Félaginu verður skipt upp í tvö skráð rekstrarfélög, 365 á sviði fjölmiðla og afþreyingar en Teymi á sviði upplýsingatækni og fjarskipta. Jón Ásgeir Jóhannesson er nýr stjórnarformaður 365 en Þórdís Sigurðardóttir fer fyrir stjórn Teymis.
Hluthafar í Dagsbrún samþykktu í gær að skipta félaginu upp í tvö rekstrarfélög; annars vegar fjölmiðla- og afþreyingarfélagið 365 hf. og hins vegar upplýsingatækni- og fjarskiptafélagið Teymi.
Verða bæði félögin skráð í Kauphöll Íslands næstkomandi mánudag og fá hluthafar Dagsbrúnar hlutabréf í hvoru félagi. Við skiptinguna er fjölmiðlahlutinn metinn á 55 prósent af heildarvirði Dagsbrúnar en fjarskiptahlutinn á 45 prósent.
Ari Edwald er forstjóri 365 en Árni Pétur Jónsson stýrir Teymi.
Í stjórn 365, sem gefur meðal annars út Fréttablaðið, setjast Jón Ásgeir Jóhannesson, Árni Hauksson, Magnús Ármann, Pálmi Haraldsson og Þorsteinn M. Jónsson. Jón Ásgeir tekur við starfi stjórnarformanns. Stjórn Teymis er skipuð þeim Þórdísi J. Sigurðardóttur, fyrrum stjórnarformanni Dagsbrúnar, Guðmundi Ólasyni, Matthíasi Páli Imsland, Þorsteini M. Jónssyni og Þór Sigfússyni.
Þórdís, fráfarandi stjórnarformaður, sagði á fundinum að uppstokkun Dagsbrúnar væri liður í því að efla rekstur félagsins og stjórnin teldi það farsæla niðurstöðu fyrir hluthafa og starfsmenn að eignast hluti í tveimur skráðum félögum. „Á undanförnum tveimur árum hefur verið unnið að því að styrkja bæði fjölmiðla- og fjarskiptahluta Dagsbrúnar með innri og ytri vexti. Við teljum að því verki sé lokið og eftir standi tvö félög sem hvort um sig búi við sterka stöðu á markaði og eru skýr valkostur fyrir fjárfesta."
Ari Edwald, forstjóri 365, segir að félagið ætli sér að selja hlut sinn í Hands og bróðurpart bréfa í breska útgáfu- og samskiptafyrirtækinu Wyndeham Press og einbeita sér að innanlandsmarkaði. Velta 365 er áætluð tólf milljarðar króna.
Lokað var fyrir viðskipti með Dagsbrún í gær vegna skiptingarinnar. Á fimmtudaginn sendi Dagsbrún frá sér neikvæða afkomuviðvörun fyrir fyrstu níu mánuði ársins og hefur 1,5 milljarða varúðarfærsla verið færð vegna eignarhlutar í Wyndeham Press.
Greiningardeildir Glitnis og Landsbankans reikna með miklu tapi félagsins á 3. ársfjórðungi en það tapaði 1,5 milljörðum króna á fyrri hluta ársins og hafa hlutabréf þess lækkað um 24 prósent frá ársbyrjun.
Smáragarður, fasteignafélag Jóns Helga Guðmundssonar í Byko, þarf að greiða tæpa tíu millj...
Sennilegt er að Íslandspóstur hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína í samskiptum sínum v...
Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 12,8 milljarða viðskiptum. GAMMAi:...
Útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem j...
Innkalla þurfti fjórar bifreiðar af Toyota Prius gerð hér á Íslandi en alls þarf Toyota a...
Samtök atvinnulífsins (SA) gagnrýna Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra harðlega á he...
Greining Íslandsbanka fjallar í dag um breytingar á landsframleiðslunni á Íslandi í kreppu...
Kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation, sem á 40,94% hlut í HS Orku í gegnu...
Heildarfjöldi leigusamninga á landinu var 898 í janúar 2010 og fækkar þeim um 0,8% frá jan...
Theodoor Hoen forstjóri Marels hefur aukið við hlut sinn í félaginu. Í tilkynningu til kau...
Líklegt er að evran haldi áfram að gefa eftir gagnvart helstu gjaldmiðlum. Krónan ætti ein...
Fjármálaeftirlitið hefur sektað Íslandssjóði hf. um eina milljón kr. fyrir villandi upplýs...
Fjármálaeftirlitið hefur sektað Arev verðbréfafyrirtæki hf, og Auði Capital um hálfa millj...
Fjármálaeftirlitið hefur sektað MP Sjóði hf. um eina milljón kr. fyrir að hafa birt villan...
Arion banki hefur nú höfðað mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna persónulegra ábyrg...
Arion banki hefur nú höfðað mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna persónul...