Hvar er innrásin?

Fréttablaðið Fastir pennar 14. júlí 2006 06:00
Hvar er innrásin?

Útrás hefur verið tískuhugtak um nokkurn tíma. Það á rætur í þeim athöfnum allmargra íslenskra fyrirtækja og ungra athafnamanna að hasla sér völl á erlendum vettvangi.

Á einungis örfáum árum hafa mál skipast á þann veg að hvert fyrirtækið á fætur öðru reynir að nýta sér kosti alþjóðavæðingarinnar. Með hæfilegri einföldun má segja að fyrirtækin búi sér nú til sína eigin heimamarkaði.

Sú var tíð að það voru fyrst og fremst fisksölufyrirtækin sem fjárfestu erlendis. Nú eru það einkum fjármála- og þjónustufyrirtæki af ýmsu tagi sem hasla sér völl utan landsteinanna.

Þegar fyrst kom til tals að einkavæða bankana óttuðust margir að útlendingar myndu gleypa þá. Fáir sáu þá fyrir að þegar til kastanna kæmi yrði þróunin á hinn veginn.

Sannleikurinn er sá að alþjóðavæðingin hefur gefið smáríkjum og litlum fyrirtækjum aukið svigrúm og ný tækifæri. Ungir og framsæknir íslenskir athafnamenn hafa hagnýtt sér þessa kosti svo eftir hefur verið tekið.

Engum vafa er undirorpið að þessi sókn íslenskra athafnamanna út fyrir túnið heima hefur leyst marga nýja krafta úr læðingi. Hún hefur verið snar þáttur í vexti og viðgangi þjóðarbúskaparins á liðnum árum.

En það eru tvær hliðar á hverjum peningi. Á sama tíma og Ísland hefur verið þátttakandi í innri markaði Evrópusambandsins og nýju alþjóðlegu viðskiptaumhverfi fer lítið fyrir frjálsri erlendri fjárfestingu hér. Það er skoðunarefni og reyndar nokkurt áhyggjuefni.

Erlend fjárfesting hér á landi er fyrst og fremst í álverum. Hún er komin til vegna opinberrar fyrirgreiðslu við orkusölu. Núverandi forsenda hennar er meðal annars áhættuþátttaka skattgreiðendanna í sveiflum á álverði.

Stóriðjufjárfestingarnar eru því ekki dæmi um erlent fjármagn sem hingað leitar á almennum viðskiptalegum forsendum. Þær eru því heldur ekki algildur mælikvarði á mat erlendra fjárfesta á íslensku viðskiptaumhverfi.

Í þeim tilgangi að tryggja grósku og fjölbreytni í íslensku atvinnulífi þurfum við rétt eins og aðrar þjóðir erlent fjármagn. Vegir fjárfestinganna þurfa að vera gagnvegir. Fyrir þá sök er rétt að spyrja: Hvar er innrásin?

Skattaumhverfi fyrirtækja hér er nokkuð hagstætt. Mörg íslensku útrásarfyrirtækin væru sennilega alfarin ef skattar væru ekki lægri hér en gerist og gengur í Vestur-Evrópu.

Þetta tiltölulega aðlaðandi skattaumhverfi hefur eigi að síður ekki megnað að laða að erlenda fjárfesta í þeim mæli sem æskilegt væri. Því vakna eðlilega spurningar eins og þessar: Hvað er að? Hvað veldur hiki erlendra fjárfesta?

Ugglaust eru ekki til einhlít svör við slíkum spurningum. Óstöðugleiki íslensku krónunnar er þó að öllum líkindum helsta skýringin. Erlendir fjárfestar hika við þátttöku í íslensku atvinnulífi og íslenskum fjármálamarkaði vegna gengisáhættu í litlu myntsamfélagi.

Erlend fjárfesting er ekki einvörðungu gott gróskumeðal fyrir þjóðarbúskapinn. Hún getur einnig verið mikilvæg mælistika á frammistöðu okkar.

Í þessu ljósi hlýtur það að vera eitt af stóru viðfangsefnunum í íslenskum stjórnmálum að bregðast við þessum aðstæðum út frá langtímasjónarmiðum. Málum þarf að koma svo fyrir að fjárfestingar fari ekki einugis um einstefnugötur frá Íslandi.


Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hvar er innrásin?