Enski boltinn

Arsenal rúllaði yfir Lincoln

Stefán Árni Pálsson skrifar
Theo Walcott skorar mark.
Theo Walcott skorar mark. vísir/getty
Arsenal komst auðveldlega áfram í undanúrslit enska bikarsins í dag þegar liðið vann Loncoln, en fyrir leikinn munaði 87 sætum á liðunum í ensku deildarkeppninni.

Theo Walcott kom Arsenal á bragðið á 45. mínútu og það tók heimamenn frekar langan tíma að opna markareikninginn. 

Staðan í hálfleik var 1-0 en í þeim síðari var bara eitt lið á vellinum. Þá skoraði Arsenal fjögur mörk.

Þar voru að verki Olivier Giroud, Alexis Sanchez og Aaron Ramsey. Síðan varð Luke Waterfall fyrir því óláni að gera sjálfsmark.  5-0 sigur Arsenal staðreynda. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×