Enski boltinn

Arsenal hefur ekki áhuga á Cech

Cech er líklega orðið kalt á bekknum.
Cech er líklega orðið kalt á bekknum. vísir/getty
Það er talið ansi líklegt að Petr Cech yfirgefi herbúðir Chelsea í janúar en hann er ekki á leiðinni til Arsenal.

Cech hefur setið á bekknum í vetur þar sem Thibaut Courtois hefur tekið sæti hans í markinu hjá Chelsea. Hann mun ekki gefa það sæti eftir.

Cech hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að félagið ætli sér ekki að gera tilboð í hann.

Lukas Podolski hefur svo verið orðaður við brottför frá Arsenal en Wenger segir að Arsenal hafi ekki fengið neitt tilboð í hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×