Menning

Árstíðir komnar frá Kasakstan, Kína og Mongólíu til Akureyrar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Daníel, Karl Aldinsteinn Pestka, Ragnar Ólafsson og Gunnar Már Jakobsson mynda hópinn Árstíðir.
Daníel, Karl Aldinsteinn Pestka, Ragnar Ólafsson og Gunnar Már Jakobsson mynda hópinn Árstíðir. Mynd/Matthew Eisman
„Okkur líkar alltaf vel að koma fram á Akureyri,“ segir Daníel Auðunsson, píanóleikari í hljómsveitinni Árstíðum, þar sem hann er nýstiginn út úr flugvél á Akureyrarvelli.

Hann segir þá félaga hafa verið beðna að spila og syngja með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á morgun í Hofi.

„Músíkin okkar hentar ágætlega fyrir það og við erum líka nýkomnir frá Rússlandi þar sem við tókum tvö sinfóníugigg, annað þeirra í Síberíu. Þannig að við höfum æfingu í að koma fram með sinfóníuhljómsveitum og ég gæti trúað að leiðir okkar eigi eftir að liggja meira í þá átt,“ lýsir hann.

Daníel segir sveitina hafa spilað í risatónleikahöllum í gömlum gúlag-borgum sem liggja að Kasakstan, Kína og Mongólíu, auk Moskvu og Sankti Pétursborgar.

Tónleikarnir á morgun, laugardag, hefjast klukkan 18 í Hofi. Þar verða flutt jólalög ásamt bæði eldri og nýrri lögum Árstíða, meðal annars af nýútkominni breiðskífu þeirra, Hvel, og á tónleikunum stekkur Hallgrímur Jónas Jensson sellóleikari inn í bandið með þeim.

Öllum flutningnum stjórnar svo Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×