Íslenski boltinn

Ársmiðahafar Stjörnunnar ekki í gróðahug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bilun í prentara varð til þess að ársmiðahafar Stjörnunnar þurftu að bíða öllu lengur í röð er þeir keyptu miða á fyrri leikinn í Laugardalnum.
Bilun í prentara varð til þess að ársmiðahafar Stjörnunnar þurftu að bíða öllu lengur í röð er þeir keyptu miða á fyrri leikinn í Laugardalnum. Mynd/KSÍ
Ársmiðahafar Stjörnunnar virðast eiga í litlum erfiðleikum með að koma miðum á viðureign Stjörnunnar og Inter til áhugasamra. Þannig er enga miða að finna til sölu á sölutorgi Bland.is.

Um sex þúsund miðar seldust þegar ársmiðahöfum var gefinn kostur á að kaupa miða á undan hinum almenna borgara. Vakti salan nokkra athygli en ljóst er að fjölmargir ársmiðahafar keyptu fleiri tugi miða hver.

Dyggur stuðningsmaður og fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar keypti til að mynda 30 miða og kom þeim til vina og ættingja um leið. Bróðir hans gerði slíkt hið sama.

Uppselt er á leikinn en þeir fjögur þúsund miðar sem eftir voru seldust upp á skömmum tíma eftir að almenn sala hófst. Í kjölfarið fór fólk að auglýsa eftir lausum miðum, m.a. á Bland.is, en þar virðast fáir miðar vera í boði. Raunar eru engir miðar til sölu á sölutorginu þegar þetta er skrifað.

Skemmst er að minnast þegar seldist upp á umspilsleik íslenska karlalandsliðsins gegn Króatíu í nóvember. Um leið fóru fjölmargir óprúttnir aðilar með miðana í endursölu á Bland.is og reyndu að græða á sölunni.  Einn gekk svo langt að hann seldi löndum sínum miða á leikinn án þess að afhenda nokkra miða.

Stjörnumenn virðast hins vegar aðeins einbeita sér að því að koma miðum til stuðningsmanna, vina og ættingja svo reikna má með blárri stúku á miðvikudaginn þegar Evrópumeistararnir frá 2010 mæta í heimsókn.

Leikur Stjörnunnar og Inter á miðvikudagskvöld hefst klukkan 21 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá verður bein textalýsing á Vísi. Síðari leikur liðanna á Ítalíu verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Uppselt í hópferðina á San Siro

Sigurður Gunnarsson, deildarstjóri íþróttadeildar Úrvals Útsýnar staðfesti við Vísi rétt í þessu að uppselt væri í hópferðina á leik Inter og Stjörnunnar á San Siro en að ferðaskrifstofan væri að kanna möguleikann á því að bæta við miðum.

Búumst við ævintýralegri stemningu

Stjarnan og ítalska stórliðið Inter mætast næsta miðvikudag í Evrópudeildinni og verður leikið á Laugardalsvelli. Það er þegar uppselt á leikinn og von á einstakri stemningu í Dalnum á miðvikudagskvöldið.

Miðarnir seldust upp á sex mínútum

Nú er endanlega orðið uppselt á leik Íslands og Króatíu í umspilinu um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári en miðarnir fóru á sex mínútum.

Næturmiðarnir komnir á Bland

Miðar ganga nú þegar kaupum og sölum á leik Íslands og Króatíu. Á síðunni bland.is má sjá þó nokkrar auglýsingar þar sem óskað er eftir miðum en einnig hafa miðar verið boðnir til sölu.

Svikinn um miða á svarta markaðnum

"Við viljum hvetja fólk til að vera á varðbergi gagnvart allri sölu á netinu,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×