBOX er stór vinnustofa, setustofa og svo lítið sýningarrými sem er aðeins tæpir tveir og hálfur metri að lengd og breidd en galleríið dregur nafn sitt af þessari fyrrum verkstjóraskrifstofu.

Starfsemin hófst fyrir tæpum tveimur árum en hugmyndin kviknaði í Myndlistarskólanum á Akureyri þar sem hluti aðstandendanna stundaði nám. „Við byrjuðum reksturinn meðan við vorum enn í skólanum," útskýrir Hanna Hlíf, „en þetta hefur tekið töluverðum breytingum. Grundvallarhugmyndin var þó og er að vera vettvangur fyrir ungt listafólk. Okkur fannst tilvalið að brjóta upp stemmninguna og fá unga listamenn og fólkið í grasrótinni til þess að sýna frekar en að bíða eftir því að listafólk sannaði sig annars staðar. Við álítum mikilvægt að fá að kynnast listamönnunum og fylgjast með því sem þeir eru að gera."
Karen bætir við að einkar fróðlegt sé að fylgjast með öðrum listamönnum vinna en nú þegar hafa tæplega þrjátíu listamenn sýnt í Boxinu eða komið að uppá-komum á vegum þess.

Fyrsta sýningin sem sett var upp í Boxinu var unnin af Aðalheiði Eysteinsdóttur en hún var með vinnustofu á staðnum ásamt eiginmanni sínum Jóni Laxdal áður en rýminu var breytt í gallerý. Nú þegar hafa hin ólíkustu sköpunarverk ratað inn í boxið enda segjast aðstandendurnir jafnan leitast við að bjóða ólíkum listamönnum að sýna.
„Listafólkið vinnur yfirleitt bara með Boxið en það er mikil ögrun fyrir það að vinna með svona lítið rými. Þetta hefur heppnast ótrúlega vel," útskýrir Hanna.

Hún segir að þær stöllur hafi alla tíð verið heppnar með samstarfsfólk og listamenn og starfið gangi nú vonum framar - galleríið hefur vakið töluverða athygli fyrir forvitnilegar og ferskar sýningar og ásóknin er góð. „Það er ákveðinn kjarni sem mætir alltaf á sýningarnar hjá okkur," segir Karen og Hanna bætir við að ákveðin hefð sé komin á það að bjóða upp á léttan mat á opnunum. „Þá skapast svolítið öðruvísi stemmning og fólk nennir frekar að staldra við og spjalla. Það er mjög heimilislegt hérna hjá okkur."

Listagilið á Akureyri iðar af lífi en í sama húsi og GalleriBOX er gallerí Jónasar Viðars og í kjallaranum starfar Populus Tremula þar sem staðið er fyrir ýmiss konar uppákomum, til dæmis tónleikum og bókmenntadagskrám. Við hliðina er Listasafn Akureyrar og þar á móti Café Karolína þar sem staðið er fyrir reglulegu sýningarhaldi. Fjölmargir listamenn úr ólíkum greinum eru með vinnustofur á þessum slóðum og segja þær stöllur það alveg víst að starfsemi sem þessi styðji hver við aðra.

 



Verk alex Gross prýðir boxið og nágrenni þessa dagana.
Verk alex Gross prýðir boxið og nágrenni þessa dagana. Mynd/heiða.is

Talið berst að menningarhúsi Akureyringa sem nú er verið að reisa á Eyrinni og áætlað er að opna í árslok 2008. Hanna segist ekki eiga von á því að grasrótin fái inni í því húsi. „Auðvitað vonast allir til þess að þar verði öflugt og gott starf sem nýtast muni öllum listgreinum. Það er gaman að fylgjast með því hvernig Akureyri er að verða meiri menningarbær - hingað koma margir ferðamenn og listamenn staldra hérna við, sem er mjög gott fyrir okkur."

Gitte Nilsen gekk nýlega til liðs við GalleriBOX. Hún leggur áherslu á að starfsemi í slíku menningarhúsi þurfi að vera fjölbreytt og stefna þess hugrökk. „Það væri gaman ef hægt yrði að bjóða þangað listamönnum eða viðburðum sem ekki eru eingöngu hefðbundin," segir hún. „Fólk má ekki hræðast að taka áhættu. Það þarf ekki alltaf að gera öllum til hæfis í einu - það er búið, það er ekki lengur í tísku. Meðalmennska er aðeins áhugaverð í skamman tíma og skilur ekki mikið eftir sig." Gitte segir að áhorfendur nú séu betur búnir undir nýjungar en áður. „Það sannast til dæmis á Leikfélagi Akureyrar. Þar var tekin mikil áhætta en svo líkaði flestum breytingin og nú sækja fleiri áhorfendur leikhúsið."

Þýski myndlistarmaðurinn Axel Gross sýnir verk sín í Galleribox um þessar mundir og stendur sýning hans til 4. febúrar. Nánari upplýsingar um starfsemi galleríssins má finna á heimasíðu þess, www.galleribox.blogspot.com.


Fleiri fréttir - Menning

Menning 18. maí. 2012 13:00

Facebook-samskipti í raunheimi

Halldóra Rut Baldursdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leiklistarnemar við Listahás...  

Meira
Menning 18. maí. 2012 12:30

Lét gamlan draum rætast

Aldís Snorradóttir rekur Gallerí Þoku sem staðsett er í kjallara Hríms hönnunarhúss á Laug...  

Meira
Menning 17. maí. 2012 18:00

Söngleikur loks á Íslandi

Dansflokkurinn Shalala með Ernu Ómarsdóttur í fararbroddi og hljómsveitirnar Lazyblood og ...  

Meira
Menning 16. maí. 2012 13:00

Hjólað í sínu fínasta pússi

Alexander Schepsky og Jón Gunnar Tynes Ólasson segja að það vanti almennilega hjólamenning...  

Meira
Menning 14. maí. 2012 15:00

Með fyrsta skólaverkefnið sitt á Cannes-hátíðina

Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands, er á leið með fyrsta skólaverkefni sit...  

Meira
Menning 14. maí. 2012 08:00

Á fimm þúsund aðdáendur

Myndasagnahöfundurinn Vignir Þór Þórhallsson, eða Flotti-Comics eins og hann kallar sig, e...  

Meira
Menning 12. maí. 2012 16:52

Harpa reis á hárréttum tíma

Áhrif tónlistarhússins Hörpu eru mikil og varanleg, segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir tón...  

Meira
Menning 09. maí. 2012 10:30

Opnun í Ásmundarsafni

Frábært veður og stemning var í Ásmundarsafni við Sigtún þegar þar var opnuð sýningin Inn ...  

Meira
Menning 09. maí. 2012 16:13

Mikil aðsókn á Skjaldborg

"Það er greinilegt að hátíðin er að festa sig í sessi,“ segir Tinna Ottesen, einn að...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Menning / / Grasrótarstarf í galleriBOXi